Beint í efni

Tillaga bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um fjölgun áheyrnarfulltrúa og greiðslur til áheyrnarfulltrúa

Málsnúmer 2606408

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

10. (980). fundur

Björg Fenger tók til máls.

Hlynur Bæringsson tók til máls og lagði fram eftirfarandi breytingartillögu við fyrirliggjandi tillögu:

"Lagt er til að við endurskoðun samþykkta um stjórn Garðabæjar verði gerð sú breyting á 50.gr. um áheyrnarfulltrúa að íþrótta- og tómstundaráði verði bætt við upptalningu og nefndum þar sem áheyrnarfulltrúar sitja verði þannig fjölgað úr þremur í fjórar. Þá er jafnframt lagt til að samþykkt um laun fyrir störf í bæjarstjórn Garðabæjar, nefndum og ráðum á vegum bæjarstjórnar verði endurskoðuð af bæjarráði þannig að laun fyrir setu í fastanefndum Garðabæjar lækki um 5%."

Kjartan Atli Kjartansson tók til máls.

Almar Guðmundsson tók til máls.

Kjartan Atli Kjartansson tók til máls að nýju.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir tók til máls.

Kjartan Atli Kjartansson tók til máls að nýju.

Hlynur Bæringsson tók til máls að nýju.

Björg Fenger tók til máls að nýju og lagði fram eftirfarandi breytingatillögu:
"Lagt er til að við endurskoðun samþykkta um stjórn Garðabæjar verði gerð sú breyting á 54.gr. um áheyrnarfulltrúa að íþrótta- og tómstundaráði verði bætt við upptalningu og nefndum þar sem áheyrnarfulltrúar sitja verði þannig fjölgað úr þremur í fjórar.
Þá er lagt til að bæjarstjórn vísi ákvörðun um laun fyrir störf bæjarstjórnar Garðabæjar í nefndum og ráðum á vegum bæjarstjórnar til umfjöllunar í bæjarráði".

Fyrirliggjandi breytingartillaga Hlyns Bæringssonar er felld með 8 atkvæðum (AG,BF,MB,HBE,SS,JÞE,ARM,ÝÖF) gegn 3 (KAK,HB,ÞÞ).

Fyrirliggjandi breytingartillaga Bjargar Fenger er samþykkt samhljóða.

Fylgiskjöl