Beint í efni

Skipan varaáheyrnarfulltrúa í skólanefnd.

Málsnúmer 2605435

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

23. (2218). fundur

Bæjarráð samþykkir samhljóða fyrirliggandi tillögu um tilnefningu Þorbjargar Þorvaldsdóttur í stað Hannesar Inga Geirssonar, sem varaáheyrnarfulltrúa í skólanefnd.

Bæjarstjórn Garðabæjar

02

9. (979). fundur

a) Velferðarráð 5 5 2 áheyrnarfulltrúar
b) Íþrótta- og tómstundaráð 5 5
c) Yfirkjörstjórn 3 3 2 áheyrnarfulltrúar
d) Leikskólanefnd 5 5
e) Menningar- og safnanefnd 5 5
f) Skipulagsnefnd 5 5 2 áheyrnarfulltrúar
g) Skólanefnd grunnskóla 5 5 2 áheyrnarfulltrúar
h) Skólanefnd Tónlistarskóa Garðabæjar 5 5
i) Stjórn Hönnunarsafns Íslands 3 3
j) Umhverfisnefnd 5 5

a) Velferðarráð.

Aðalmenn:
Anna R. Möller, formaður, Ýmir Örn Finnbogason, María Guðjónsdóttir, Haukur Þorsteinsson og Inga Amal Hasan.

Varamenn:
Vigdís Gunnarsdóttir, Þorri Geir Rúnarsson, Kristín Einarsdóttir, Sturla Þorsteinsson og Hjördís Guðný Guðmundsdóttir.

Áheyrnarfulltrúar:
Joanna Marcinkowska og Vilborg Anna Strange Garðarsdóttir.

Varaáheyrnarfulltrúar:
Harpa Grétarsdóttir og Ögmundur Árni Sveinsson.

b) Íþrótta- og tómstundaráð

Aðalmenn:
Birkir Guðlaugsson, formaður, Lára Sif Christiansen, Sigrún Antonsdóttir, Dúi Þór Jónsson og Hlynur Bæringsson.

Varamenn:
Sigurður Sveinn Þórðarson, Lilja Lind Pálsdóttir, Elías Orri Gíslason, Laufey Jóhannsdóttir og Alexander Olsen.

c) Yfirkjörstjórn.

Aðalmenn:
Jóhann Steinar Ingimundarson, Kristín Einarsdóttir og Gunnar Hólmsteinn Ársælsson.

Varamenn: Finnur Magnússon, Hrafnhildur Helgadóttir,

Áheyrnarfulltrúar:
Sigurður Jökull Ólafsson, Ríkey Jóna Eiríksdóttir.

Varaáheyrnarfulltrúar:


d) Leikskólanefnd.

Aðalmenn:
Hrannar Bragi Eyjólfsson, formaður, Páll Árnason, Eydís Sigurðardóttir, Inga Rós Reynisdóttir og Rósa Andrésdóttir.

Varamenn:
Viktoría Jensdóttir, Tómas Jónasson, Jóna Brynja Birkisdóttir, Tómas Orri Almarsson og Heiða Mist Kristjánsdóttir.

e) Menningar- og safnanefnd

Aðalmenn:
Stella Stefánsdóttir, formaður, Guðrún Arna Sturludóttir, Halldór Snær Lárusson, Egill Trausti Ómarsson og Harpa Grétarsdóttir.

Varamenn:
Kristjana Sigursteinsdóttir, Laufey Arnalds Johansen, Dreki Jónsson, Kristmundur Carter og Maru Aleman.

f) Skipulagsnefnd

Aðalmenn:
Björg Fenger, formaður, Ásgeir Ágústsson, Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir, Agla Eir Vilhjálmsdóttir og Einar Þór Einarsson.

Varamenn:
Kjartan Vilhjálmsson, Sigþrúður Ármann, Eymundur Sveinn Einarsson, Jóna Vestfjörð Hannesdóttir og Hlynur Bæringsson.

Áheyrnarfulltrúar:
Guðjón Pétur Lýðsson og Kjartan Atli Kjartansson.

Varaáheyrnarfulltrúar:
Baldur Ó. Svavarsson og Vilborg Anna Strange Garðarsdóttir.

g) Skólanefnd grunnskóla

Aðalmenn:
Margrét Bjarnadóttir, formaður, Torfi Geir Símonarson, Harpa Rós Gísladóttir, Guðjón Þór Þorsteinsson og Rakel Margrét Viggósdóttir.

Varamenn:
Lilja Hrund Ava Lúðvíksdóttir, Haukur Þór Hauksson, Auður Konn Sigurðardóttir, Pétur Rúnar Heimisson og Rósanna Andrésdóttir.

Áheyrnarfulltrúar:
Finnur Jónsson og Anna Margrét Steingrímsdóttir.

Varaáheyrnarfulltrúar:
Hannes Ingi Geirsson og Hjördís Guðný Guðmundsdóttir.

h) Skólanefnd Tónlistarskóa Garðabæjar.

Aðalmenn:
Margrét Bjarnadóttir, formaður, Torfi Geir Símonarson, Harpa Rós Gísladóttir, Guðjón Þór Þorsteinsson og Rakel Margrét Viggósdóttir.

Varamenn:
Lilja Hrund Ava Lúðvíksdóttir, Haukur Þór Hauksson, Auður Konn Sigurðardóttir, Pétur Rúnar Heimisson og Rósanna Andrésdóttir.

i) Stjórn Hönnunarsafns Íslands

Aðalmenn:
Stella Stefánsdóttir, formaður, Halldór Snær Lárusson og Harpa Grétarsdóttir.

