Umsókn um styrk vegna hátíðardagskrár Félags áhugamanna um sögu Bessastaðaskóla
Málsnúmer 1809245
Ferill máls
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
01
3. fundur
Bréf Ásdísar Bragadóttur f.h. Félags áhugamanna um sögu Bessastaðaskóla, dags. 18. september 2018, um styrkbeiðni vegna hátíðardagskrár félagsins 6. október nk. í tilefni af 10 ára afmæli félagsins tekið fyrir.
Menningar- og safnanefnd samþykkir að veita félaginu 200 þúsund kr til viðburðarins. Áhersla er lögð á að dagskráin verði auglýst og kynnt bæjarbúum vel.