Beint í efni

28. (2223). fundur

25.08.2026
Bæjarráð Garðabæjar

28. (2223). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

25.08.2026

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - formaður
  • Margrét Bjarnadóttir - aðalmaður
  • Hrannar Bragi Eyjólfsson - aðalmaður
  • Stella Stefánsdóttir - aðalmaður
  • Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
  • Kjartan Atli Kjartansson - áheyrnarfulltrúi
  • Hlynur Elías Bæringsson - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
  • Lúðvík Örn Steinarsson - sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
  • Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri velferðarsviðs
  • Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
  • Ágúst Þór Guðmundsson - sviðsstjóri þróunar- og þjónustusviðs
  • Guðný Hrönn Antonsdóttir - samskipta- og kynningarfulltrúi

Ritari

  • Lúðvík Örn Steinarsson

Dagskrá

Málsnúmer 2606716

01

Útholt 6 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Alexander Ágústi Óskarssyni, kt. 200493-2739, leyfi fyrir byggingu einbýlishúss á tveimur hæðum með innbyggðri bílageymslu að Útholti 6.

Málsnúmer 2502149

02

Vorbraut 3 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Vorbraut 3 ehf., kt. 471223-1820, leyfi til breytinga áður samþykktra aðaluppdrátta fyrir fjölbýlishús að Vorbraut 3.

Málsnúmer 2502148

03

Vorbraut 7 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Vorbraut 7 ehf., kt. 451223-1780, leyfi til breytinga áður samþykktra aðaluppdrátta fyrir fjölbýlishús að Vorbraut 7.

Málsnúmer 2608257

04

Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um tækifærisleyfi til áfengisveitinga í Hlöðunni Álftanesi þann 22.08.26.

Í umsókninni er farið fram á tímabundið áfengisleyfi fyrir Hlöðuna á Álftanesi vegna brúðkaups 22. ágúst 2026.

Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi hafi verið veitt, með fyrirvara um samþykki annarra umsagnaraðila.

Málsnúmer 2608258

05

Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um tækifærisleyfi til áfengisveitinga í Hlöðunni Álftanesi þann 28.08.26.

Í umsókninni er farið fram á tímabundið áfengisleyfi fyrir Hlöðuna á Álftanesi vegna afmælis 28. ágúst 2026.

Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt, með fyrirvara um samþykki annarra umsagnaraðila.

Málsnúmer 2608261

06

Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um tækifærisleyfi til áfengisveitinga í Hlöðunni Álftanesi þann 29.08.26.

Í umsókninni er farið fram á tímabundið áfengisleyfi fyrir Hlöðuna á Álftanesi vegna brúðkaups 29. ágúst 2026.

Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt, með fyrirvara um samþykki annarra umsagnaraðila.

Málsnúmer 2608262

07

Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um tækifærisleyfi til áfengisveitinga á afmælishátíð Garðabæjar þann 29.08.26.

Í umsókninni er farið fram á tímabundið áfengisleyfi fyrir Garðatorg, vegna afmælishátíðar Garðabæjar 29. ágúst 2026.

Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi hafi verið veitt, með fyrirvara um samþykki annarra umsagnaraðila.

Málsnúmer 2606408

08

Greiðslur vegna nefndarsetu.

Farið yfir drög að kostnaðargreiningu vegna nefndarsetu.

Bæjarráð vísar málinu til frekari skoðunar og umfjöllunar í bæjarráði.

Málsnúmer 2606674

09

Innritun nemenda úr Garðabæ í framhaldsskóla.

Bæjarstjóri gerði grein fyrir erindi Garðabæjar til Mennta- og barnamálaráðuneytisins og Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu, þar sem lýst er yfir áhyggjum sveitarfélagsins af stöðu þeirra nemenda sem við lok grunnskóla fá ekki skólavist í þeim framhaldsskólum sem þeir velja samkvæmt umsóknarferli og inntökureglum. Lúta áhyggjur meðal annars að því þegar nemendum er úthlutuð skólavist langt frá sveitarfélaginu eða utan nærumhverfis þeirra, einkum þegar samgöngur eru tímafrekar og flóknar.

Skýrt var frá samskiptum við FG um fyrirkomulag innritunar, en fundað verður með forráðamönnum skólans innan skamms.

Bæjarráð felur bæjarstjóra og sviðsstjóra fræðslu- og frístundarsviðs að fylgja erindinu eftir gagnvart ráðuneytinu og Miðstöð menntunar og skólaþjónustu.

Bæjarráð vísar erindinu til umfjöllunar í skólanefnd.

Málsnúmer 2506155

10

50 ára afmæli Garðabæjar 2026.

Sviðsstjóri þróunar- og þjónustusviðs gerði ráð fyrir fyrirkomulagi við framkvæmd afmælishátíðar á Garðatorgi 29. ágúst nk.