Borgarás 10 - Endurupptaka ákvörðunar í samræmi við úrskurð ÚUA í máli nr. 129/2025.
Málsnúmer 2608063
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
26. (2221). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að telja að stigi við Borgarás 10 hafi ekki verið hluti af grenndarkynningu þeirri sem fram fór á deiliskipulagstillögu í lok árs 2023 og laut að stækkun byggingarreits til vesturs fyrir sólskála á neðri hæð hússins og svölum á efri hæð. Þá hafi útgefið byggingarleyfi ekki tekið til breytinga á stiga hússins.
Byggingarfulltrúi telur þannig ekki ástæðu til að afturkalla útgefið byggingarleyfi er tekur til stækkunar byggingarreits til vesturs fyrir sólskála á neðri hæð hússins og svölum á efri hæð. Byggingarfulltrúi tekur ekki afstöðu til þvingunarúrræða í afgreiðslu sinni.