Beint í efni

Barnamenningarhátíð í Garðabæ 2022

Málsnúmer 2101137

Ferill máls

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

01

40. fundur

Menningarfulltrúi sagði frá dagskrá Barnamenningarhátíðar sem hófst mánudaginn 4. apríl sl. með dagskrá fyrir 1. bekkinga um sýninguna Sund í Hönnunarsafni Íslands; fyrir 3. bekkinga á Garðatorgi 4 þar sem skip voru gerð úr pappakössum; fyrir 5. bekkinga á Bókasafni Garðabæjar þar sem Gunnar Helgason rithöfundur leiddi lifandi ritsmiðju og fyrir 7. bekkinga í Hönnunarsafni Íslands þar sem regnbogar voru ræddir með þjóðfræði og í kjölfarið regnbogar skapaðir með litum á geisladiska sem síðan voru hengdir í trén á Garðatorgi. Menningarfulltrúi fékk til liðs við sig færa listamenn sem alls tóku á móti um 1.000 börnum. Viðtökur meðal kennara og nemenda voru góðar en 2-3 smiðjur fóru fram daglega 4.- 8. apríl.
Laugardaginn 9. apríl lauk Barnamenningarhátíð í Garðabæ með samskonar dagskrá fyrir alla fjölskylduna og voru smiðjur á Garðatorgi, á Bókasafni og í Hönnunarsafni vel sóttar og mikil ánægja meðal þátttakenda á öllum aldri.

Fylgiskjöl

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

02

39. fundur

Menningarfulltrúi kynnti dagskrá fyrir skólahópa og fjölskyldur á Barnamenningarhátíð í Garðabæ dagana 4. - 9. apríl nk. Dagskráin verður fjölbreytt í Hönnunarsafni Íslands, Bókasafni Garðabæjar og á yfirbyggðum torgum. Sýningar á verkum barna verða einnig liður í dagskránni.

Fylgiskjöl

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

03

31. fundur

Barnamenningarhátíð í Garðabæ í fyrsta sinn, opnuð 4. maí.

Menningarfulltrúi segir frá dagskrá Barnamenningarhátíðar í Garðabæ.

Skólabörn munu fylla Garðatorg af lífi dagna 4. til 7. maí þegar Barnamenningarhátíð í Garðabæ verður haldin í fyrsta sinn í bænum. Að þessu sinni verður þó aðeins boðið upp á dagskrá fyrir skólahópa en ekki fjölskyldur eins og til stóð.

Öll fjölskyldan getur þó notið sýningarinnar Hverafuglar á bjargi á Garðatorgi 1, við hlið Bónus. Á sýningunni verða leirfuglar eftir 600 börn úr 5. ? 7. bekkjum allra grunnskóla Garðabæjar sem hafa heimsótt Hönnunarsafnið frá því í febrúar, sýndir. Á Bókasafni Garðabæjar verður sýningin Kílómeter upp í himininn einnig opin almenningi en afrakstur ljóðasmiðja sem börn á leikskólunum Krakkakoti og Bæjarbóli tóku þátt í verður sýndur.

Dagskrá hátíðarinnar verður á þá leið að 1. bekkingar taka þátt í greina- og ullarsmiðju á Garðatorgi 1; 3. bekkingar í dagskránni Dýrin í Deiglumó á Hönnunarsafni Íslands; 5. bekkingar taka þátt í arabísku danspartýii á Garðatorgi 7; 7. bekkingar hitta Gunnar Helgason í ritsmiðju á Bókasafni Garðabæjar og unglingar bæjarins fá að kynnast hugmyndum stærðfræðingsins Einars Þorsteins í Hönnunarsafni Íslands.

Það er Menningar- og safnanefnd sem kostar hátíðina en með skipulagningu fer menningarfulltrúi bæjarins, Ólöf Breiðfjörð

Til að vekja athygli á hátíðinni eru bæjarbúar hvattir til að setja ramma utanum kynningarmyndir sínar á fésbók en rammin finnst undir heitinu Barnamenningarhátíð í Garðabæ þegar skipt er um kynningarmynd

Fylgiskjöl

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

04

30. fundur

Frestun hátíðar

Menningarfulltrúi greinir frá frestun hátíðar til 4. ? 8. maí en dagskrá fyrir skólahópa mun fara fram í Hönnunarsafni Íslands, Bókasafni Garðabæjar og á yfibyggðum torgum á Garðatorgi. Ef sóttvarnir leyfa mun hátíðinni ljúka með dagskrá fyrir alla fjölskylduna.

Fylgiskjöl

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

05

29. fundur

Dagskrá Barnamenningarhátíðar í Garðabæ 2021

Menningarfulltrúi kynnti dagskrá Barnamenningarhátíðar í Garðabæ sem fer fram dagana 19. - 24. apríl. Dagskráin skiptist í langtímaverkefni, skólahópadagskrá og fjölskyldudagskrá. Langtímaverkefnum lýkur með sýningum, annarsvegar á 500 leirfuglum barna sem sótt hafa smiðjur í Hönnunarsafni Íslands og hinsvegar myndskreyttum ljóðum leikskólabarna á Bókasafni Garðabæjar. Dagskrá fyrir 1., 3., 5., 7. bekk auk unglingastigs fer fram í Hönnunarsafni, Bókasafni Garðabæjar og á yfirbyggðum svæðum á Garðatorgi. Fjölskyldudagskrá laugardaginn 24. apríl fer einnig fram á Bókasafni, Hönnunarsafni, á yfirbyggðum svæðum og í Tónlistarskóla Garðabæjar. Markmið hátíðarinnar er að gefa börnum tækifæri á að taka þátt í að skapa og njóta menningar í sínu nærumhverfi.

Fylgiskjöl

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

06

27. fundur

Menningarfulltrúi greindi frá hugmyndum sínum um árlega hátíð, Barnamenningarhátíð í Garðabæ. Hátíðinni er ætlað að stuðla að enn meiri samvinnu menningarstofnana bæjarins og skólanna og gefa börnum í bæjarfélaginu kost á að taka þátt í að skapa og njóta menningar.

Fylgiskjöl