Beint í efni

Innritun nemenda úr Garðabæ í framhaldsskóla.

Málsnúmer 2606674

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

35. (2230). fundur

Lagt fram svarbréf Mennta- og barnamálaráðuneytisins vegna erindis Garðabæjar um úthlutun framhaldsskólaplássa til nemenda sem fá ekki skólavist samkvæmt fyrsta, öðru eða þriðja vali. Ráðuneytið þakkar Garðabæ fyrir gagnlegar ábendingar og vilja til samstarfs. Ábendingar Garðabæjar verða hafðar til hliðsjónar við áframhaldandi þróun innritunarferilsins með það að markmiði að styðja við farsæld nemenda og draga úr hættu á brotthvarfi úr námi.

Bæjarráð vísar málinu til fræðslu- og frístundasviðs.

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

02

3. fundur

Skólanefnd lýsir áhyggjum af því að nemendur hafi ekki fengið inngöngu í þá framhaldsskóla sem þeir sóttu um og að sumum hafi verið úthlutað skólavist fjarri lögheimili sínu. Nefndin leggur áherslu á að þegar ekki er unnt að verða við óskum nemenda um skóla verði þeim úthlutað skólavist þar sem samgöngur eru greiðar og aðgengi gott. Mikilvægt er að skólavist taki mið af bæði búsetu og valkostum nemenda, enda getur langur og erfiður ferðatími haft neikvæð áhrif á líðan, þátttöku, námsframvindu og aukið líkur á brotthvarfi úr námi.

Bæjarráð Garðabæjar

03

28. (2223). fundur

Bæjarstjóri gerði grein fyrir erindi Garðabæjar til Mennta- og barnamálaráðuneytisins og Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu, þar sem lýst er yfir áhyggjum sveitarfélagsins af stöðu þeirra nemenda sem við lok grunnskóla fá ekki skólavist í þeim framhaldsskólum sem þeir velja samkvæmt umsóknarferli og inntökureglum. Lúta áhyggjur meðal annars að því þegar nemendum er úthlutuð skólavist langt frá sveitarfélaginu eða utan nærumhverfis þeirra, einkum þegar samgöngur eru tímafrekar og flóknar.

Skýrt var frá samskiptum við FG um fyrirkomulag innritunar, en fundað verður með forráðamönnum skólans innan skamms.

Bæjarráð felur bæjarstjóra og sviðsstjóra fræðslu- og frístundarsviðs að fylgja erindinu eftir gagnvart ráðuneytinu og Miðstöð menntunar og skólaþjónustu.

Bæjarráð vísar erindinu til umfjöllunar í skólanefnd.

Bæjarráð Garðabæjar

04

23. (2218). fundur

Fjallað var um stöðu innritunar nemenda úr Garðabæ í framhaldsskóla. Óvenju margir nemendur úr Garðabæ fengu úthlutað skólavist sem grundvallaðist ekki á vali á þeirra og í mörgum þessara tilvika er um að ræða skólavist á hinum enda höfuðborgarsvæðisins þar sem ferðatími yrði umtalsverður.

Bæjarráð felur bæjarstjóra og sviðsstjóra fræðslu- og frístundasviðs að fá nánari upplýsingar um stöðu innritunar í framhaldsskóla og ræða mögulegar úrbætur við mennta- og barnamálaráðuneyti og stjórnendur Fjölbrautaskólans i Garðabæ.