Beint í efni

1. fundur

24.08.2018
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

1. fundur

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

24.08.2018

Kl. 08:15 -

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Gunnar Valur Gíslason - formaður
  • Hrannar Bragi Eyjólfsson - aðalmaður
  • Bjarndís Lárusdóttir - aðalmaður
  • Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
  • Hannes Ingi Geirsson - aðalmaður

Starfsmenn

  • Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri

Ritari

  • Hulda Hauksdóttir

Formaður bauð nefndarmenn velkomna til fyrsta fundar
menningar- og safnanefndar á nýju kjörtímabili 2018-2022.

Dagskrá

Málsnúmer 1808275

01

Verkefni menningar- og safnanefndar

Stefna í menningarmálum Garðabæjar, yfirferð og kynning.

Málefni á vegum nefndarinnar, yfirferð og kynning.

Verkefni í vinnslu og fjárhagsstaða menningarmála 2018, yfirferð og kynning.

Starfsáætlun 2018-2019 lögð fram.

Skjalið ,,Samantekt um atriði sem varða starfshætti nefnda", dags. 25.06.2018, var lagt fram og kynnt.

Farið var yfir hlutverk og starfsemi menningar- og safnanefndar en nefndin starfar í umboði bæjarstjórnar Garðabæjar að eflingu lista- og menningarlífs í Garðabæ. Farið var yfir glærukynningu þar sem helstu verkefni á sviði menningarmála og menningarstofnanir Garðabæjar voru kynntar.

Stefna í menningarmálum Garðabæjar frá árinu 2005 var lögð fram og kynnt.

Drög að starfsáætlun nefndarinnar fyrir starfsárið 2018-2019 var lögð fram og rædd.

Ákveðið að fundartími nefndarinnar verði föstudagur kl.08:15. Upplýsingastjóri mun uppfæra starfsáætlun nefndarinnar miðað við það og senda aðal- og varamönnum ásamt skjalinu ,,Samantekt um atriði sem varða starfshætti nefnda" og kynningunni á helstu verkefnum á sviði menningarmála og menningarstofnunum bæjarins.

Málsnúmer 1802204

02

Menningar- og fræðamiðstöð í Garðabæ

Skýrsla starfshóps um menningar- og fræðamiðstöð í Garðabæ lögð fram og kynnt.

Skýrsla starfshóps um menningar- og fræðamiðstöð í Garðabæ, dags. 27. apríl 2018, var lögð fram og rædd.

Öðrum fundarliðum var frestað og verða teknir fyrir á næsta fundi nefndarinnar.