Tónlistarveisla í skammdeginu 2018
Ferill máls
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
01
5. fundur
Farið yfir hvernig tókst til.
Tónlistarveisla í skammdeginu var haldin í sextánda sinn á Garðatorgi fimmtudaginn 8. nóvember sl. Farið var yfir hvernig til tókst. Að þessu sinni var það hljómsveitin Valdimar sem steig á svið fyrir fullu húsi gesta. Samhliða tónlistarveislunni opnaði samsýning myndlistarfélagsins Grósku undir heitinu Leyndarmál. Myndlistarsýningin stendur út næstu helgi.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
02
4. fundur
Farið yfir undirbúning vegna tónlistarveislu í skammdeginu 8. nóvember nk.
Tónlistarveisla í skammdeginu verður haldin fimmtudagskvöldið 8. nóvember nk. Að þessu sinni verður það hljómsveitin Valdimar sem stígur á svið á Garðatorgi í göngugötunni innandyra. Myndlistarfélagið Gróska tekur þátt eins og fyrri ár og einnig verða fyrirtæki á torginu upplýst um viðburðinn og hvött til að taka þátt, t.d. með lengri afgreiðslutíma. Farið var yfir áætlaðan kostnað og greint frá hvernig kynningu á viðburðinum hefur verið háttað undanfarin ár.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
03
3. fundur
Farið yfir dagsetningu og hugmyndir um tónlistaratriði vegna tónlistarveislu í skammdeginu á Garðatorgi í byrjun nóvember.
Menningar- og safnanefnd hefur frá árinu 2002 staðið að tónleikum í göngugötunni á Garðatorgi undir yfirskriftinni Tónlistarveisla í skammdeginu. Farið var yfir hvaða tónlistarmenn/hljómsveitir hafa stigið á svið þar frá upphafi. Stefnt er að því að halda næstu tónlistarveislu á Garðatorgi fimmtudagskvöldið 8. nóvember nk. Sama kvöld hefur myndlistarfélagið Gróska sett upp samsýningu félagsmanna í Gróskusalnum og ýmsar verslanir hafa verið með opið lengur.
Umræður voru um tónlistaratriði og upplýsingastjóra falið að vinna áfram að málinu.