39. fundur
39. fundur
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
í Seylunni í Sveinatungu, Garðatorgi
07.03.2022
Kl. 16:15 - 17:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - aðalmaður
- Bjarndís Lárusdóttir - aðalmaður
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
- Hannes Ingi Geirsson - aðalmaður
Starfsmenn
- Ólöf Hulda Breiðfjörð - menningarfulltrúi
- Eiríkur Björn Björgvinsson - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
Ritari
- Ólöf Breiðfjörð
Dagskrá
Málsnúmer 2101137
01
Barnamenningarhátíð í Garðabæ 2022
Menningarfulltrúi kynnti dagskrá fyrir skólahópa og fjölskyldur á Barnamenningarhátíð í Garðabæ dagana 4. - 9. apríl nk. Dagskráin verður fjölbreytt í Hönnunarsafni Íslands, Bókasafni Garðabæjar og á yfirbyggðum torgum. Sýningar á verkum barna verða einnig liður í dagskránni.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2201561
02
Mat á áhrifum ákvarðana sveitarfélaga á börn og rétt barna til þátttöku og áhrifa
Fyrir fundinum lá bréf frá Umboðsmanni barna dags. 28.01.2022 varðandi mat á áhrifum ákvarðana sveitarfélaga á börn og rétt barna til þátttöku og áhrifa.
Markmið menningar- og safnanefndar og menningarfulltrúa varðandi þátttöku barna í menningarviðburðum í Garðabæ miðar ætíð að lýðræðislegri virkni barnanna, að börnin hafi raunveruleg áhrif á framkvæmda viðburða og að þeirra rödd heyrist. Hvort sem um er að ræða listsmiðjur, hönnunarsmiðjur eða tónleika eru börn ekki einungis njótendur eða hlustendur heldur líka virkir þátttakendur.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2203115
03
Minjagarðurinn að Hofsstöðum og Garðabæjarlandið
Fyrir fundinum lágu til kynningar teikningar arkitekts að sýningarrými undir hringpalli við Garðagorg 7. Verkefnið er nú í vinnslu hjá tækni- og umhverfissviði bæjarins og nálgast framkvæmdarstig.
Í lok umræðu var menningarfulltrúa falið að koma á framfæri ábendingum nefndarinnar m.a. varðandi upphitun rýmisins. Kynningarfundir með íbúum og atvinnurekendum á Garðatorgi 7 fara fram 22. og 23. mars nk.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2102115
04
Jazzhátíð Garðabæjar 2022
Menningarfulltrúi greindi frá undirbúningi Jazzhátíðar Garðabæjar 2022 sem fer fram dagana 21. - 24. apríl nk.Gert er ráð fyrir að hátíðin hefjist að kvöldi Sumardagsins fyrsta.
Menningarfulltrúi mun áfram vinna að skipulagningu hátíðarinnar, þ.m.t. dagskrárgerð og kynningarmálum með Sigurði Flosasyni listrænum stjórnanda Jazzhátíðar Garðabæjar.
Málsnúmer 2201263
05
Hvatningarsjóður ungra listamanna og hönnuða, endurskoðun
Bæjarstjórn samþykkti þann 3. mars sl. tillögu nefndarinnar að breytingu á reglum um úthlutun úr Hvatningarsjóði ungra listamanna en breytingin fólst í því að nú geta ungir hönnuðir einnig sótt um styrk úr sjóðnum auk þess sem ungmennaráð Garðabæjar kemur að umfjöllun um umsóknir sem berast áður en til afgreiðslu menningar- og safnanefndar kemur.
Menningarfulltrúi mun nú auglýsa eftir umsóknum um úthlutun úr Hvatningarsjóð ungra hönnuða og listamanna og er umsóknarfrestur til 29. apríl nk.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2102116
06
Bæjarlistamaður Garðabæjar
Menningarfulltrúi hefur auglýst opinberlega eftir tilnefningum til bæjarlistamanns Garðabæjar 2022. Umfjöllun um fyrirliggjandi ábendingar um næsta bæjarlistamann Garðabæjar og heiðursviðurkenningar menningar- og safnanefndar í ár til framlags menningar og lista.
Umræðu verður haldið áfram á næsta fundi.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2105536
07
Menningaruppskeruhátíð 2022
Menningaruppskeruhátíð 2022 verður haldin í síðari hluta maímánaðar í fjölnota salnum Sveinatungu við Garðatorg. Umfjöllun um umgjörð hátíðarinnar í ár.
Umræðu verður haldið áfram á næsta fundi.
Málsnúmer 2011031
08
Menningar- og íþróttahátíð vor 22
Menningarfulltrúi greindi frá skipulagningu menningar- og íþróttahátíðar fyrir alla fjölskylduna í apríl/maí 2022 í Miðgarði en menningarfulltrúi vinnur að undirbúningi menningarviðburða í samráði við Kára Jónsson, íþróttafulltrúa bæjarins.
Málsnúmer 1811078
09
Vettvangsferð í Bókasafn Garðabæjar
Í lok hefðbundinnar dagskrár heimsótti menningar- og safnanefnd Bókasafn Garðabæjar við Garðatorg eftir stutta viðkomu á væntanlegu sýningarsvæði minjagarðsins á Hofstöðum undir hringpallinum á torginu.
Í bókasafninu tók Margrét Sigurgeirsdóttir forstöðumaður safnsins á móti nefndinni, ræddi um starfsemi bókasafnsins og framtíðarsýn. Margrét sýndi nefndinni m.a. nýtt rými safnsins á jarðhæð sem notað er af skólahópum, Taflfélagi Garðabæjar og fyrir allskyns viðburði á vegum safnsins.