10. (980). fundur
10. (980). fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
18.06.2026
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Anna Ragnheiður Möller - forseti bæjarstjórnar
- Almar Guðmundsson - bæjarfulltrúi
- Björg Fenger - bæjarfulltrúi
- Margrét Bjarnadóttir - bæjarfulltrúi
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - bæjarfulltrúi
- Stella Stefánsdóttir - bæjarfulltrúi
- Ýmir Örn Finnbogason - varabæjarfulltrúi
- Jón Þór Eggertsson - bæjarfulltrúi
- Kjartan Atli Kjartansson - bæjarfulltrúi
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - bæjarfulltrúi
- Hlynur Elías Bæringsson - bæjarfulltrúi
Ritari
- Lúðvík Örn Steinarsson
Fundurinn er hljóðritaður og streymt beint á vef bæjarins.
Anna Ragnheiður Möller, forseti bæjarstjórnar, setti fund og stjórnaði. Fundargerð bæjarstjórnar frá 4. júní 2026 er lögð fram.
Dagskrá
Málsnúmer 2605432
01
Ráðning bæjarstjóra
Björg Fenger tók til máls.
Hlynur Bæringsson tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun:
"Minnihluti bæjarstjórnar, Framsókn, Samfylkingin og Garðabæjarlistinn vilja vekja athygli á starfskjörum bæjarstjóra.
Frá síðasta ráðningarsamningi árið 2022 hafa föst laun bæjarstjóra hækkað um rúmlega 500.000 kr á mánuði og heildarkostnaður sveitarfélagsins vegna launa, bifreiðastyrks og lífeyrissjóðsframlags hækkað um nærri 580 þúsund krónur á mánuði. Sú hækkun skýrist vitaskuld af því að laun bæjarstjóra eru tengd launavísitölu, fyrirkomulagi sem þorri launafólks nýtur ekki og þarf þess í stað að semja um í kjaraviðræðum.
Minnihlutinn gerir sér grein fyrir mikilvægi starfsins og þeirri ábyrgð sem því fylgir. Hins vegar teljum við eðlilegt að vekja athygli á þessum kjörum í ljósi þess að undanfarin misseri hefur verið kallað eftir auknu aðhaldi í opinberum fjármálum til að styðja við baráttuna gegn verðbólgu og til að hagræða í rekstri hins opinbera.
Minnihlutinn telur mikilvægt að sömu sjónarmið um aðhald, hófsemi og ábyrga meðferð almannafjár gildi einnig þegar kemur að kjörum æðstu stjórnenda sveitarfélagsins. Best væri ef þeir leiddu veginn með góðu fordæmi. Eðlilegra væri að samningurinn fæli í sér reglubundið endurskoðunarákvæði í stað sjálfvirkrar vísitölutengingar launa. Slíkt hefði skapað aukið svigrúm til að meta kjörin í ljósi aðstæðna hverju sinni og samræmst betur þeim kröfum um aðhald sem gerðar eru annars staðar í opinberum rekstri."
Björg Fenger tók til máls að nýju og lagði fram eftirfarandi bókun:
"Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins benda á að ráðningarkjör bæjarstjóra eru ákveðin af bæjarstjórn á grundvelli ábyrgðar, umfangs og eðlis starfsins.
Bæjarstjóri Garðabæjar ber ábyrgð á daglegri stjórnun sveitarfélags sem sinnir fjölbreyttri þjónustu við þúsundir íbúa, stýrir umfangsmiklum rekstri og fjárfestingum og veitir yfir hundruðum starfsmanna forystu.
Mikilvægt er að um ráðningarkjör bæjarstjóra ríki skýrleiki og gagnsæi. Sá samningur sem hér liggur fyrir uppfyllir þau markmið og byggir að öðru leyti á þeim grunni sem bæjarstjórn hefur áður samþykkt.
Sú framkvæmd hefur almennt tíðkast hjá stærri sveitarfélögum landsins að grunnlaun bæjarstjóra séu tengd launavísitölu. Slík tenging tryggir að launakjör fylgi almennri þróun á vinnumarkaði með gagnsæjum og málefnalegum hætti í stað þess að vera háð reglulegum pólitískum ákvörðunum. Fyrirkomulagið stuðlar að fyrirsjáanleika, stöðugleika og faglegri umgjörð um ráðningarkjör æðsta stjórnanda sveitarfélagsins."
Hlynur Bæringsson tók til máls að nýju.
