Beint í efni

Sameiginlegur fundur menningar- og safnanefndar og stjórnar Hönnunarsafns Íslands

Málsnúmer 1808275

Ferill máls

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

01

11. fundur

Farið yfir drög að dagskrá fyrir sameiginlegan fund menningar- og safnanefndar og stjórnar Hönnunarsafns Íslands sem er fyrirhugaður 17. maí nk.

Föstudaginn 17. maí nk. verður haldinn sameiginlegur fundur menningar- og safnanefndar Garðabæjar og stjórnar Hönnunarsafns Íslands þar sem farið verður yfir sameiginlega fleti nefndanna og menningarstarf í bænum. Rætt var um drög að dagskrá fundarins.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

02

10. fundur

Fyrirhugað samstarf við Bókasafn Garðabæjar um fyrirlestur í Sveinatungu í apríl frestast fram í maí en eftir er að fastsetja dagsetningu. Einnig var sagt frá hugmyndum bókasafnsins um fasta viðburði mánaðarlega í Sveinatungu næsta vetur.
Umræða var um kynningu á menningarstofnunum Garðabæjar með útgefnu viðburðadagatali.

Farið var yfir starfsáætlun og næsta fund nefndarinnar.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

03

9. fundur

Samstarf við Bókasafn Garðabæjar um fræðslusíðdegi í Sveinatungu o.fl.

Greint var frá hugmynd Bókasafns Garðabæjar um samstarf við menningar- og safnanefnd um fyrirlestur fyrir almenning í Sveinatungu í apríl. Rætt var um hugmyndina og samþykkt að vera í samstarfi við bókasafnið þar um.

Framundan er opnun á tveimur sýningum í Hönnunarsafni Íslands. Sýningarnar Borgarlandslag og Veðurvinnustofa opna laugardaginn 23. mars í safninu og eru jafnframt hluti af HönnunarMars sem er haldinn í lok mánaðarins.

Einnig var sagt frá fyrirhugaðri leiksýningu á vegum Senuþjófsins eða leiksmiðjunnar Friggjar sem hefur haft afnot af sal á Garðatorgi í vetur. Þrjú stuttleikrit eftir Samuel Becket verða sýnd laugardaginn 30. mars nk. kl. 16 á Garðatorgi.

Myndlistarfélagið Gróska er einnig að undirbúa sumarsýningu félagsins sem verður sett upp á Garðatorgi og opnar á Sumardaginn fyrsta. Í ár heldur Gróska uppá 10 ára starfsafmæli félagsins. Jónsmessugleði Grósku sem er haldin með aðstoð Garðabæjar verður haldin fimmtudaginn 20. júní nk.

Farið var yfir starfsáætlun um næstu fundi og stefnt er að fundi með stjórn Hönnunarsafnsins í apríl.

Forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs greindi frá fundi með Karítas H. Gunnarsdóttur, skrifstofustjóra og Baldri Þóri Guðmundssyni sérfræðingi á skrifstofu menningarmála hjá mennta- og menningarmálaráðuneytinu þar sem m.a. var farið yfir drög að samstarfssamningi frá árinu 2016 sem byggir á undirritun samnings frá 2006 vegna starfsemi Hönnunarsafns Íslands og rætt um mögulegar útfærslur á nýjum samningi eða samningum.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

04

8. fundur

Farið var yfir drög að starfsáætlun nefndarinnar út árið 2019 sem var lögð fram. Umræða um menningaruppskeruhátíð og dagsetning í lok maí ákveðin fljótt.
Greint var frá opnun á listasýningu í Garðabæ 16. febrúar sl. á vegum Listasafns ASÍ þar sem sýnd eru verk Hildigunnar Birgisdóttur. Sýningin sem ber heitið UNIVERSAL SUGAR stendur til 28. febrúar nk.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

05

7. fundur

Eiríkur Björn Björgvinsson, nýr forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs, lítur við á fundinum.

Eiríkur Björn Björgvinsson nýr forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs mætti á fundinn og kynnti sig.
Umræður voru um menningarmál almennt og menningarstarfsemi í Garðabæ.

Eiríki þakkað fyrir komuna á fundinn.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

06

7. fundur

Farið yfir önnur verkefni framundan á árinu, s.s. fræðslu- og sögugöngur o.fl.

