Beint í efni

Gjöf á útilistaverki eftir Pétur Bjarnason myndhöggvara.

Málsnúmer 2201264

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

29. (2224). fundur

Lagt fram erindi Sigríðar Jóhannesdóttur, ekkju Péturs Bjarnasonar myndhöggvara, þar sem fram kemur vilji hennar til að gefa Garðabæ útilistaverkið „Kringja“ eftir Pétur.

Bæjarráð færir Sigríði þakkir fyrir gjöfina og felur menningarfulltrúa í samráði við umhverfissvið að finna útilistaverkinu staðsetningu og undirbúa uppsetningu þess.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

02

40. fundur

Framkvæmdasvið Garðabæjar telur ekki ráðlegt að staðsetja verk Péturs Bjarnasonar, Samspil, sem staðsett er í Búðakinn við Reykjanesbraut, við Miðgarð vegna viðkvæmra jarðvegs- og grundunaraðstæðna þar. Menningarfulltrúi mun leita að annarri staðsetningu fyrir listaverkið.

Fylgiskjöl

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

03

37. fundur

Fyrir liggur erindi dags. 7. desember 2021 frá framkvæmdastjóra Héðins HF þar sem lagt er til að listaverk eftir Pétur Bjarnason sem staðsett er í Búðakinn við Reykjanesbraut og heitir Samspil verði fundinn nýr staður. Verkið var staðsett þarna á sínum tíma þar sem það var vel sýnilegt vegfarendum en nú hefur götumynd breyst og hljóðmön skyggir á verkið. Héðinn hf. gaf Garðabæ verkið í tilefni af stórafmæli fyrirtækisins á sínum tíma.

Menningarfulltrúa falið að ræða við bréfritara og leggja í kjölfarið fram mótaða tillögu í málinu á næsta fundi. Leitast verði við að finna listaverkinu nýjan stað þannig að sem flestir geti notið þessa fallega verks.

Fylgiskjöl