Beint í efni

21. (2216). fundur

16.06.2026
Bæjarráð Garðabæjar

21. (2216). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

16.06.2026

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - formaður
  • Margrét Bjarnadóttir - aðalmaður
  • Hrannar Bragi Eyjólfsson - aðalmaður
  • Stella Stefánsdóttir - aðalmaður
  • Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
  • Kjartan Atli Kjartansson - áheyrnarfulltrúi
  • Hlynur Elías Bæringsson - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
  • Lúðvík Örn Steinarsson - sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
  • Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri velferðarsviðs
  • Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Ágúst Þór Guðmundsson - sviðsstjóri þróunar- og þjónustusviðs
  • Guðný Hrönn Antonsdóttir - samskipta- og kynningarfulltrúi

Ritari

  • Lúðvík Örn Steinarsson

Dagskrá

Málsnúmer 2410186

01

Skuldabréfaútboð Garðabæjar.

Gerð grein fyrir tilboðum í lántöku. Skuldabréfaútboði Garðabæjar í skuldabréfaflokknum GARD 11 1 lauk 15. júní 2026. Heildartilboð í flokkinn voru 5 talsins og námu samtals 2.120 að nafnvirði. Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tilboð samkvæmt útboðinu að fjárhæð allt að 1.068 m.kr. að nafnvirði, með ávöxtunarkröfu upp á 3,95%. Markaðsvirði útgáfunnar nemur 1.499.967.541 kr.

Fyrir útboðið var útistandandi í skuldabréfaflokknum GARD 11 1 að nafnvirði 6.233,5 m.kr., en heildarstærð flokksins eftir útboðið verður því 7.301,5 m.kr. að nafnvirði. Framangreindar fjárhæðir eru í samræmi við samþykktar lántökuheimildir.

Málsnúmer 2605432

02

Ráðning bæjarstjóra.

Lagður fram ráðningarsamningur bæjarstjóra.

Samningurinn verður lagður fram í bæjarstjórn til staðfestingar.

Málsnúmer 2405208

03

Afgreiðsla skipulagsnefndar - Spilda A úr landi Grundar - Umsókn um byggingarleyfi -

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 11. júní 2026 varðandi umsókn um byggingarleyfi fyrir spildu A úr landi Grundar, sem gerir ráð fyrir rýmum sem tengjast veislu-og veitingaþjónustu í núverandi atvinnuhúsnæði.

Ekkert deiliskipulag er í gildi á Norðurnesi. Samkvæmt aðalskipulagi er byggingin staðsett á opnu svæði.

Skipulagsnefnd vísar umsókninni til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Grenndarkynna skal íbúum við Fálkastíg, Blikastíg, Grund, Breiðabólstöðum, Hvol, Jörfa og Seilu sem og landeigendum á Norðurnesi.

Málsnúmer 2605382

04

Útboð á frístundaakstri 2026-2030.

Lögð fram útboðs- og verklýsing vegna frístundaaksturs 2026-2030.

Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi útboðs- og verklýsingu og felur fræðslu- og frístundasviði framkvæmd útboðsins fyrir hönd Garðabæjar.

Málsnúmer 2512335

05

Nefnd um uppbyggingu hjúkrunarheimilis í Vetrarmýri.

Bæjarstjóri fjallaði um undirbúning á uppbyggingu hjúkrunarheimilis í Vetrarmýri og verkefnum sem því tengjast.

Bæjarráð samþykkir að tilnefna Hörpu Rós Gísladóttur, Maríu Guðjónsdóttur og Katrínu Júlíusdóttur í spretthóp um uppbyggingu hjúkrunarheimilis og lífsgæðakjarna í Vetrarmýri.

Hópurinn hefur það hlutverk að vinna greiningu á þörfum hvað varðar starfsemi á fyrstu hæð nýs hjúkrunarheimilis ásamt því að meta möguleika á því hvort og hvernig Garðabær gæti nýtt hluta rýmisins undir starfsemi á sínum vegum. Hópurinn mun að þessu leyti vinna efni sem nýtist við gerð útboðslýsingar á húsnæði undir hjúkrunarheimili í Vetrarmýri.

Þá skal hópurinn vinna nánari útfærslur á uppbyggingu íbúða fyrir eldri íbúa í grennd við Hjúkrunarheimilið þannig að öflugur lífsgæðakjarni rísi í Vetrarmýri.

Hópurinn skal skila af sér áfangaskýrslu fyrir lok október 2026, en skili þeim hugmyndum sem lúta að útboðsferlinu í lok ágústmánaðar. Í framhaldi af útgáfu áfangaskýrslu verði metið hvort þörf sé á að hópurinn haldi áfram störfum.

Málsnúmer 2603111

06

Undirbúningsvinna vegna Þorláksskóla.

Kynnt var staða við undirbúning starfsemi Þorláksskóla, en ráðgert er að skólinn hefji starfsemi í haust.

Málsnúmer 2208694

07

Samþykktir Garðabæjar - endurskoðun á samþykktum.

Lögð fram drög að endurskoðuðum samþykktum um stjórn Garðabæjar.

Bæjarráð vísar endurskoðun á samþykktum um stjórn Garðabæjar til fyrri umræðu í bæjarstjórn.

Málsnúmer 2606256

08

Stofnskrá fyrir Hönnunarsafn Íslands - endurskoðun á stofnskrá.

Lögð fram drög að endurskoðaðri stofnskrá fyrir Hönnunarsafn Íslands.

Bæjarráð vísar endurskoðaðri stofnskrá fyrir Hönnunarsafn Íslands til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Málsnúmer 2606257

09

Reglugerð Tónlistarskóla Garðabæjar - endurskoðun á reglugerð.

Lögð fram drög að endurskoðaðri reglugerð Tónlistarskóla Garðabæjar.

Bæjarráð vísar endurskoðaðri reglugerð Tónlistarskóla Garðabæjar til fyrri umræðu í bæjarstjórn.

Málsnúmer 2606317

10

Reglur um stuðning við afreksungmenni í íþróttum í sumarstörfum hjá Garðabæ

Lagðar fram reglur um stuðning við afreksungmenni í íþróttum í sumarstöfum hjá Garðabæ.

Bæjarráð vísar reglunum til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Málsnúmer 2606236

11

Styrkbeiðni - Garðálfar, kór eldri borgara á Álftanesi

Beiðni Garðálfa, kórs eldri borgara á Álftanesi um styrk til starfsemi kórsins.

Bæjarráð vísar málinu til úthlutunar styrkja samkvæmt fjárhagsáætlun.