26. (2221). fundur
26. (2221). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
11.08.2026
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Margrét Bjarnadóttir - aðalmaður
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - aðalmaður
- Stella Stefánsdóttir - aðalmaður
- Birkir Guðlaugsson - varamaður
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
- Kjartan Atli Kjartansson - áheyrnarfulltrúi
- Anna Margrét Steingrímsdóttir - varaáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Lúðvík Örn Steinarsson - sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri velferðarsviðs
- Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
- Ágúst Þór Guðmundsson - sviðsstjóri þróunar- og þjónustusviðs
- Guðný Hrönn Antonsdóttir - samskipta- og kynningarfulltrúi
Ritari
- Lúðvík Örn Steinarsson
Dagskrá
01
Steinprýði 6 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Sigfúsi Bjarna Sigfússyni, kt. 051268-3269, leyfi fyrir einnar hæðar einbýlishúsi með innbyggðri bílageymslu að Steinprýði 6.
02
Móaflöt 12 - Umsókn um byggingaráform.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita NTS ehf. kt. 500210-1330 leyfi fyrir viðbyggingu að Móaflöt 12.
03
Kjarrprýði 1 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa veita Finnboga Bjarnasyni, kt. 140295-2809, leyfi til að byggja tveggja hæða staðsteypt einbýlishús að Kjarrprýði 1.
04
Sunnuvellir 2 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Ingibjörgu Guðrúnu Jafetsdóttur, kt. 060760-3609, leyfi til breytinga á áður samþykktu byggingarleyfi fyrir hesthús að Sunnuvöllum 2.
05
Urriðaholtsstræti 3 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Yrki eignum, ehf., kt. 581113-1100, leyfi fyrir byggingu 3ja hæða atvinnuhúsnæðis, ásamt bílageymslu að Urriðaholtsstræti 3.
06
Umsókn um stöðuleyfi fyrir sauna hús.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að vita Litla Sauna Húsinu slf., kt. 700524-1080, leyfi fyrir sauna húsi við efra bílastæði við Vífilsstaðavatn til 6 mánaða.
07
Borgarás 10 - Endurupptaka ákvörðunar í samræmi við úrskurð ÚUA í máli nr. 129/2025.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að telja að stigi við Borgarás 10 hafi ekki verið hluti af grenndarkynningu þeirri sem fram fór á deiliskipulagstillögu í lok árs 2023 og laut að stækkun byggingarreits til vesturs fyrir sólskála á neðri hæð hússins og svölum á efri hæð. Þá hafi útgefið byggingarleyfi ekki tekið til breytinga á stiga hússins.
Byggingarfulltrúi telur þannig ekki ástæðu til að afturkalla útgefið byggingarleyfi er tekur til stækkunar byggingarreits til vesturs fyrir sólskála á neðri hæð hússins og svölum á efri hæð. Byggingarfulltrúi tekur ekki afstöðu til þvingunarúrræða í afgreiðslu sinni.
08
Starfsreglur sérskóla í Garðabæ. Innritunar- og útskriftarreglur - Upphaf starfsemi Þorláksskóla.
Lagður fram uppfærður þjónustusamningur milli Garðabæjar og Jónsvegar ehf. um sjálfstætt rekinn grunnskóla á grundvelli 43.gr. grunnskólalaga nr. 91/2008 og reglugerðar nr. 1150/2018.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi, uppfærðan þjónustusamning og felur bæjarstjóra að undirrita samninginn fyrir hönd Garðabæjar.
Lagðar fram til síðari umræðu reglur um innritun og útskrift nemenda úr Þorláksskóla á grundvelli 20.gr. reglugerðar um stuðning við nemendur með sérþarfir í grunnskóla nr. 585/2010.
Bæjarráð samþykkir við síðari umræðu og afgreiðslu reglur um innritun og útskrift nemenda úr Þorláksskóla. Afgreiðsla bæjarráðs er á grundvelli heimildar 5.mgr. 35.gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
09
Útboð á frístundaakstri í Garðabæ 2026-2030.
Eftirfarandi tilboð samkvæmt tilboðsskrá bárust í útboðsverkið: "Útboð á frístundaakstri í Garðabæ 2026-2030":
1. Hópbílar ehf., kr. 257.904.000 (119,4%)
2. Hópferðamiðstöðin ehf./TREX, kr. 195.609.600 (90,56%).
Kostnaðaráætlun verkkaupa kr. 216.000.000. Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Hópferðamiðstöðvarinnar ehf./TREX, að fjárhæð kr. 195.609.600 (90,56%).
Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er sviðsstjóra fræðslu- og frísundasviðs falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.
10
Hönnun - Forval - Hjúkrunarheimili í Vetrarmýri.
Á grundvelli samkomulags Garðabæjar og Félags- og húsnæðismálaráðuneytisins hefur Garðabær milligöngu um forval og útboð vegna hönnunar, uppbyggingar og útleigu á húsnæði fyrir þjónustumiðstöð og hjúkrunarheimili í Vetrarmýri. Leitað er að aðilum til að hanna, byggja og eiga húsnæðið og leigja það til félags- og húsnæðismálaráðuneytisins.
Lögð fram forvalsgögn vegna uppbyggingar og útleigu hjúkrunarheimilis í Vetrarmýri. Í forvalsskilmálum koma fram upplýsingar um innkaupaferlið og þær reglur sem fylgt verður við framkvæmd innkaupaferilsins. Jafnframt eru settar fram kröfur um hæfi sem bjóðendum ber að uppfylla samkvæmt nánari skilgreiningu í forvalsgögnum. Forvalsgögnin eru unnin í samvinnu Garðabæjar og Félags- og húsnæðismálaráðuneytisins.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi forvalsskilmála og felur umhverfissviði umsjón með framkvæmd forvalsins.
11
Hönnun Útboð - Skógarhverfi Fráveita áfangi 2.
Eftirfarandi tilboð samkvæmt tilboðsskrá bárust í útboðsverkið: "Skógarhverfi 2. áfangi. Veitulagnir og frágangur":
1. Sjótækni ehf., kr. 86.928.750 (71,80%).
2. Fagurverk ehf., kr. 72.330.500 (59,74%).
3. Alson ehf., kr. 132.409.000 (109,36%).
4. Stjörnugarðar ehf., kr. 76.326.000 (63,04%).
5. Gleipnir verktakar, kr. 128.000.000 (105,72%).
6. PK verk ehf. kr. 110.271.500 (91,07%).
7. D-Ing verk ehf. kr. 86.418.660 (71,37%).
8. Karína ehf., kr. 88.298.000 (72,93%).
Kostnaðaráætlun verkkaupa kr. 121.077.800. Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Fagurverks, að fjárhæð kr. 72.330.500 (59,74% af kostnaðarætlun).
Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er sviðsstjóra umhverfissviðs falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.
12
Hönnun - Útboð - Arnarnes Endurnýjun fráveitulagna.
Eftirfarandi tilboð samkvæmt tilboðsskrá bárust í útboðsverkið: "Arnarnes - Jarðvinna, lagnir og frágangur":
1. Fagurverk kr. 29.610.000 (61%).
2. Dráttarbílar Vélaleiga ehf., kr. 32.159.240 (66%).
3. Stjörnugarðar ehf., kr. 44.652.000 (92%).
4. Berg verktakar, kr. 51.659.000 (106%).
Kostnaðaráætlun verkkaupa kr. 48.714.000. Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Fagurverk, að fjárhæð kr. 29.610.000 (61% af kostnaðarætlun).
Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er sviðsstjóra umhverfissviðs falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.
13
Opnun tilboða í verkið - Ásgarður vallarlýsing.
Eftirfarandi tilboð samkvæmt tilboðsskrá bárust í útboðsverkið: "Ásgarður, nýr knattspyrnuvöllur: Vallarlýsing":
1. Vallarverk ehf., kr. 58.563.000 (82,42%).
2. Metatron ehf., kr. 59.653.920 (83,95%).
3. Altís ehf., kr. 68.970.000 (97,06%).
Kostnaðaráætlun verkkaupa kr. 71.057.500. Við yfirferð tilboða kom í ljós að lægstbjóðandi, Vallarverk ehf., fullnægði ekki skilmálum útboðsins. Bæjarráð samþykkir að taka tilboði næstlægstbjóðanda Metatron ehf., að fjárhæð 59.653.920 (83,95% af kostnaðaráætlun).
Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er sviðsstjóra umhverfissviðs falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.
14
Kosning varamanns og tilnefning varaáheyrnarfulltrúa í yfirkjörstjórn Garðabæjar.
Bæjarráð kýs Ásdísi Magnúsdóttur sem varamann í yfirkjörstjórn Garðabæjar.
Bæjarráð samþykkir tilnefningu á Silju Stefánsdóttur og Ingu Amal Hasan sem varaáheyrnarfulltrúa í yfirkjörstjórn Garðabæjar.
Afgreiðsla bæjarráðs er á grundvelli heimildar 5.mgr. 35.gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.