Umsókn um stöðuleyfi fyrir sauna hús
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
7. (977). fundur
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 26. mars 2026 varðandi stöðuleyfi fyrir sauna hús. Sótt er um að fá leyfi til að koma fyrir færanlegu saunuhýsi við efra bílastæðið við Vífilsstaðavatn. Sú staðsetning sem lögð er til er utan friðlands Vífilsstaðavatns. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að byggingarfulltrúi veiti stöðuleyfi fyrir saunahýsi til 6 mánuða til reynslu enda er starfsemin innan svæðis sem er fyrirhugað til almennrar útivistar samkvæmt deiliskipulagi.
Umhverfisnefnd Garðabæjar
02
34 (22-26). fundur
Lögð hefur verið fram umsókn um tímabundið stöðuleyfi til sex mánaða fyrir færanlegu sauna húsi nálægt friðlandi Vífilsstaðavatns. Sú staðsetning sem lögð er til er utan friðlands.
Umhverfi Vífilsstaðavatns er mikið notað til útvistar og er eftirsóknarverður áningarstaður fyrir bæjarbúa. Vífilsstaðavatn og nágrenni var friðlýst sem friðland árið 2007. Friðlýsingin tekur til Vífilsstaðavatns og svæðis í kring. Markmið friðlýsingarinnar er að vernda vatnið og lífríki þess, tryggja svæðið sem útivistarsvæði og veita almenningi aðgang að ósnortinni náttúru í þéttbýli.
Lífríki Vífilsstaðavatns er talið einstakt á heimsvísu. Friðlýsingunni er ætlað að stuðla að varðveislu og viðhaldi náttúrulegs ástands vatnsins og styrkja verndun tegunda og samfélagsgerðar með sérstæðum stofnum bleikju, urriða, áls og hornsíla í vatninu. Hornsílin í vatninu eru mjög sérstök þar sem þau skortir kviðgadda. Töluvert af andfuglum verpa við vatnið og mófuglar umhverfis það.
Umhverfisnefnd hefur umsjón og eftirlit með svæðinu og vill árétta að tímabundin staðsetning sauna húss við rætur friðlands geti haft neikvæð áhrif á friðlandið. Samkvæmt friðlýsingarskilmálum er óheimilt að trufla dýralíf og raska lífríki í friðlandinu og leggur nefndin ríka áherslu á að gestir friðlandsins fari ekki út í vatnið. Umhverfisnefnd telur mikilvægt að starfsemin raski ekki aðgangi almennings að svæðinu og tryggt verði að starfsemin skilji ekki eftir ummerki.
Þá leggur umhverfisnefnd til að unnt verði að rifta stöðuleyfi komi í ljós að starfsemin standist ekki skilmála friðlýsingar.
Bæjarráð Garðabæjar
03
12. (2207). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 26. mars 2026 varðandi stöðuleyfi fyrir sauna hús. Sótt er um að fá leyfi til að koma fyrir færanlegu saunuhýsi við efra bílastæðið við Vífilsstaðavatn. Sú staðsetning sem lögð er til er utan friðlands Vífilsstaðavatns.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að byggingarfulltrúi veiti stöðuleyfi fyrir saunahýsi til 6 mánuða til reynslu enda er starfsemin innan svæðis sem er fyrirhugað til almennrar útivistar samkvæmt deiliskipulagi.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
6. fundur
Lögð fram umsókn um stöðuleyfi fyrir sauna hús. Sótt er um að fá leyfi til að koma fyrir færanlegu saunuhýsi við efra bílastæðið við Vífilsstaðavatn. Sú staðsetning sem lögð er til er utan friðlands Vífilsstaðavatns.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að byggingarfulltrúi veiti stöðuleyfi fyrir saunahýsi til 6 mánuða til reynslu enda er starfsemin innan svæðis sem er fyrirhugað til almennrar útivistar samkvæmt deiliskipulagi.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
5. fundur
Lögð fram umsókn um stöðuleyfi fyrir sauna hús í landi Garðabæjar.
Hrönn Hafliðadóttir gerði grein fyrir athugun umhverfissviðs á valkostum varðandi veitingu leyfa fyrir saunahúsum.
Vísað til skoðunar hjá umhverfissviði.
Bæjarráð Garðabæjar
07
33. (2181). fundur
Lögð fram beiðni Litla Sauna Hússins slf., um stöðuleyfi fyrir saunu í Sjálandi. Bæjarráð vísar erindinu til skoðunar og úrvinnslu á umhverfissviði.