23. (2218). fundur
23. (2218). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
30.06.2026
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Birkir Guðlaugsson - varamaður
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - aðalmaður
- Stella Stefánsdóttir - aðalmaður
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
- Kjartan Atli Kjartansson - áheyrnarfulltrúi
- Hlynur Elías Bæringsson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri velferðarsviðs
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
- Guðný Hrönn Antonsdóttir - samskipta- og kynningarfulltrúi
Ritari
- Sigríður Logadóttir
Dagskrá
Málsnúmer 2606074
01
Hönnun - Útboð - Vífilsstaðavegur frá hringtorgi við Spítalaveg að Elliðavatnsvegi.
Lögð fram útboðs- og verklýsing vegna Hönnun - Útboð - Vífilsstaðavegur frá hringtorgi við Spítalaveg að Elliðavatnsvegi.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi útboðs- og verklýsingu og felur umhverfissviði framkvæmd útboðsins fyrir hönd Garðabæjar.
Málsnúmer 2606658
02
Kæra D.Ing-Verk ehf. til kærunefndar útboðsmála vegna útboðsins "Arnarland - Gatnagerð og veitulagnir", dags. 25.06.26.
Lögð fram kæra D.Ing-Verk ehf. til Kærunefndar útboðsmála, vegna útboðs Garðabæjar, "Arnarland- gatnagerð og veitulagnir", dags. 25. júní 2026.
Bæjarráð felur Juris lögmannsstofu að gæta hagsmuna bæjarins í málinu.
Málsnúmer 2506446
03
Erindi Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi samkomulag um þjónustu við börn með fjölþættan vanda, dags. 25.06.26.
Bæjarráð tekur undir afstöðu Sambands íslenskra sveitarfélaga og lýsir yfir þungum áhyggjum af nýrri reglugerð mennta- og barnamálaráðuneytisins sem gengur gegn samkomulagi ríkis og sveitarfélaga frá 19. mars 2025 um ábyrgð á þjónustu við börn með fjölþættan vanda. Með reglugerðinni hefur ríkið einhliða þrengt skilgreiningu á hópnum sem skilur þannig eftir ábyrgð og kostnað hjá sveitarfélögum sem á grundvelli samkomulagsins á heima hjá ríkinu.
Bæjarráð telur breytinguna óásættanlega, án fullnægjandi faglegra raka og fela í sér alvarlegan trúnaðarbrest af hálfu ríkisins gagnvart sveitarfélögum. Bæjarráð skorar á ráðuneytið að afturkalla reglugerðina og taka þá ábyrgð og skuldbindingu sem samið var um.
Málsnúmer 2606626
04
Tilkynningar frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga um framboðsfrest til formanns Sambandsins og framboð til setu í stjórn Sambandsins.
Lögð fram tilkynning Sambands íslenskra sveitarfélaga vegna framboðsfrests til formanns Sambandsins. Framboðsfrestur er til 15. júlí 2026 og kosning hefst 15. ágúst 2026.
Málsnúmer 2606584
05
Áherslur frá Landssambandi eldri borgara til nýkjörinna sveitarstjórna, dags. 23.06.26.
Lagt fram erindi Landsambands eldri borgara til nýkjörinna sveitarstjórna landsins.
Bæjarráð vísar erindinu til úrvinnslu á velferðarsviði.
Málsnúmer 2605435
06
Skipan varaáheyrnarfulltrúa í skólanefnd.
Bæjarráð samþykkir samhljóða fyrirliggandi tillögu um tilnefningu Þorbjargar Þorvaldsdóttur í stað Hannesar Inga Geirssonar, sem varaáheyrnarfulltrúa í skólanefnd.
Málsnúmer 2606674
07
Innritun nemenda úr Garðabæ í framhaldsskóla.
Fjallað var um stöðu innritunar nemenda úr Garðabæ í framhaldsskóla. Óvenju margir nemendur úr Garðabæ fengu úthlutað skólavist sem grundvallaðist ekki á vali á þeirra og í mörgum þessara tilvika er um að ræða skólavist á hinum enda höfuðborgarsvæðisins þar sem ferðatími yrði umtalsverður.
Bæjarráð felur bæjarstjóra og sviðsstjóra fræðslu- og frístundasviðs að fá nánari upplýsingar um stöðu innritunar í framhaldsskóla og ræða mögulegar úrbætur við mennta- og barnamálaráðuneyti og stjórnendur Fjölbrautaskólans i Garðabæ.