Hjúkrunarheimili í Vetrarmýri - Forval.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
36. (2331). fundur
Lagt fram minnisblað VSÓ ráðgjafar vegna yfirferðar á hæfi umsækjenda í forvali hjúkrunarheimilis í Vetrarmýri, uppbygging og útleiga.
Eftirtaldir aðilar uppfylla hæfiskröfur forvalsgagna að fullu:
Eik fasteignafélag ehf.
Eykt ehf.
Heimar atvinnuhúsnæði ehf.
Kaldalón hf.
Laki ehf.
Reitir atvinnuhúsnæði ehf.
Bæjarráð samþykkir að bjóða framangreindum aðilum þátttöku í lokuðu útboði um uppbyggingu og útleigu hjúkrunarheimilis í Vetrarmýri. Bæjarráð felur umhverfissviði að undirbúa útboðið og framkvæmd þess að höfðu samráði við Félags- og húsnæðismálaráðuneytið.
Bæjarráð Garðabæjar
02
26. (2221). fundur
Á grundvelli samkomulags Garðabæjar og Félags- og húsnæðismálaráðuneytisins hefur Garðabær milligöngu um forval og útboð vegna hönnunar, uppbyggingar og útleigu á húsnæði fyrir þjónustumiðstöð og hjúkrunarheimili í Vetrarmýri. Leitað er að aðilum til að hanna, byggja og eiga húsnæðið og leigja það til félags- og húsnæðismálaráðuneytisins.
Lögð fram forvalsgögn vegna uppbyggingar og útleigu hjúkrunarheimilis í Vetrarmýri. Í forvalsskilmálum koma fram upplýsingar um innkaupaferlið og þær reglur sem fylgt verður við framkvæmd innkaupaferilsins. Jafnframt eru settar fram kröfur um hæfi sem bjóðendum ber að uppfylla samkvæmt nánari skilgreiningu í forvalsgögnum. Forvalsgögnin eru unnin í samvinnu Garðabæjar og Félags- og húsnæðismálaráðuneytisins.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi forvalsskilmála og felur umhverfissviði umsjón með framkvæmd forvalsins.