Beint í efni

40. fundur

04.04.2022
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

40. fundur

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

í Hönnunarsafni við Garðatorg

04.04.2022

Kl. 16:15 - 17:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
  • Hrannar Bragi Eyjólfsson - aðalmaður
  • Bjarndís Lárusdóttir - aðalmaður
  • Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
  • Hannes Ingi Geirsson - aðalmaður

Starfsmenn

  • Ólöf Hulda Breiðfjörð - menningarfulltrúi
  • Eiríkur Björn Björgvinsson - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs

Ritari

  • Ólöf Breiðfjörð

Dagskrá

Málsnúmer 2101137

01

Barnamenningarhátíð í Garðabæ 2022

Menningarfulltrúi sagði frá dagskrá Barnamenningarhátíðar sem hófst mánudaginn 4. apríl sl. með dagskrá fyrir 1. bekkinga um sýninguna Sund í Hönnunarsafni Íslands; fyrir 3. bekkinga á Garðatorgi 4 þar sem skip voru gerð úr pappakössum; fyrir 5. bekkinga á Bókasafni Garðabæjar þar sem Gunnar Helgason rithöfundur leiddi lifandi ritsmiðju og fyrir 7. bekkinga í Hönnunarsafni Íslands þar sem regnbogar voru ræddir með þjóðfræði og í kjölfarið regnbogar skapaðir með litum á geisladiska sem síðan voru hengdir í trén á Garðatorgi. Menningarfulltrúi fékk til liðs við sig færa listamenn sem alls tóku á móti um 1.000 börnum. Viðtökur meðal kennara og nemenda voru góðar en 2-3 smiðjur fóru fram daglega 4.- 8. apríl.

Laugardaginn 9. apríl lauk Barnamenningarhátíð í Garðabæ með samskonar dagskrá fyrir alla fjölskylduna og voru smiðjur á Garðatorgi, á Bókasafni og í Hönnunarsafni vel sóttar og mikil ánægja meðal þátttakenda á öllum aldri.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2102115

02

Jazzhátíð Garðabæjar 2022 í Sveinatungu

Menningarfulltrúi kynnti dagskrá Jazzhátíðar Garðabæjar sem nú verður haldin í 16. sinn dagana 21.-24. apríl nk. Hátíðin samanstendur að þessu sinni af fimm tónleikum sem konur leiða; Ellen Kristjánsdóttir, danska jazzsöngkonan Cathrine Legardh, Marína Ósk Þórólfsdóttir, Sunna Gunnlaugsdóttir og Anna Gréta Sigurðardóttir. Fernir tónleikar fara fram í Sveinatungu og einir í Jónshúsi eins og venja er. Listræna stjórn annast Sigurður Flosason en menningarfulltrúi verkstýrir verkefninu og sér jafnframt um kynningarmál.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2102116

03

Bæjarlistamaður Garðabæjar og heiðurviðurkenningarhafi

Tillaga formanns og menningarfulltrúa samþykkt einróma og verður tillagan send bæjarráði í kjölfarið.

Málsnúmer 2105536

04

Menningaruppskeruhátíð 2022

Samþykkt að Menningaruppskeruhátíð 2022 verði haldin miðvikudaginn 25. maí nk. Þar verður bæjarlistamaður útnefndur, heiðursviðurkenning veitt og tilkynnt um styrkhafa úr Hvatningarsjóði ungra hönnuða og listamanna.

Málsnúmer 2203115

05

Staða framkvæmda við Garðabæjarlandi og minjagarðinn

Menningarfulltrúi greindi frá gangi mála varðandi uppsetningu margmiðlunarsýningarinnar „Garðabæjarlandið“ undir hringpallinum á Garðatorgi 7. Kynningarfundir fyrir atvinnurekendur og íbúa Garðatorgi 7 voru haldnir 22. og 24. mars sl.

Stefnt er að opnun margmiðlunarsýningarinnar verði lokið þann 25. maí nk.

Málsnúmer 2109084

06

Styrkumsókn HIMA

Fyrir fundinum lá umsókn dags. 04.04.2022 frá tónlistarnámskeiðinu HIMA sem haldið verður í júní í annað sinn í Garðabæ. Námskeiðið, sem er alþjóðlegt námskeið fyrir strengjahljóðfæra-og píanónemendur, er vel sótt og vaxandi áhugi meðal nemenda í Tónlistarskóla Garðabæjar. Að þessu sinni hefur námskeiðið fengið aðstöðu í Tónlistarskóla Garðabæjar og í Flataskóla. Alls taka 80 nemendur þátt í námskeiðinu. Menningarfulltrúi leggur áherslu á að þetta alþjóðlega námskeið sé mjög jákvætt fyrir ímynd Garðabæjar og að tónlistarnemendur í bænum geti hér sótt metnaðarfullt námskeið með hinum færustu kennurum í sínum heimabæ.

Menningar- og safnanefnd samþykkir að styrkur að upphæð 400.000 kr. verði veittur en það er sama fjárhæð og veitt veitt var til verkefnisins á árinu 2021.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1906121

07

Jónsmessugleði 2022

Menningarfulltrúi staðfestir að Gróska muni halda Jónsmessugleði með hefðbundu sniði fimmtudagskvöldið 23. júní nk. Skapandi sumarstörf munu einnig taka þátt í hátíðinni.

Málsnúmer 2204017

08

Skapandi sumarstörf

Menningarfulltrúi hefur ráðið Guðnýju Söru Birgisdóttur sem verkefnastjóra skapandi sumarstarfa í ár en Guðný Sara er með BA-gráðu í myndlist, MA-gráðu í hönnun og er að ljúka námi í listkennslufræðum. Guðný Sara fór yfir umsóknir ásamt menningarfulltrúa og hafa 15 einstaklingar verið ráðnir í skapandi sumarstörf hjá Garðabæ í ár. Aðsetur hópsins verður í "Betrunarhúsinu" Garðatorgi 1 og verður dyttað að húsnæðinu áður en hópurinn kemur til starfa þann 7. júní nk.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2201264

09

Tilfærsla á verki eftir Pétur Bjarnason-staða

Framkvæmdasvið Garðabæjar telur ekki ráðlegt að staðsetja verk Péturs Bjarnasonar, Samspil, sem staðsett er í Búðakinn við Reykjanesbraut, við Miðgarð vegna viðkvæmra jarðvegs- og grundunaraðstæðna þar. Menningarfulltrúi mun leita að annarri staðsetningu fyrir listaverkið.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2011031

10

Menningar- og íþróttahátíð vor 22

Stefnt að menningar- og íþróttahátíð í Miðgarði þann 30. apríl nk. Samningaviðræður við Senu standa yfir en stefnt er að því að viðburðastjóri á vegum Senu haldi utanum hátíðarhöldin.

Málsnúmer 2204018

11

Vettvangsheimsókn á Hönnunarsafn Íslands

Sigríður Sigurjónsdóttir forstöðumaður Hönnunarsafns Íslands tók á móti meðlimum nefndarinnar og sagði frá sýningunni Sund sem nú stendur yfir í safninu.