3. fundur
3. fundur
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
í Bókasafni Garðabæjar, Garðatorgi 7
21.09.2018
Kl. 08:15 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Gunnar Valur Gíslason - formaður
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - aðalmaður
- Bjarndís Lárusdóttir - aðalmaður
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
- Hannes Ingi Geirsson - aðalmaður
Starfsmenn
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
Ritari
- Hulda Hauksdóttir
Dagskrá
Málsnúmer 1806461
01
Fjárhagsáætlun 2019 (2019-2022)
Forsendur fjárhagsáætlunar 2019 kynntar. Farið yfir stöðu fjárhags menningarmála fyrir árið 2018.
Forsendur fjárhagsáætlunar 2019 sem voru til umræðu í bæjarráði Garðabæjar 18. september sl. voru kynntar.
Farið var yfir stöðu fjárhags menningarmála fyrir árið 2018. Á næsta fundi nefndarinnar verður vinna við fjárhagsáætlun 2019 rædd áfram.
Málsnúmer 1809236
02
Vinnuaðstaða í Króki veturinn 2018-2019
Farið yfir umsóknir listamanna/fræðimanna um vinnuaðstöðu í burstabænum Króki.
Auglýst var eftir umsóknum listamanna/fræðimanna um vinnuaðstöðu í Króki í ágúst fyrir haustið 2018 og vorið 2019.
Menningar- og safnanefnd samþykkir að úthluta Sigrúnu Jónsdóttur, kt. 3011189-2069, tónlistarmanni, vinnuaðstöðuna í Króki frá 1. október til 30. nóvember 2018 til að vinna að tónsmíðum. Tímabilið frá desember 2018 fram í maí 2019 verður auglýst aftur.
Málsnúmer 1809175
03
Umsókn um styrk vegna útgáfu geisladisks og tónleika til heiðurs Pálmari Ólasyni
Bréf Hrafnkells Pálmarssonar um styrk vegna útgáfu geisladisks og tónleikahalds til heiðurs Pálmari Ólasyni tekið fyrir.
Bréf Hrafnkels Pálmarssonar, dags. 12. september 2018, um styrkbeiðni vegna tónleika og útgáfu á geisladiski til heiðurs Pálmari Ólasyni í nóvember 2018 tekið fyrir.
Upplýsingastjóra var falið að afgreiða erindið í samráði við bæjarstjóra.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1809245
04
Umsókn um styrk vegna hátíðardagskrár Félags áhugamanna um sögu Bessastaðaskóla
Bréf Ásdísar Bragadóttur f.h. Félags áhugamanna um sögu Bessastaðaskóla, dags. 18. september 2018, um styrkbeiðni vegna hátíðardagskrár félagsins 6. október nk. í tilefni af 10 ára afmæli félagsins tekið fyrir.
Menningar- og safnanefnd samþykkir að veita félaginu 200 þúsund kr til viðburðarins. Áhersla er lögð á að dagskráin verði auglýst og kynnt bæjarbúum vel.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1809235
05
Tónlistarveisla í skammdeginu
Farið yfir dagsetningu og hugmyndir um tónlistaratriði vegna tónlistarveislu í skammdeginu á Garðatorgi í byrjun nóvember.
Menningar- og safnanefnd hefur frá árinu 2002 staðið að tónleikum í göngugötunni á Garðatorgi undir yfirskriftinni Tónlistarveisla í skammdeginu. Farið var yfir hvaða tónlistarmenn/hljómsveitir hafa stigið á svið þar frá upphafi. Stefnt er að því að halda næstu tónlistarveislu á Garðatorgi fimmtudagskvöldið 8. nóvember nk. Sama kvöld hefur myndlistarfélagið Gróska sett upp samsýningu félagsmanna í Gróskusalnum og ýmsar verslanir hafa verið með opið lengur.
Umræður voru um tónlistaratriði og upplýsingastjóra falið að vinna áfram að málinu.
Málsnúmer 1808275
06
Heimsókn í Bókasafn Garðabæjar
Margrét Sigurgeirsdóttir forstöðumaður Bókasafns Garðabæjar segir frá starfsemi safnsins og sýnir húsakynni safnsins á Garðatorgi.
Margrét Sigurgeirsdóttir, forstöðumaður Bókasafns Garðabæjar, sagði nefndarmönnum frá starfsemi safnsins og sýndi húsnæðið að Garðatorgi 7. Umræður voru um starfsemina.
Margréti var þökkuð greinargóð kynning á starfsemi safnsins.
Málsnúmer 1808480
07
Beiðni um stuðning við leikhús í Garðabæ
Áframhaldandi umræða frá síðasta fundi. Stefnt að því að skoða umrætt húsnæði á Garðatorgi í lok fundar.
Áframhaldandi umræða frá síðasta fundi um erindi leikfélagsins Friggjar um stuðning við leikhús í húsnæði á Garðatorgi. Fundarmenn skoðuðu húsnæðið að Garðatorgi þar sem leikfélagið Frigg hefur fengið aðstöðu fyrir starfsemi sína.
Vísað til áframhaldandi umræðu um fjárhagsáætlun Garðabæjar 2019.