Beint í efni

Útboð á frístundaakstri í Garðabæ 2026-2030.

Málsnúmer 2605382

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

26. (2221). fundur

Eftirfarandi tilboð samkvæmt tilboðsskrá bárust í útboðsverkið: "Útboð á frístundaakstri í Garðabæ 2026-2030":

1. Hópbílar ehf., kr. 257.904.000 (119,4%)

2. Hópferðamiðstöðin ehf./TREX, kr. 195.609.600 (90,56%).

Kostnaðaráætlun verkkaupa kr. 216.000.000. Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Hópferðamiðstöðvarinnar ehf./TREX, að fjárhæð kr. 195.609.600 (90,56%).

Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er sviðsstjóra fræðslu- og frísundasviðs falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 10 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

02

1. fundur

Útboðsferli á akstri frístundabíls í Garðabæ frá hausti 2026 til loka skólaárs 2030 stendur yfir. Lögð fram útboðsgögn til kynningar þar sem meðal er akstursáætlun bílsins.

Útboðsferli á akstri frístundabíls í Garðabæ frá hausti 2026 til loka skólaárs 2030 stendur yfir. Lögð voru fram útboðsgögn til kynningar ásamt drögum að akstursáætlun bílsins.

Bæjarráð Garðabæjar

03

21. (2216). fundur

Lögð fram útboðs- og verklýsing vegna frístundaaksturs 2026-2030.

Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi útboðs- og verklýsingu og felur fræðslu- og frístundasviði framkvæmd útboðsins fyrir hönd Garðabæjar.