12. (982). fundur
12. (982). fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
03.09.2026
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Jón Þór Eggertsson - 1. varaforseti
- Almar Guðmundsson - bæjarfulltrúi
- Björg Fenger - bæjarfulltrúi
- Margrét Bjarnadóttir - bæjarfulltrúi
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - bæjarfulltrúi
- Stella Stefánsdóttir - bæjarfulltrúi
- Birkir Guðlaugsson - bæjarfulltrúi
- Ýmir Örn Finnbogason - varabæjarfulltrúi
- Kjartan Atli Kjartansson - bæjarfulltrúi
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - bæjarfulltrúi
- Anna Margrét Steingrímsdóttir - varabæjarfulltrúi
Ritari
- Lúðvík Örn Steinarsson
Fundurinn er hljóðritaður og streymt beint á vef bæjarins.
Jón Þór Eggertsson, 1. varaforseti bæjarstjórnar, setti fund og stjórnaði.
Fundargerð bæjarstjórnar frá 20. ágúst 2026 er lögð fram.
Dagskrá
01
Fundargerð bæjarráðs frá 25/8 ´26.
Almar Guðmundsson ræddi 9.tl. innritun nemenda úr Garðabæ í framhaldsskóla.
Fundargerðin sem er 10.tl. er samþykkt samhljóða.
02
Fundargerð bæjarráðs frá 1/9 ´26.
Anna Margrét Steingrímsdóttir ræddi 2.tl. afgreiðslu skipulagsnefndar - Spilda A úr landi Grundar - umsókn um byggingarleyfi. Hún lagði fram eftirfarandi bókun fyrir hönd minnihluta bæjarstjórnar:
"Bæjarfulltrúar minnihlutans leggja til að afgreiðslu byggingarleyfis verði frestað. Ekki er hægt að sjá að heimild sé fyrir veitingastað í aðalskipulagi Garðabæjar, enda er Spilda A úr landi Grundar skilgreint sem opið svæði og ekkert deiliskipulag í gildi á svæðinu. Til þess að veita megi byggingarleyfi án deiliskipulagsgerðar að lokinni grenndarkynningu þarf framkvæmd að vera í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar skv. 44. gr. skipulagslaga.
Samkvæmt gildandi aðalskipulagi Garðabæjar er svæðið skilgreint sem opið svæði til útivistar. Þar er gert ráð fyrir aðstöðu sem tengist almennri útivist, svo sem stígum, áningarstöðum og þjónustu sem veitt er á forsendum útivistar. Fyrirhuguð starfsemi felur hins vegar í sér veislu- og veitingarekstur og viðburðahald fyrir allt að 105 manns. Ekki liggur fyrir að slík starfsemi, veislusalur með rekstrarleyfi í flokki II, rúmist innan þeirrar landnotkunar sem skilgreind er í gildandi aðalskipulagi.
Umsóknaraðili hefur nú þegar framkvæmt í leyfisleysi á svæðinu og haldið úti rekstri án tilskilinna leyfa um nokkurt skeið. Margt fólk er því fylgjandi að rekstur sé á svæðinu, en einnig er mikil andstaða meðal íbúa í næsta nágrenni vegna hávaða. Þá eru umhverfissjónarmið einnig þáttur í málinu, þar sem Breiðabólsstaðatjörn nýtur hverfisverndar. Það er að mati minnihlutans sérstaklega mikilvægt í viðkvæmum aðstæðum sem þessum að byggingarleyfi verði ekki notað sem fyrsta skref í ákvörðun um breytta landnotkun.
Standa þarf vörð um fyrirsjáanleika og jafnræði í stjórnsýslu sveitarfélagsins. Gildandi aðalskipulag á að vera sameiginlegur og fyrirsjáanlegur grundvöllur ákvarðana um landnotkun. Ef verulegar breytingar eru heimilaðar án þess að skýr skipulagsstoð liggi fyrir getur það skapað óvissu um hvernig sambærileg mál verði meðhöndluð síðar og verið tilefni kærumála. Minnihlutinn telur að veiting byggingarleyfis sem gengur gegn gildandi aðalskipulagi setji afar óheppilegt fordæmi og áréttar mikilvægi þess að íbúar í Garðabæ geti gengið að því vísu að aðalskipulag standi.
