Beint í efni

Samþykktir Garðabæjar - endurskoðun

Málsnúmer 2208694

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

10. (980). fundur

Almar Guðmundsson tók til máls.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að vísa tillögu að breytingum á samþykktum Garðabæjar til síðari umræðu í bæjarstjórn.

Bæjarráð Garðabæjar

02

21. (2216). fundur

Lögð fram drög að endurskoðuðum samþykktum um stjórn Garðabæjar.

Bæjarráð vísar endurskoðun á samþykktum um stjórn Garðabæjar til fyrri umræðu í bæjarstjórn.

Bæjarráð Garðabæjar

03

36. (2043). fundur

Bæjarráð telur athugasemdir ráðuneytisins til bóta varðandi skýrleika samþykktanna og telur rétt að taka þær til greina í endanlegri gerð samþykktanna að undanskilinni tillögu að ákvæði 11. tl., við 5. gr. samþykktanna.

Bæjarstjórn Garðabæjar

04

12. (908). fundur

Almar Guðmundsson, bæjarstjóri lagði fram svohljóðandi breytingartillögu við samþykktir um stjórn Garðabæjar.

Á eftir 12. lið D. liðar 1. mgr. 56. gr. bætist við nýr liður og verður svohljóðandi:

13. Ungmennaráð. Ellefu fulltrúa á aldrinum 14 - 20 ára í ungmennaráð Garðabæjar að fengnum tilnefningum og skulu þeir eiga lögheimili í Garðabæ, sbr. erindisbréf samþykkt á fundi bæjarstjórnar 7. maí 2015.“

Björg Fenger, tók til máls.

Guðlaugur Kristmundsson, tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun.

„Viðreisn fagnar því að bæjarstjórn sameinist um þá upphaflegu hugmynd Viðreisnar um að styrkja stoðir lýðræðislegrar umræðu á vettvangi sveitarfélagsins með því að gera breytingar á samþykktum Garðabæjar með þessum hætti. Það skiptir máli að þeir flokkar sem ná kjöri til bæjarstjórnar eigi sæti við borðið til lýðræðislegrar umræðu í helstu nefndum sveitarfélagsins og gefi þannig umræðunni frekari breidd.“

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða framkomna breytingartillögu við samþykktir um stjórn Garðabæjar.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða samþykktir um stjórn Garðabæjar með áorðinni breytingartillögu.

Bæjarstjórn Garðabæjar

05

11. (907). fundur

Almar Guðmundsson, bæjarstjóri fylgdi úr hlaði endurskoðun á samþykktum um stjórn Garðabæjar og lagði til að vísa samþykktunum til síðari umræðu í bæjarstjórn.

Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls.

Gunnar Valur Gíslason, tók til máls.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að vísa samþykktum um stjórn Garðabæjar til síðari umræðu í bæjarstjórn.

Bæjarráð Garðabæjar

06

30. (2037). fundur

Lögð fram drög að endurskoðuðum samþykktum um stjórn Garðabæjar.

Bæjarráð vísar endurskoðun á samþykktum um stjórn Garðabæjar til fyrri umræðu í bæjarstjórn.