Reglur um stuðning við afreksungmenni í íþróttum í sumarstörfum hjá Garðabæ
Ferill máls
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
01
1. fundur
Lagt fram til kynningar.
Reglur um stuðning við afreksungmenni í íþróttum í sumarstörfum hjá Garðabæ kynntar.
ÍTG leggur áherslu á að kynna þetta vel fyrir félögum þjálfurum og ungmennum.
Bæjarstjórn Garðabæjar
02
10. (980). fundur
Hlynur Bæringsson tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun:
"Eins og ævinlega styður Framsókn við breytingar til góðs fyrir íþrótta og æskulýðsstarf í landinu og fagnar þeim breytingum sem hér eru lagðar til þó best hefði verið að þær hefðu farið í gegnum ÍTG við úrvinnsluna.
Um er að ræða jákvæða þróun sem eykur stuðning við afreksunglinga í Garðabæ og auðveldar þeim að samræma þátttöku í landsliðsverkefnum og sumarstörf hjá bænum. Reglurnar tryggja að ungmenni sem sinna landsliðsæfingum vegna landsliðsverkefna þurfi ekki að verða af launum á meðan, sem er mikilvægt skref í átt að öflugra stuðningsumhverfi fyrir afreksíþróttafólk."
Kjartan Atli Kjartansson tók til máls.
Björg Fenger tók til máls.
Bæjarstjórn óskar Gunnlaugi Árna Sveinssyni, kylfingi úr GKG, til hamingju með glæsilegan árangur og óskar honum góðs gengis á Opna bandaríska meistaramótinu í golfi.
Bæjarstjórn samþykkir fyrirliggjandi tillögu um reglur um stuðning við afreksungmenni í íþróttum í sumarstörfum hjá Garðabæ.
Fylgiskjöl
Bæjarráð Garðabæjar
03
21. (2216). fundur
Lagðar fram reglur um stuðning við afreksungmenni í íþróttum í sumarstöfum hjá Garðabæ.
Bæjarráð vísar reglunum til afgreiðslu bæjarstjórnar.