Anna Margrét Steingrímsdóttir, varabæjarfulltrúi Framsóknar
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, bæjarfulltrúi Garðabæjarlistans
Kjartan Atli Kjartansson, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar"
Björg Fenger tók til máls og ræddi 2.tl. afgreiðslu skipulagsnefndar - Spilda A úr landi Grundar - umsókn um byggingarleyfi. Lagði Björg fram eftirfarandi bókun:
"Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja áherslu á að málið var grenndarkynnt bæði íbúum og landeigendum á Norðurnesi og þeim þannig gefið fullt tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Athugasemdir sem bárust voru teknar til efnislegrar skoðunar og hafa leitt til skýrari og ítarlegri skilyrða um starfsemina í byggingarlýsingu.
Þar eru nú sett afdráttarlaus ákvæði um notkun útisvæða, hávaða og hljóðkerfi, meðal annars um að samkvæmi skuli alfarið færast innandyra á tilteknum tíma og að notkun hljóðkerfa utandyra sé óheimil. Jafnframt er sérstaklega áréttað að fullt tillit skuli tekið til Breiðabólstaðatjarnar og þeirrar hverfisverndar sem þar gildir.
Fullyrðingar minnihlutans um að ekki hafi verið hlustað á íbúa eða að samráð hafi skort standast því ekki skoðun. Við afgreiðsluna liggur skýrt fyrir að athugasemdir íbúa hafa haft bein áhrif og leitt til efnislegra breytinga og strangari skilyrða um starfsemina.
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins telja ekki málefnalegt að fresta afgreiðslu málsins þar sem brugðist hefur verið við þeim sjónarmiðum sem fram hafa komið og skýr skilyrði sett til að gæta hagsmuna nágranna og umhverfis með það að markmiði að leita jafnvægis milli atvinnustarfsemis á svæðinu, hagsmuna íbúa og verndar nærumhverfisins."
Þorbjörg Þorvaldsdóttir tók til máls og ræddi 2.tl. afgreiðslu skipulagsnefndar - Spilda A úr landi Grundar - umsókn um byggingarleyfi.
Björg Fenger tók til máls að nýju og ræddi 2.tl. afgreiðslu skipulagsnefndar - Spilda A úr landi Grundar - umsókn um byggingarleyfi.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir tók til máls að nýju og ræddi 2.tl. afgreiðslu skipulagsnefndar - Spilda A úr landi Grundar - umsókn um byggingarleyfi.
Almar Guðmundsson tók til máls og ræddi 2.tl. afgreiðslu skipulagsnefndar - Spilda A úr landi Grundar - umsókn um byggingarleyfi.
Anna Margrét Steingrímsdóttir tók til máls að nýju og ræddi 2.tl. afgreiðslu skipulagsnefndar - Spilda A úr landi Grundar - umsókn um byggingarleyfi.
Jón Þór Eggertsson ræddi 2.tl. afgreiðslu skipulagsnefndar - Spilda A úr landi Grundar - umsókn um byggingarleyfi.
Kjartan Atli Kjartansson ræddi 2.tl. afgreiðslu skipulagsnefndar - Spilda A úr landi Grundar - umsókn um byggingarleyfi.
Björg Fenger tók til máls að nýju og ræddi 2.tl. afgreiðslu skipulagsnefndar - Spilda A úr landi Grundar - umsókn um byggingarleyfi.
Almar Guðmundsson tók til máls að nýju og ræddi 2.tl. afgreiðslu skipulagsnefndar - Spilda A úr landi Grundar - umsókn um byggingarleyfi, 12.tl. stofnun Hollvinafélags Garðakirkju og 14.tl. gjöf á útilistaverki eftir Pétur Bjarnason myndhöggvara.
Bæjarstjórn óskar Garðbæingum og Garðakirkju til hamingju með 60 ára endurvígsluafmæli kirkjunnar.
Bæjarráð færir Sigríði Jóhannesdóttur, ekkju Péturs Bjarnasonar myndhöggvara, þakkir fyrir gjöfina á útilistaverkingu "Kringja" eftir Pétur.
Fundargerðin sem er 14.tl. er samþykkt samhljóða.
Afgreiðsla mála:
2.2 - 2405208 - Afgreiðsla skipulagsnefndar - Spilda A úr landi Grundar - Umsókn um byggingarleyfi .