Bæjarstjórn samþykkir með 8 atkvæðum (AG,BF,MB,HBE,SS,JÞE,ARM,ÝÖF) fyrirliggjandi ráðningarsamning við Almar Guðmundsson, bæjarstjóra Garðabæjar. KAK, ÞÞ, HEB sátu hjá.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2606006F
02
Fundargerð bæjarráðs frá 9/6 ´26.
Fundargerðin sem er 17.tl. er samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 2606020F
03
Fundargerð bæjarráðs frá 16/6'26.
Stella Stefánsdóttir ræddi 10.tl. reglur um stuðning við afreksungmenni í íþróttum í sumarstörfum hjá Garðabæ.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir ræddi 4.tl. útboð á frístundaakstri 2026-2030.
Fundargerðin sem er 11.tl. er samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 2606013F
04
Fundargerð skipulagsnefndar frá 11/6 ´26.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2606010F
05
Fundargerð umhverfisnefndar frá 16/6'26.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2601508
06
Fundargerð stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 8/5 ´26.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2601375
07
Fundargerðir stjórnar SSH frá 4/5 og 11/5 ´26.
Fundargerðirnar eru lagðar fram.
Málsnúmer 2601544
08
Fundargerðir stjórnar Strætó bs. frá 17/4 og 13/5 ´26.
Hrannar Bragi Eyjólfsson ræddi fundargerð 17. apríl 2026, 1.tl. nýtt félag - staðan, 2.tl. fargjaldatekjur, 3.tl. gjaldskrármál og fundargerð 13. maí 2026 2.tl. nýtt félag - eignamat og staðan.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir ræddi fundargerðirnar og fundargerð 17. apríl 2026, 1.tl. nýtt félag - staðan.
Hrannar Bragi Eyjólfsson tók til máls að nýju og ræddi fundargerð 17. apríl 2026, 1.tl. nýtt félag - staðan.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir tók til máls að nýju og ræddi fundargerð 17. apríl 2026, 1.tl. nýtt félag - staðan.
Fundargerðirnar eru lagðar fram.
Málsnúmer 2602076
09
Fundargerð heilbrigðisnefndar frá 2/6 ´26.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2601279
10
Fundargerðir stjórnar SORPU frá 11/3'26, 18/3'26, 15/4'26, 13/5'26 og 29/5'26.
Almar Guðmundsson ræddi fundargerðirnar.
Fundargerðirnar eru lagðar fram.
Málsnúmer 2410186
11
Skuldabréfaútboð Garðabæjar
Almar Guðmundsson tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir að taka tilboði í lántöku að fjárhæð kr. 1.068.000.000 að nafnverði, með ávöxtunarkröfu upp á 3,95%. Markaðsvirði útgáfunnar nemur kr. 1.499.967.541.
Fyrir útboðið var útistandandi í skuldabréfaflokknum GARD 11 1 að nafnvirði KR. 6.233.500.000, en heildarstærð flokksins eftir útboðið verður því KR. 7.301.500.000 að nafnverði.
Framangreindar fjárhæðir eru í samræmi við samþykktar lántökuheimildir.
Málsnúmer 2606317
12
Reglur um stuðning við afreksungmenni í íþróttum í sumarstörfum hjá Garðabæ
Hlynur Bæringsson tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun:
"Eins og ævinlega styður Framsókn við breytingar til góðs fyrir íþrótta og æskulýðsstarf í landinu og fagnar þeim breytingum sem hér eru lagðar til þó best hefði verið að þær hefðu farið í gegnum ÍTG við úrvinnsluna.
Um er að ræða jákvæða þróun sem eykur stuðning við afreksunglinga í Garðabæ og auðveldar þeim að samræma þátttöku í landsliðsverkefnum og sumarstörf hjá bænum. Reglurnar tryggja að ungmenni sem sinna landsliðsæfingum vegna landsliðsverkefna þurfi ekki að verða af launum á meðan, sem er mikilvægt skref í átt að öflugra stuðningsumhverfi fyrir afreksíþróttafólk."
Kjartan Atli Kjartansson tók til máls.
Björg Fenger tók til máls.
Bæjarstjórn óskar Gunnlaugi Árna Sveinssyni, kylfingi úr GKG, til hamingju með glæsilegan árangur og óskar honum góðs gengis á Opna bandaríska meistaramótinu í golfi.
