Beint í efni

5. fundur

09.11.2018
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

5. fundur

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

09.11.2018

Kl. 08:15 -

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Gunnar Valur Gíslason - formaður
  • Hrannar Bragi Eyjólfsson - aðalmaður
  • Þorgerður Anna Arnardóttir - varamaður
  • Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
  • Guðlaugur Kristmundsson - varamaður

Starfsmenn

  • Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri

Ritari

  • Hulda Hauksdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1710153

01

Aldarafmæli sjálfstæðis og fullveldis Íslands

Áframhaldandi umræða og afgreiðsla um ljósmyndasýningu/samkeppni í samstarfi við Bókasafn Garðabæjar í tilefni af aldarafmæli sjálfstæðis og fullveldis Íslands. Margrét Sigurgeirsdóttir forstöðumaður Bókasafns Garðabæjar situr fundinn undir þessum lið og næsta lið á eftir.

Margrét Sigurgeirsdóttir, forstöðumaður Bókasafns Garðabæjar, var gestur fundarins undir þessum lið og 2.tl.fundarins.

Áframhaldandi umræður frá síðasta fundi um að ljósmyndasýningu/samkeppni í samstarfi við Bókasafn Garðabæjar í tilefni af aldarafmæli sjálfstæðis og fullveldis Íslands. Farið var yfir með hvaða hætti verður auglýst eftir ljósmyndum og hvernig staðið verði að veitingu viðurkenninga fyrir ljósmyndir. Innsendar myndir skulu sendar inn í síðasta lagi 1. desember 2018, á 100 ára afmæli fullveldisins. Reiknað er með að ljósmyndasýningin verði að mestu á skjám en einnig er gert ráð fyrir að prenta út ákveðinn fjölda mynda og hafa til sýnis.

Málsnúmer 1811078

02

Bókasafn Garðabæjar - framtíðarhúsnæði

Bréf forstöðumanns Bókasafns Garðabæjar um húsnæðismál safnsins tekið fyrir.

Bréf Margrétar Sigurgeirsdóttur, forstöðumanns Bókasafns Garðabæjar, dags. 29. október 2018, um húsnæðismál Bókasafns Garðabæjar tekið fyrir.

Margrét Sigurgeirsdóttir fylgdi málinu eftir og ræddi húsnæðismál safnsins.

Umræður voru um málið. Einnig var rætt um hvernig bókasafn gæti verið kjarnastarfsemi í fjölnota menningar- og fræðamiðstöð eins og kom fram í skýrslu starfshóps þar um frá því í vor.

Margréti var þakkað fyrir komuna á fundinn.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1809235

03

Tónlistarveisla í skammdeginu 2018

Farið yfir hvernig tókst til.

Tónlistarveisla í skammdeginu var haldin í sextánda sinn á Garðatorgi fimmtudaginn 8. nóvember sl. Farið var yfir hvernig til tókst. Að þessu sinni var það hljómsveitin Valdimar sem steig á svið fyrir fullu húsi gesta. Samhliða tónlistarveislunni opnaði samsýning myndlistarfélagsins Grósku undir heitinu Leyndarmál. Myndlistarsýningin stendur út næstu helgi.

Málsnúmer 1808275

04

Verkefni menningar- og safnanefndar 2018-2019

Farið yfir hvernig til tókst með Haustvöku Kvennakórs, tónleika bæjarlistamanns og rætt um önnur verkefni framundan.

Haustvaka Kvennakórs Garðabæjar var haldin 25. október sl. í Kirkjuhvoli. Menningardagskrá kórsins er haldin í samstarfi við menningar- og safnanefnd Garðabæjar og er hluti af samstarfssamningi kórsins við bæinn. Fjölbreytt dagskrá var um kvöldið þar sem Eyþór Eðvarðsson var ræðumaður kvöldsins, nemendur úr Tónlistarskóla Garðabæjar voru með tónlistaratriði og María Magnúsdóttir söngkona og bæjarlistamaður kom fram, auk þess sem Kvennakórinn söng í byrjun og lok dagskrár.

Fimmtudaginn 1. nóvember sl. hélt María Magnúsdóttir bæjarlistamaður tónleika í samstarfi við menningar- og safnanefnd. Tónleikarnir voru haldnir í Vídalínskirkju. Með Maríu á tónleikunum voru þeir Sigurður Flosason saxófónleikari og Agnar Már Magnússon píanóleikari, báðir fyrrum bæjarlistamenn Garðabæjar.

Greint var frá því að undirbúningur fyrir Vetrarhátíð 2019 er hafinn þar sem Garðabær hefur tekið þátt með því að vera með dagskrá í söfnum bæjarins á Safnanótt og í Álftaneslaug á Sundlauganótt. Vetrarhátíð verður haldin aðra helgina í febrúar 2019.



Málsnúmer 1809228

05

Tillaga um stofnun Sköpunarmiðstöðvar (Menningarhús)

Áframhaldandi umræða frá síðasta fundi.

Áframhaldandi umræða frá síðasta fundi. Greint var frá ýmiss konar starfsemi annars staðar sem að einhverju leyti falla undir hugmyndir um sköpunarmiðstöð.

Umræður voru um málið.

Upplýsingastjóra var falið að taka saman upplýsingar um starfsemi Klifsins, Grósku og fleiri félaga í Garðabæ og þá sérstaklega með tilliti til starfs fyrir ungt fólk á sviði sköpunar. Einnig verður aflað upplýsinga um stöðu samstarfs Garðabæjar við Hafnarfjörð og Nýsköpunarmiðstöð um rekstur frumkvöðlasetursins Kveikjunnar.

Málsnúmer 1806461

06

Fjárhagsáætlun 2019 (2019-2022)

Farið yfir frumvarp að fjárhagsáætlun, ábendingar íbúa er varðar menningarmál og farið yfir deildaryfirlit fyrir menningarmál.

Frumvarp til fjárhagsáætlunar 2019 var tekið til fyrstu umræðu í bæjarstjórn Garðabæjar 1. nóvember sl. Síðari umræða í bæjarstjórn er fyrirhuguð 6. desember nk. Íbúar hafa verið hvattir til að senda inn ábendingar og tillögur í tengslum við fjárhagsáætlunina og enn er hægt að senda inn ábendingar.

Farið var yfir ýmsar ábendingar sem hafa borist í tengslum við menningarmál. Ábendingar verða flokkaðar og lagðar fyrir bæjarráð í nóvember. Farið var yfir áætlað deildaryfirlit fyrir menningarmál á árinu 2019.

Formaður greindi frá óskum um viðbótarframlag til nokkurra verkefna á sviði menningarmála sem verið er að vinna úr, m.a. um að setja af stað vinnu starfshóps á næsta ári sem fengi það hlutverk að fylgja eftir greinargerð um fjölnota menningar- og fræðamiðstöð frá því í apríl 2018.