Bæjarstjórn samþykkir með átta atkvæðum (AG, BF, MB, HBE, SS, BG, JÞE, ÝÖF) gegn 3 (KAK, ÞÞ, AMS) afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 27. ágúst 2026 varðandi umsókn um byggingarleyfi sem gera m.a. ráð fyrir veislusal til útleigu fyrir allt að 105 manns að lokinni grenndarkynningu í samræmi við 44.gr.skipulagslaga. Samkvæmt byggingarlýsingu er gert ráð fyrir veitingarými í flokki II. Í þeim flokki eru umfangslitlir áfengisveitingastaðir þar sem starfsemin er ekki til þess fallin að valda ónæði í nágrenninu, svo sem með háværri tónlist, og sem almennt kalla ekki á mikið eftirlit og/eða löggæslu. Skipulagsnefnd leggur til að bætt verði við eftirfarandi ákvæðum í byggingarlýsingu á uppdrætti: “- Í samræmi við notkun byggingarinnar í byggingarlýsingu sem veitingarými í flokki II og með tilliti til aðstæðna þá skal samkvæmi vera alfarið innanhúss eftir kl. 23:00 um helgar en kl. 22:00 á virkum dögum. Á sama tíma skal lækka niður í hljóðkerfum og annarri háværri tónlist. - Notkun hljóðkerfa utanhúss er óheimil. - Flugeldanotkun er óheimil nema á þeim tímum sem reglur um almenna notkun kveða á um. - Bálkestir eru óheimilir nema með tilskyldum leyfum. - Ákvæði um notkun hússins sem sett eru fram í þessari byggingarlýsingu skal endurskoða í kjölfar gildistöku deiliskipulags- og aðalskipulagsbreytingar sem nær til svæðisins ef ástæða er til. Umfjöllun byggingarlýsingar um skipulag á svæðinu skal breytt og þar skal standa: - „Lóðin stendur innan svæðis sem skilgreint er sem opið svæði í Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030. Samkvæmt kafla 3.15 í greinargerð aðalskipulagsins kemur fram að á opnum svæðum megi gera ráð fyrir veitingaaðstöðu. Ekkert deiliskipulag er formlega í gildi fyrir svæðið (Norðurnes). „ Skipulagsnefnd mælist til þess að fullt tillit sé tekið til Breiðabólstaðatjarnar sem nýtur hverfisverndar í aðalskipulagi. Ekki hafa verið mótaðar sérstakar reglur um umgengni í og við tjörnina og beinir nefndin því til umhverfisnefndar að skoða hvort ástæða sé til að móta tillögur þar um. Lögð fram tillaga umhverfissviðs að svörum við athugasemdum sem borist hafa og gerir nefndin engar athugasemdir við þau. Meirihluti skipulagsnefndar samþykkti með 4 atkvæðum (BF, ÁSÁ, AEV og KV) gegn einu (EÞE) að gera ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem byggir á grenndarkynntum gögnum og byggingarlýsingu með ofangreindum breytingum.
Fylgiskjöl
2.3 - 2606044 - Afgreiðsla skipulagsnefndar - Bæjargil 3 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi.
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 27. ágúst 2026 varðandi umsókn um byggingarleyfi fyrir gerð bílageymslu á baklóð einbýlishúsalóðarinnar Bæjargils 3 ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar. Byggður flötur byggingar samkvæmt uppdrætti er í samræmi við gildandi deiliskipulag Bæjargils og grenndarkynnta tillögu frá árinu 2008. Umsóknin gerir ráð fyrir gluggalausum kjallara undir bílageymslu og stiga á milli hæða. Nýtingarhlutfall lóðar ef tillit er tekið til flatarmáls kjallara er 0.5 en samkvæmt deiliskipulagi er hámarksnýtingarhlutfall 0.45. Skipulagsnefnd metur umsóknina sem umsókn um breytingu deiliskipulags í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. sömu laga. Grenndarkynna skal eigendum og íbúum að Bæjargili 1, 5, 35 og 37.