Varamenn:
Kristjana Sigursteinsdóttir, Dreki Jónsson og Maru Aleman.

j) Umhverfisnefnd

Aðalmenn:
Jón Þór Eggertsson, formaður, Laufey Jóhannsdóttir, Ingibjörg Loftsdóttir, Eiríkur Þorbjörnsson og Anna Gréta Hafsteinsdóttir.

Varamenn:
Jóhann Jónsson, Sunna Sigurðardóttir, Tómas Freyr Jónsson, María Jústa Pétursdóttir og Einar Sveinbjörnsson.

Björg Fenger tók til máls og lagði fram eftirfarandi tillögu ásamt greinargerð:
"Tillaga bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins er varðar breytingu á fastanefndum
Lagt er til að bæjarráði verði falið að undirbúa nauðsynlegar breytingar á reglugerð Tónlistarskóla Garðabæjar nr 830/2013 og samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022 með það að markmiði að verkefni skólanefndar Tónlistarskóla Garðabæjar færist til skólanefndar Garðabæjar og að skólanefnd Tónlistarskóla Garðabæjar verði lögð niður.
Jafnframt er lagt til að bæjarráði verði falið að undirbúa nauðsynlegar breytingar á stofnskrá fyrir Hönnunarsafn Íslands nr 146/2018 og samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022 með það að markmiði að verkefni stjórnar Hönnunarsafns Íslands færist til menningar- og safnanefndar Garðabæjar og að stjórn Hönnunarsafns Íslands verði lögð niður.

Greinargerð
Tillagan miðar að því að einfalda stjórnskipulag Garðabæjar og samræma meðferð mála innan þeirra fastanefnda sem þegar fara með viðkomandi málaflokka. Með breytingunum munu málefni Tónlistarskóla Garðabæjar falla undir skólanefnd Garðabæjar og málefni Hönnunarsafns Íslands undir menningar- og safnanefnd Garðabæjar."

Þorbjörg Þorvaldsdóttir tók til máls og lagði fram eftirfarandi tillögu ásamt greinargerð:
"Tillaga um fjölgun áheyrnarfulltrúa í nefndum
Bæjarfulltrúar minnihlutans leggja til við bæjarstjórn Garðabæjar að samþykktir um stjórn Garðabæjar verði endurskoðaðar. Lagt er til að öll framboð sem hafa kjörinn bæjarfulltrúa en eru án fulltrúa í einhverri fastanefnd Garðabæjar eigi rétt á að skipa áheyrnarfulltrúa með málfrelsi og tillögurétt í þá nefnd. Íþrótta- og tómstundaráði, menningar- og safnanefnd, umhverfisnefnd og leikskólanefnd verði þannig bætt inn í upptalningu á nefndum í 50. gr. núgildandi samþykktar um áheyrnarfulltrúa í nefndum.

Greinargerð
Garðabæ er heimilt skv. 50. gr sveitarstjórnarlaga að ákveða í samþykkt um stjórn sveitarfélagsins að framboð sem eiga fulltrúa í sveitarstjórn en ná ekki kjöri í nefndir geti tilnefnt áheyrnarfulltrúa í fastanefndir.
Eins og staðan er núna eftir sveitarstjórnarkosningar 2026 deila þrír flokkar með sér einu sæti í hverri eftirfarandi fastanefnd í Garðabæ: íþrótta- og tómstundaráði, menningar- og safnanefnd, umhverfisnefnd og leikskólanefnd. Í þessar fastanefndir er ekki hægt að tilnefna áheyrnarfulltrúa.
Núverandi fyrirkomulag býður upp á að umræður í fastanefndum bæjarins nái ekki til allra bæjarfulltrúa. Þess vegna teljum við, bæjarfulltrúar minnihlutans, afar mikilvægt að breytingarnar sem hér eru lagðar til nái fram að ganga. Með því að hafa áheyrnarfulltrúa í öllum fastanefndum er hægt að tryggja lýðræðislega aðkomu allra framboða að nefndum eins vel og mögulegt er, á þessu kjörtímabili og til framtíðar.
Aðkoma og aðgengi allra flokka að nefndarstarfi er mikilvægt lýðræðismál. Áheyrnarfulltrúar í fastanefndum Garðabæjar eru færri en í öðrum sveitarfélögum. Sem dæmi eru áheyrnarfulltrúar í öllum fastanefndum Kópavogs og Akureyrar.
Fái allir flokkar sinn fulltrúa, nefndarmann eða áheyrnarfulltrúa, í hverja fastanefnd mun það stuðla að upplýstari umræðu og gera fulltrúum sem flestra kjósenda í Garðabæ kleift að uppfylla skyldur sínar.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, bæjarfulltrúi Garðabæjarlistans
Kjartan Atli Kjartansson, bæjarfulltrúi Samfylkingar
Anna Margrét Steingrímsdóttir, varabæjarfulltrúi Framsóknar"

Almar Guðmundsson tók til máls og lagði til að tillögu minnihluta yrði vísað til bæjarráðs.

Anna Margrét Steingrímsdóttir tók til máls.

Kjartan Atli Kjartansson tók til máls.

Bæjarstjórn samþykkir að vísa tillögu minnihluta bæjarstjórnar til bæjarráðs.