Bæjarstjórn samþykkir fyrirliggjandi tillögu um reglur um stuðning við afreksungmenni í íþróttum í sumarstörfum hjá Garðabæ.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2606295
13
Tillaga bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins er varðar breytingu á fastanefndum.
Björg Fenger tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir fyrirliggjandi tillögu.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2606296
14
Tillaga bæjarfulltrúa Samfylkingar, Framsóknar og Garðabæjarlista um fjölgun áheyrnarfulltrúa í nefndum
Þorbjörg Þorvaldsdóttir tók til máls.
Kjartan Atli Kjartansson tók til máls.
Hlynur Bæringsson tók til máls.
Fyrirliggjandi tillaga er felld með 8 atkvæðum (AG,BF,MB,HBE,SS,JÞE,ARM,ÝÖF) gegn 3 (KAK,HB,ÞÞ).
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2606408
15
Tillaga bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um fjölgun áheyrnarfulltrúa og greiðslur til áheyrnarfulltrúa
Björg Fenger tók til máls.
Hlynur Bæringsson tók til máls og lagði fram eftirfarandi breytingartillögu við fyrirliggjandi tillögu:
"Lagt er til að við endurskoðun samþykkta um stjórn Garðabæjar verði gerð sú breyting á 50.gr. um áheyrnarfulltrúa að íþrótta- og tómstundaráði verði bætt við upptalningu og nefndum þar sem áheyrnarfulltrúar sitja verði þannig fjölgað úr þremur í fjórar. Þá er jafnframt lagt til að samþykkt um laun fyrir störf í bæjarstjórn Garðabæjar, nefndum og ráðum á vegum bæjarstjórnar verði endurskoðuð af bæjarráði þannig að laun fyrir setu í fastanefndum Garðabæjar lækki um 5%."
Kjartan Atli Kjartansson tók til máls.
Almar Guðmundsson tók til máls.
Kjartan Atli Kjartansson tók til máls að nýju.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir tók til máls.
Kjartan Atli Kjartansson tók til máls að nýju.
Hlynur Bæringsson tók til máls að nýju.
Björg Fenger tók til máls að nýju og lagði fram eftirfarandi breytingatillögu:
"Lagt er til að við endurskoðun samþykkta um stjórn Garðabæjar verði gerð sú breyting á 54.gr. um áheyrnarfulltrúa að íþrótta- og tómstundaráði verði bætt við upptalningu og nefndum þar sem áheyrnarfulltrúar sitja verði þannig fjölgað úr þremur í fjórar.
Þá er lagt til að bæjarstjórn vísi ákvörðun um laun fyrir störf bæjarstjórnar Garðabæjar í nefndum og ráðum á vegum bæjarstjórnar til umfjöllunar í bæjarráði".
Fyrirliggjandi breytingartillaga Hlyns Bæringssonar er felld með 8 atkvæðum (AG,BF,MB,HBE,SS,JÞE,ARM,ÝÖF) gegn 3 (KAK,HB,ÞÞ).
Fyrirliggjandi breytingartillaga Bjargar Fenger er samþykkt samhljóða.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2208694
16
Samþykktir Garðabæjar - endurskoðun
Almar Guðmundsson tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að vísa tillögu að breytingum á samþykktum Garðabæjar til síðari umræðu í bæjarstjórn.
Málsnúmer 2606257
17
Reglugerð Tónlistarskóla Garðabæjar
Almar Guðmundsson tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að vísa breytingum á Reglugerð Tónlistarskóla Garðabæjar til síðari umræðu í bæjarstjórn.
Málsnúmer 2606256
18
Stofnskrá fyrir Hönnunarsafn Íslands
Almar Guðmundsson tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir breytingu á Stofnskrá Hönnunarsafns Íslands.
Málsnúmer 2606324
19
Tillaga um sumarleyfi bæjarstjórnar 2026
Með vísan til 14.gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 svo og 4.mgr. 8.gr. samþykktar um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022 samþykkir bæjarstjórn að fella niður reglulega fundi í sumarleyfi bæjarstjórnar í júlí og til 20. ágúst 2026. Fyrsti fundur bæjarstjórnar eftir sumarleyfi verður boðaður með dagskrá sem send verður bæjarfulltrúum 18. ágúst 2026.
Bæjarstjórn samþykkir að veita bæjarráði fullt umboð til afgreiðslu mála meðan á sumarleyfi bæjarstjórnar stendur, svo sem mælt er fyrir um í 5.mgr. 35.gr. sveitarstjórnarlaga.