Fylgiskjöl
2.4 - 2607139 - Afgreiðsla skipulagsnefndar - Skeiðakur 2 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 27. ágúst 2026 varðandi umsókn um byggingarleyfi sem gerir ráð fyrir nýtingu á gluggalausum kjallararýmum og útitröppu sem tengir þau við verönd. Í skilmálum deiliskipulags grein 1.1.8 segir að stærð neðri hæðar skuli ekki fara yfir 70% af flatarmáli aðalhæðar. Samkvæmt tillögu er flatarmál neðri hæðar orðið stærra en flatarmál efri hæðar. Skipulagsnefnd metur umsóknina sem umsókn um deiliskipulagsbreytingu. Skipulagsnefnd metur breytinguna sem óverulega í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. sömu laga. Grenndarkynna skal eigendum Skeiðakurs 1, 3 og 4 sem og Sandakurs 1 og 3, Seinakurs 2 og Stórakurs 1 og 3.
Fylgiskjöl
2.5 - 2010078 - Afgreiðsla skipulagsnefndar - Garðahverfi. Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Garðahverfis vegna lóðarmarka og byggingareita.
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar með tíu atkvæðum (AG, BF, MB, HBE, SS, BG, JÞE, ÝÖF, KAK, AMS) gegn einu (ÞÞ) afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 27. ágúst 2026 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Garðahverfis öðru sinni eftir auglýsingu en nú að liðnum framlengdum athugasemdafresti. Fyrir mistök láðist að auglýsa kynningu tillögunnar í Lögbirtingarblaði og í samráði við HMS var athugasemdafrestur framlengdur. Engar athugasemdir bárust innan framlengds athugasemdafrests og standa því fyrri samþykktir skipulagsnefndar (30. apríl 2026) og bæjarstjórnar (7. maí 2026).
Fylgiskjöl
2.6 - 2010080 - Afgreiðsla skipulagsnefndar - Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 6. Garðahverfi.
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 27. ágúst 2026 varðandi tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til Garðahverfis og Garðaholts öðru sinni eftir auglýsingu en að liðnum framlengdum athugasemdafresti. Fyrir mistök láðist að auglýsa kynningu tillögunnar í Lögbirtingarblaði og í samráði við HMS var athugasemdafrestur framlengdur. Engar athugasemdir bárust innan framlengds athugasemdafrests og standa því fyrri samþykktir skipulagsnefndar (10. apríl 2026) og bæjarstjórnar (16. apríl 2026).
Fylgiskjöl
2.7 - 2608272 - Afgreiðsla skipulagsnefndar - Hafnarfjarðarvegur dsk frá Lyngási í Engidal.
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 27. ágúst 2026 varðandi tillögu að bráðabirgðadeiliskipulagi Hafnarfjarðarvegar frá Lyngási að Engidal. Bráðabirgðadeiliskipulag Hafnarfjarðarvegar frá Lyngási að Vífilsstaðavegi var samþykkt árið 2019. Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1.mgr. 43.gr. og 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Fylgiskjöl
2.8 - 2606062 - Afgreiðsla skipulagsnefndar - Vinastræti 18-26 - Deiliskipulagsbreyting.
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 27. ágúst 2026 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Urriðaholts norðurhluta 3 og háholts. Tillagan var kynnt á fundi skipulagsnefndar 11. júní síðastliðinn. Hugmyndir sem tillagan byggir á var kynnt á íbúafundi 11. mars síðastliðinn. Í tillögu að deiliskipulagsbreytingu felst að: -Skilmálum á lóð Vinastrætis 20-24 er breytt þannig að lóðin verður eftir breytingu lóð fyrir atvinnu og íbúðarhúsnæði. -Samtals er heimilt að byggja allt að 35 íbúðir á lóð, þar af allt að 12 íbúðir minni en 90m² birt stærð -Lóð Vinastrætis 18 er felld niður og verður eftir breytingu hluti af torgi. Lóð nr. 20-24 stækkar en lóð nr. 26 minnkar. -Byggingarreitur á lóð nr. 18 er felldur niður. -Byggingarreitir og kennisnið á lóð Vinastrætis 20-24 breytast. -Samhliða deiliskipulagsbreytingunni er gerð númerabreyting á lóðum. -Lóð Vinastrætis 20-24 verður eftir breytingu Vinastræti 18-22. Lóð Vinastrætis 26 verður eftir breytingu Vinastræti 24. Lóð Vinastrætis 28 verður eftir breytingu Vinastræti 26. -Kvöð er um gegnumakstur og samnýtingu bílastæða á lóðum Vinastrætis 18-22 og Vinastrætis 24. Sjá skilmálatöflu á skýringaruppdrætti. -Bílastæðakrafa fyrir íbúðir er tvö stæði fyrir íbúðir stærri en 90 m² en eitt stæði fyrir íbúðir minni en 90 m² og bílastæðakrafa fyrir atvinnuhúsnæði er 1 stæði fyrir hverja 35 m² atvinnuhúsnæðis. -Á lóð skulu vera 10 stæði fyrir íbúðir og öll stæði fyrir atvinnurými, staðsett skv. skipulagsuppdrætti og mæliblaði. Öll bílastæði skulu vera innan lóðar. Aðkoma að bílastæðum á lóð og bílgeymslu er frá Vinastræti. Kvöð er um aðkomu að bílastæðalóð og gegnumakstur á lóð. Rekstur, umhirða og viðhald bílastæða og akstursleiða á lóð skal vera á sameiginlegri ábyrgð eigenda húsa á lóðinni í hlutfalli við skiptingu bílastæða á lóðinni. Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Fallið er frá gerð skipulagslýsingar og forkynningu þar sem að tillagan samræmist gildandi aðalskipulagi.
