Vettvangsferð í Bókasafn Garðabæjar
Ferill máls
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
01
39. fundur
Í lok hefðbundinnar dagskrár heimsótti menningar- og safnanefnd Bókasafn Garðabæjar við Garðatorg eftir stutta viðkomu á væntanlegu sýningarsvæði minjagarðsins á Hofstöðum undir hringpallinum á torginu.
Í bókasafninu tók Margrét Sigurgeirsdóttir forstöðumaður safnsins á móti nefndinni, ræddi um starfsemi bókasafnsins og framtíðarsýn. Margrét sýndi nefndinni m.a. nýtt rými safnsins á jarðhæð sem notað er af skólahópum, Taflfélagi Garðabæjar og fyrir allskyns viðburði á vegum safnsins.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
02
5. fundur
Bréf forstöðumanns Bókasafns Garðabæjar um húsnæðismál safnsins tekið fyrir.
Bréf Margrétar Sigurgeirsdóttur, forstöðumanns Bókasafns Garðabæjar, dags. 29. október 2018, um húsnæðismál Bókasafns Garðabæjar tekið fyrir.
Margrét Sigurgeirsdóttir fylgdi málinu eftir og ræddi húsnæðismál safnsins.
Umræður voru um málið. Einnig var rætt um hvernig bókasafn gæti verið kjarnastarfsemi í fjölnota menningar- og fræðamiðstöð eins og kom fram í skýrslu starfshóps þar um frá því í vor.
Margréti var þakkað fyrir komuna á fundinn.