Starfsáætlun nefndarinnar fyrir vorið lögð fram og rædd.
Farið var yfir verkefni framundan og m.a. rætt um fræðslu- og sögugöngur, endurskoðun margmiðlunarefnis við minjagarðinn á Hofsstöðum, áfram verður unnið að skráningu listaverka, áframhald vinnu út frá skýrslu starfshóps um menningar og fræðahús, rætt var um möguleika á því að vera með matarhátíð o.fl.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

07

6. fundur

Farið yfir menningardagskrá í Garðabæ á aðventunni, viðburðir sem Garðabær stendur að sem og aðrir viðburðir.

Farið var yfir helstu menningarviðburði á aðventunni í Garðabæ sem eru haldnir á vegum bæjarins sem og annarra. Laugardaginn 1. desember verður jóladagskrá á Garðatorgi þegar ljósin verða tendruð á vinabæjarjólatrénu. Sama dag verður hinn árlegi jóla- og góðgerðardagur á Álftanesi á vegum foreldrafélags Álftanesskóla í samvinnu við bæinn og önnur félög. Sunnudaginn 2. desember verður opið hús í burstabænum Króki á Garðaholti. Bókasafn Garðabæjar verður með árlegt jólaleikrit 1. desember, jólaupplestur fyrir börn 15. desember og afmælishátið 18. desember.
Fjölmargir tónleikar eru framundan þar má nefna jólatónleika Kvennakórs Garðabæjar 4. desember, jólatónleika kórs Vídalínskirkju 5. desember, aðventu- og styrktartónleika 7. desember á vegum þýska sendiráðsins, jólatónleika Gospelkórs Jóns Vídalíns 16. desember, kertaljósatónleika kammerhópsins Camerarctica 21. desember og Þorláksmessu tónleika Jóhönnu Guðrúnar 23. desember. Á vegum Tónlistarskóla Garðabæjar verða fjölmargir jólatónleikar í skólanum og víðar. Upplýsingar um menningarviðburði á aðventunni eru að finna í viðburðadagatalinu á vef Garðabæjar auk þess sem vakin var athygli á viðburðum framundan í frétt í Garðapóstinum.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

08

6. fundur

Farið yfir helstu viðburði næsta árs, s.s. þátttöku í Vetrarhátíð, Þriðjudagsklassík, Jazzhátíð o.fl.

Farið var yfir helstu menningarviðburði í tímaröð á næsta ári, bæði viðburði á vegum nefndarinnar sem og annarra. Þar má nefna Þriðjudagsklassík, Safnanótt og Sundlauganótt, Jazzhátið Garðabæjar, menningaruppskeruhátíð, Jónsmessugleði o.fl. Umræður voru um einstaka viðburði/verkefni. Uppfært skjal með viðburðunum verður sent til nefndarmanna.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

09

5. fundur

Farið yfir hvernig til tókst með Haustvöku Kvennakórs, tónleika bæjarlistamanns og rætt um önnur verkefni framundan.

Haustvaka Kvennakórs Garðabæjar var haldin 25. október sl. í Kirkjuhvoli. Menningardagskrá kórsins er haldin í samstarfi við menningar- og safnanefnd Garðabæjar og er hluti af samstarfssamningi kórsins við bæinn. Fjölbreytt dagskrá var um kvöldið þar sem Eyþór Eðvarðsson var ræðumaður kvöldsins, nemendur úr Tónlistarskóla Garðabæjar voru með tónlistaratriði og María Magnúsdóttir söngkona og bæjarlistamaður kom fram, auk þess sem Kvennakórinn söng í byrjun og lok dagskrár.

Fimmtudaginn 1. nóvember sl. hélt María Magnúsdóttir bæjarlistamaður tónleika í samstarfi við menningar- og safnanefnd. Tónleikarnir voru haldnir í Vídalínskirkju. Með Maríu á tónleikunum voru þeir Sigurður Flosason saxófónleikari og Agnar Már Magnússon píanóleikari, báðir fyrrum bæjarlistamenn Garðabæjar.

Greint var frá því að undirbúningur fyrir Vetrarhátíð 2019 er hafinn þar sem Garðabær hefur tekið þátt með því að vera með dagskrá í söfnum bæjarins á Safnanótt og í Álftaneslaug á Sundlauganótt. Vetrarhátíð verður haldin aðra helgina í febrúar 2019.


Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

10

4. fundur

Telma Halldórsdóttir persónuverndarfulltrúi Garðabæjar segir frá vinnu vegna nýrra persónuverndarlaga sem tóku gildi í sumar.

