Beint í efni

Erindi Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi samkomulag um þjónustu við börn með fjölþættan vanda, dags. 25.06.26.

Málsnúmer 2506446

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

23. (2218). fundur

Bæjarráð tekur undir afstöðu Sambands íslenskra sveitarfélaga og lýsir yfir þungum áhyggjum af nýrri reglugerð mennta- og barnamálaráðuneytisins sem gengur gegn samkomulagi ríkis og sveitarfélaga frá 19. mars 2025 um ábyrgð á þjónustu við börn með fjölþættan vanda. Með reglugerðinni hefur ríkið einhliða þrengt skilgreiningu á hópnum sem skilur þannig eftir ábyrgð og kostnað hjá sveitarfélögum sem á grundvelli samkomulagsins á heima hjá ríkinu.

Bæjarráð telur breytinguna óásættanlega, án fullnægjandi faglegra raka og fela í sér alvarlegan trúnaðarbrest af hálfu ríkisins gagnvart sveitarfélögum. Bæjarráð skorar á ráðuneytið að afturkalla reglugerðina og taka þá ábyrgð og skuldbindingu sem samið var um.

Bæjarráð Garðabæjar

02

24. (2172). fundur

Lagt fram erindi Mennta- og barnamálaráðuneytisins varðandi samkomulag milli ríkisins og sveitarfélaga um ábyrgð á rekstri og kostnaði vegna búsetu barna með fjölþættan vanda sem vistuð eru utan heimilis. Sviðsstjórar velferðarsviðs og fræðslu- og frísundasviðs fóur yfir málið eins og það víkur að Garðabæ.
Bæjarráð vísar erindinu til frekari skoðunar hjá velferðarráði og skólanefnd grunnskóla.