Fylgiskjöl
03
Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 20/8 ´26.
Birkir Guðlaugsson ræddi 2.tl. íþróttir barna og frístund og 5.-31.tl. umsóknir um ferðastyrki íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar.
Kjartan Atli Kjartansson ræddi 2.tl. íþróttir barna og frístund og 5.-31.tl. umsóknir um ferðastyrki íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar.
Fundargerðin er lögð fram.
04
Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 18/8 ´26.
Stella Stefánsdóttir ræddi 1.tl. menningardagskrá haust 2026, 2.tl. menningardagskrá fyrir skólahópa haust 2026 og 3.tl. skapandi sumarstörf 2026.
Kjartan Atli Kjartansson ræddi 1.tl. menningardagskrá haust 2026 og fundargerðina.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir ræddi 1.tl. menningardagskrá haust 2026, 2.tl. menningardagskrá fyrir skólahópa haust 2026 og fundargerðina.
Fundargerðin er lögð fram.
05
Fundargerð skipulagsnefndar frá 27/8 ´26.
Björg Fenger ræddi fundargerðina.
Fundargerðin er lögð fram.
06
Fundargerð velferðarráðs frá 21/8 ´26.
Ýmir Örn Finnbogason ræddi 1.tl. aðgerðaráætlun Farsældarráðs höfuðborgarsvæðisins 2026-2030.
Fundargerðin er lögð fram.
09
Fundargerð samstarfsnefndar skíðasvæðanna frá 19/8 ´26.
Fundargerðin er lögð fram.
10
Samþykktir Garðabæjar - endurskoðun.
Almar Guðmundsson fór yfir tillögur að breytingum á samþykktum um stjórn Garðabæjar.
Anna Margrét Steingrímsdóttir tók til máls.
Björg Fenger tók til máls.
Kjartan Atli Kjartansson tók til máls.
Almar Guðmundsson tók til máls að nýju.
Bæjarstjórn samþykkir með 8 atkvæðum (AG, BF, MB, HBE, SS, BG, JÞE, ÝÖF) tillögu að breytingu á samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022. 3 (KAK, AMS, ÞÞ) sátu hjá við afgreiðslu málsins.
Samþykkt að breytingum á samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022 skal send innviðaráðuneytinu til staðfestingar.
11
Reglugerð Tónlistarskóla Garðabæjar.
Almar Guðmundsson tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða breytingar á reglugerð Tónlistarskóla Garðabæjar.
12
Stofnskrá fyrir Hönnunarsafn Íslands.
Almar Guðmundsson tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða breytingar á stofnskrá fyrir Hönnunarsafn Íslands.
13
Tilnefning áheyrnarfulltrúa í íþrótta- og tómstundaráð.
Lögð fram tillaga um Guðjón Pétur Lýðsson (G) og Vilborgu Önnu Strange Guðjónsdóttur (S) sem aðaláheyrnarfulltrúa og Hannes Inga Geirsson (G) og Ögmund Árna Sveinsson (S) sem varaáheyrnarfulltrúa í Íþrótta- og tómstundaráði.
Samþykkt samhljóða.