Menningar- og fræðamiðstöð í Garðabæ
Ferill máls
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
01
16. fundur
Farið yfir skýrslu starfshóps frá vorinu 2018 um fjölnota menningar- og fræðamiðstöð í Garðabæ.
Skýrsla starfshóps um fjölnota menningar- og fræðasetur frá vorinu 2018 lá fyrir á fundinum og var rædd. Starfshópnum, sem var skipaður af bæjarráði í febrúar 2018, var falið að kanna grundvöll fyrir byggingu og starfsemi fjölnota menningar- og fræðamiðstöðvar í Garðabæ. Farið var yfir helstu þætti skýrslunnar sem var lögð fram í bæjarráði í maí 2018.
Umræður voru um mögulega staðsetningu menningarmiðstöðvar og tengingu við hinar ýmsu menningarstofnanir bæjarins.
Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar
02
6. fundur

03
12. fundur
Gunnar Valur Gíslason, formaður menningar- og safnanefndar, fer yfir skýrslu starfshóps um fjölnota menningar- og fræðasetur frá vorinu 2018.
Gunnar Valur Gíslason, formaður menningar- og safnanefndar, fór yfir skýrslu starfshóps um fjölnota menningar- og fræðasetur frá vorinu 2018. Starfshópnum sem var skipaður af bæjarráði var falið að kanna grundvöll fyrir byggingu og starfsemi fjölnota menningar- og fræðamiðstöðvar í Garðabæ. Farið var yfir helstu þætti skýrslunnar sem var lögð fyrir bæjarráð í maí 2018. Upplýsingar um vinnu starfshópsins og skýrslan sjálf er aðgengileg á vef Garðabæjar.
Umræður voru um markmiðasetningu og næstu mögulegu skref í framhaldinu
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
04
1. fundur
Skýrsla starfshóps um menningar- og fræðamiðstöð í Garðabæ lögð fram og kynnt.
Skýrsla starfshóps um menningar- og fræðamiðstöð í Garðabæ, dags. 27. apríl 2018, var lögð fram og rædd.
Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar
05
23. fundur
Fyrir fundinum lá vegvísir að Menningar- og fræðamiðstöð í Garðabæ. Starfshópur sem skipaður var af bæjarstjórn skilaði af sér skýrslu í lok apríl. Nefndin tekur undir með skólastjóra að helsti möguleiki skólans væri að nýta húsnæðið ef þar væri tónleikasalur fyrir um 350-400 áheyrendur.
Bæjarráð Garðabæjar
06
16. (1831). fundur
Umhverfisnefnd Garðabæjar
07
45. fundur
Kynning á verkefninu um fjölnota menningar-og fræðamiðstöð
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
09
30. fundur
Greint frá opnum fundi sem var haldinn miðvikudaginn 11. apríl sl. og um vinnu starfshópsins.
Starfshópur um fjölnota menningar- og fræðamiðstöð í Garðabæ hefur fundað fjórum sinnum og formaður greindi frá vinnu starfshópsins. Starfshópurinn stóð að opnum fundi fyrir almenning um málefnið miðvikudaginn 11. apríl sl. í Flataskóla. Niðurstöður fundarins verða teknar saman með samantekt starfshópsins.
Umræður voru um hlutverk og starfssemi fjölnota menningar- og fræðamiðstöðvar í Garðabæ.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
10
29. fundur
Formaður greindi frá tillögu um fjölnota menningar- og fræðamiðstöð sem var lögð fram og
samþykkt í bæjarstjórn Garðabæjar 15. febrúar sl. Á fundi bæjarráðs Garðabæjar 27. febrúar sl. voru eftirfarandi aðilar skipaðir sem fulltrúar í starfshóp til að kanna grundvöll fyrir fjölnota menningar- og fræðamiðstöð í Garðabæ.
Gunnar Valur Gíslason, bæjarfulltrúi og formaður menningar- og safnanefndar.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, bæjarfulltrúi og formaður skólanefndar.
Þóroddur Bjarnason, varafulltrúi í menningar- og safnanefnd.
Laufey Jensdóttir, formaður Grósku.
Ingibjörg Guðjónsdóttir, kórstjóri Kvennakórs Garðabæjar.
Með hópnum starfar upplýsingastjóri. Starfshópurinn á að hafa lokið störfum í lok apríl 2018. Fyrsti fundur starfshópsins var haldinn þriðjudaginn 6. mars sl.
Umræður voru um verkefni starfshópsins.
Fylgiskjöl
Bæjarráð Garðabæjar
11
8. (1823). fundur
Bæjarráð samþykkir að skipa eftirfandi aðila sem fulltrúa í starfshóp til að kanna grundvöll fyrir fjölnota menningar- og fræðamiðstöð í Garðabæ.
Gunnar Valur Gíslason, bæjarfulltrúi og formaður menningar- og safnanefndar.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, bæjarfulltrúi og formaður skólanefndar.
Þóroddur Bjarnason, varafulltrúi í menningar- og safnanefnd.
Laufey Jensdóttir, formaður Grósku.
Ingibjörg Guðjónsdóttir, kórstjóri Kvennakórs Garðabæjar.
Fylgiskjöl
Bæjarráð Garðabæjar
12
7. (1822). fundur
Bæjarráð samþykkir að fresta ákvörðun um skipun fulltrúa í starfshópinn til næsta fundar.
Lögð fram drög að erindisbréfi fyrir starfshópinn.