Telma Halldórsdóttir persónuverndarfulltrúi Garðabæjar mætti á fund nefndarinnar og fór yfir helstu þætti sem þarf að hafa í huga við innleiðingu á nýjum persónuverndarlögum sem tóku gildi í sumar. Stefnt er að því að almennir nefndarmenn fái vinnunetföng hjá Garðabæ.

Umræður voru um málið og með hvaða hætti ný persónuverndarlög tengjast starfi menningar- og safnanefndar og nefndarmanna.


Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

11

4. fundur

Greint frá hugmynd að tónleikum með bæjarlistamanni Garðabæjar fimmtudaginn 1. nóvember nk.
Haustvaka Kvennakórs Garðabæjar 25. október nk. kynnt.
Drög að dagskrá Þriðjudagsklassíkur 2019 kynnt.

Greint var frá hugmynd að tónleikum með Maríu Magnúsdóttur núverandi bæjarlistamanni Garðabæjar fimmtudaginn 1. nóvember nk. í Vídalínskirkju. Menningar- og safnanefnd samþykkir að taka þátt í verkefninu og felur upplýsingastjóra að vinna málið áfram.
Haustvaka Kvennakórs Garðabæjar verður haldin fimmtudagskvöldið 25. október nk. í Kirkjuhvoli, safnaðarheimili Vídalínskirkju. Haustvaka Kvennakórsins er dagskrá í tali og tónum þar sem fram koma gestir auk kvennakórsins.
Drög að dagskrá Þriðjudagsklassíkur 2019 kynnt. Stefnt er að þrennum tónleikum frá janúar fram í mars í sal Tónlistarskóla Garðabæjar. Að þessu sinni verður dagskráin í samvinnu við KÍTON, félags kvenna í tónlist en Ingibjörg Guðjónsdóttir er listrænn stjórnandi hátíðarinnar eins og undanfarin ár. Framlögð dagskrá samþykkt.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

12

3. fundur

Margrét Sigurgeirsdóttir forstöðumaður Bókasafns Garðabæjar segir frá starfsemi safnsins og sýnir húsakynni safnsins á Garðatorgi.

Margrét Sigurgeirsdóttir, forstöðumaður Bókasafns Garðabæjar, sagði nefndarmönnum frá starfsemi safnsins og sýndi húsnæðið að Garðatorgi 7. Umræður voru um starfsemina.
Margréti var þökkuð greinargóð kynning á starfsemi safnsins.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

13

2. fundur

Sigríður Sigurjónsdóttir, forstöðumaður Hönnunarsafns Íslands, segir frá starfssemi safnsins og sýnir húsið.

Sigríður Sigurjónsdóttir, forstöðumaður Hönnunarsafnsins, sagði nefndarmönnum frá starfssemi safnsins. Hönnunarsafn Íslands er hönnunar- og fræðamiðstöð og jafnframt miðstöð safnastarfsemi á sviði hönnunar og er eina safnið sinnar tegundar á Íslandi. Safnið varðveitir hátt í 4000 safngripi.
Í lok kynningar forstöðumannsins var farið í skoðunarferð um húsakynni safnsins.

Sigríði var þökkuð greinargóð kynning á starfsemi safnsins.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

14

1. fundur

Stefna í menningarmálum Garðabæjar, yfirferð og kynning.
Málefni á vegum nefndarinnar, yfirferð og kynning.
Verkefni í vinnslu og fjárhagsstaða menningarmála 2018, yfirferð og kynning.
Starfsáætlun 2018-2019 lögð fram.

Skjalið ,,Samantekt um atriði sem varða starfshætti nefnda", dags. 25.06.2018, var lagt fram og kynnt.
Farið var yfir hlutverk og starfsemi menningar- og safnanefndar en nefndin starfar í umboði bæjarstjórnar Garðabæjar að eflingu lista- og menningarlífs í Garðabæ. Farið var yfir glærukynningu þar sem helstu verkefni á sviði menningarmála og menningarstofnanir Garðabæjar voru kynntar.
Stefna í menningarmálum Garðabæjar frá árinu 2005 var lögð fram og kynnt.
Drög að starfsáætlun nefndarinnar fyrir starfsárið 2018-2019 var lögð fram og rædd.

Ákveðið að fundartími nefndarinnar verði föstudagur kl.08:15. Upplýsingastjóri mun uppfæra starfsáætlun nefndarinnar miðað við það og senda aðal- og varamönnum ásamt skjalinu ,,Samantekt um atriði sem varða starfshætti nefnda" og kynningunni á helstu verkefnum á sviði menningarmála og menningarstofnunum bæjarins.