Beint í efni

Fundargerð bæjarráðs frá 1/9 ´26.

Málsnúmer 2608036F

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

12. (982). fundur

Anna Margrét Steingrímsdóttir ræddi 2.tl. afgreiðslu skipulagsnefndar - Spilda A úr landi Grundar - umsókn um byggingarleyfi. Hún lagði fram eftirfarandi bókun fyrir hönd minnihluta bæjarstjórnar:

"Bæjarfulltrúar minnihlutans leggja til að afgreiðslu byggingarleyfis verði frestað. Ekki er hægt að sjá að heimild sé fyrir veitingastað í aðalskipulagi Garðabæjar, enda er Spilda A úr landi Grundar skilgreint sem opið svæði og ekkert deiliskipulag í gildi á svæðinu. Til þess að veita megi byggingarleyfi án deiliskipulagsgerðar að lokinni grenndarkynningu þarf framkvæmd að vera í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar skv. 44. gr. skipulagslaga.

Samkvæmt gildandi aðalskipulagi Garðabæjar er svæðið skilgreint sem opið svæði til útivistar. Þar er gert ráð fyrir aðstöðu sem tengist almennri útivist, svo sem stígum, áningarstöðum og þjónustu sem veitt er á forsendum útivistar. Fyrirhuguð starfsemi felur hins vegar í sér veislu- og veitingarekstur og viðburðahald fyrir allt að 105 manns. Ekki liggur fyrir að slík starfsemi, veislusalur með rekstrarleyfi í flokki II, rúmist innan þeirrar landnotkunar sem skilgreind er í gildandi aðalskipulagi.

Umsóknaraðili hefur nú þegar framkvæmt í leyfisleysi á svæðinu og haldið úti rekstri án tilskilinna leyfa um nokkurt skeið. Margt fólk er því fylgjandi að rekstur sé á svæðinu, en einnig er mikil andstaða meðal íbúa í næsta nágrenni vegna hávaða. Þá eru umhverfissjónarmið einnig þáttur í málinu, þar sem Breiðabólsstaðatjörn nýtur hverfisverndar. Það er að mati minnihlutans sérstaklega mikilvægt í viðkvæmum aðstæðum sem þessum að byggingarleyfi verði ekki notað sem fyrsta skref í ákvörðun um breytta landnotkun.

Standa þarf vörð um fyrirsjáanleika og jafnræði í stjórnsýslu sveitarfélagsins. Gildandi aðalskipulag á að vera sameiginlegur og fyrirsjáanlegur grundvöllur ákvarðana um landnotkun. Ef verulegar breytingar eru heimilaðar án þess að skýr skipulagsstoð liggi fyrir getur það skapað óvissu um hvernig sambærileg mál verði meðhöndluð síðar og verið tilefni kærumála. Minnihlutinn telur að veiting byggingarleyfis sem gengur gegn gildandi aðalskipulagi setji afar óheppilegt fordæmi og áréttar mikilvægi þess að íbúar í Garðabæ geti gengið að því vísu að aðalskipulag standi.

Anna Margrét Steingrímsdóttir, varabæjarfulltrúi Framsóknar

Þorbjörg Þorvaldsdóttir, bæjarfulltrúi Garðabæjarlistans

Kjartan Atli Kjartansson, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar"

Björg Fenger tók til máls og ræddi 2.tl. afgreiðslu skipulagsnefndar - Spilda A úr landi Grundar - umsókn um byggingarleyfi. Lagði Björg fram eftirfarandi bókun:

"Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja áherslu á að málið var grenndarkynnt bæði íbúum og landeigendum á Norðurnesi og þeim þannig gefið fullt tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Athugasemdir sem bárust voru teknar til efnislegrar skoðunar og hafa leitt til skýrari og ítarlegri skilyrða um starfsemina í byggingarlýsingu.

Þar eru nú sett afdráttarlaus ákvæði um notkun útisvæða, hávaða og hljóðkerfi, meðal annars um að samkvæmi skuli alfarið færast innandyra á tilteknum tíma og að notkun hljóðkerfa utandyra sé óheimil. Jafnframt er sérstaklega áréttað að fullt tillit skuli tekið til Breiðabólstaðatjarnar og þeirrar hverfisverndar sem þar gildir.

Fullyrðingar minnihlutans um að ekki hafi verið hlustað á íbúa eða að samráð hafi skort standast því ekki skoðun. Við afgreiðsluna liggur skýrt fyrir að athugasemdir íbúa hafa haft bein áhrif og leitt til efnislegra breytinga og strangari skilyrða um starfsemina.

Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins telja ekki málefnalegt að fresta afgreiðslu málsins þar sem brugðist hefur verið við þeim sjónarmiðum sem fram hafa komið og skýr skilyrði sett til að gæta hagsmuna nágranna og umhverfis með það að markmiði að leita jafnvægis milli atvinnustarfsemis á svæðinu, hagsmuna íbúa og verndar nærumhverfisins."

Þorbjörg Þorvaldsdóttir tók til máls og ræddi 2.tl. afgreiðslu skipulagsnefndar - Spilda A úr landi Grundar - umsókn um byggingarleyfi.

Björg Fenger tók til máls að nýju og ræddi 2.tl. afgreiðslu skipulagsnefndar - Spilda A úr landi Grundar - umsókn um byggingarleyfi.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir tók til máls að nýju og ræddi 2.tl. afgreiðslu skipulagsnefndar - Spilda A úr landi Grundar - umsókn um byggingarleyfi.

Almar Guðmundsson tók til máls og ræddi 2.tl. afgreiðslu skipulagsnefndar - Spilda A úr landi Grundar - umsókn um byggingarleyfi.

Anna Margrét Steingrímsdóttir tók til máls að nýju og ræddi 2.tl. afgreiðslu skipulagsnefndar - Spilda A úr landi Grundar - umsókn um byggingarleyfi.

Jón Þór Eggertsson ræddi 2.tl. afgreiðslu skipulagsnefndar - Spilda A úr landi Grundar - umsókn um byggingarleyfi.

Kjartan Atli Kjartansson ræddi 2.tl. afgreiðslu skipulagsnefndar - Spilda A úr landi Grundar - umsókn um byggingarleyfi.

Björg Fenger tók til máls að nýju og ræddi 2.tl. afgreiðslu skipulagsnefndar - Spilda A úr landi Grundar - umsókn um byggingarleyfi.

Almar Guðmundsson tók til máls að nýju og ræddi 2.tl. afgreiðslu skipulagsnefndar - Spilda A úr landi Grundar - umsókn um byggingarleyfi, 12.tl. stofnun Hollvinafélags Garðakirkju og 14.tl. gjöf á útilistaverki eftir Pétur Bjarnason myndhöggvara.

Bæjarstjórn óskar Garðbæingum og Garðakirkju til hamingju með 60 ára endurvígsluafmæli kirkjunnar.

Bæjarráð færir Sigríði Jóhannesdóttur, ekkju Péturs Bjarnasonar myndhöggvara, þakkir fyrir gjöfina á útilistaverkingu "Kringja" eftir Pétur.


Fundargerðin sem er 14.tl. er samþykkt samhljóða.

Afgreiðsla mála: