7. (977). fundur
7. (977). fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
16.04.2026
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Margrét Bjarnadóttir - forseti bæjarstjórnar
- Almar Guðmundsson - bæjarfulltrúi
- Björg Fenger - bæjarfulltrúi
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - bæjarfulltrúi
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - bæjarfulltrúi
- Gunnar Valur Gíslason - bæjarfulltrúi
- Guðfinnur Sigurvinsson - bæjarfulltrúi
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - bæjarfulltrúi
- Harpa Þorsteinsdóttir - varabæjarfulltrúi
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - bæjarfulltrúi
- Rakel Steinberg Sölvadóttir - varabæjarfulltrúi
Ritari
- Lúðvík Örn Steinarsson
Fundurinn er hljóðritaður og streymt beint á vef bæjarins.
Margrét Bjarnadóttir, forseti bæjarstjórnar, setti fund og stjórnaði.
Fundargerð bæjarstjórnar frá 19. mars 2026 er lögð fram.
Dagskrá
01
Fundargerð bæjarráðs frá 24/3 ´26.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir ræddi 9.tl. fyrirspurn Garðabæjarlistans um tekjutengda afslætti til barnafjölskyldna.
Fundargerðin sem er 9.tl. er samþykkt samhljóða.
02
Fundargerð bæjarráðs frá 31/3 ´26.
Björg Fenger ræddi 5.tl. Hestamannafélagið Sprettur - viljayfirlýsing og 11.tl. umsókn um stöðuleyfi fyrir sauna hús.
Harpa Þorsteinsdóttir ræddi 11.tl. umsókn um stöðuleyfi fyrir sauna hús.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir ræddi 11.tl. umsókn um stöðuleyfi fyrir sauna hús.
Björg Fenger tók til máls að nýju og ræddi 11.tl. umsókn um stöðuleyfi fyrir sauna hús.
Harpa Þorsteinsdóttir tók til máls að nýju og ræddi 11.tl. umsókn um stöðuleyfi fyrir sauna hús.
Almar Guðmundsson tók til máls og ræddi 11.tl. umsókn um stöðuleyfi fyrir sauna hús.
Margrét Bjarnadóttir ræddi 11.tl. umsókn um stöðuleyfi fyrir sauna hús.
Fundargerðin sem er 14.tl. er samþykkt samhljóða.
2.11 - 2509209 - Umsókn um stöðuleyfi fyrir sauna hús.
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 26. mars 2026 varðandi stöðuleyfi fyrir sauna hús. Sótt er um að fá leyfi til að koma fyrir færanlegu saunuhýsi við efra bílastæðið við Vífilsstaðavatn. Sú staðsetning sem lögð er til er utan friðlands Vífilsstaðavatns. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að byggingarfulltrúi veiti stöðuleyfi fyrir saunahýsi til 6 mánuða til reynslu enda er starfsemin innan svæðis sem er fyrirhugað til almennrar útivistar samkvæmt deiliskipulagi.
Fylgiskjöl
2.3 - 2603439 - Sjúkraþjálfun Garðabæjar - samningur um leigu á rými í Miðgarði.
Bæjarstjórn samþykkir fyrirliggjandi samning milli Garðabæjar og Sjúkraþjálfunar Garðabæjar fyrir aðstöðu heilsueflandi starfsemi í 600 fermetra rými á 2. hæð í Miðgarði.
Fylgiskjöl
2.7 - 2603474 - Umsókn Brynju leigufélags um stofnframlag.
Bæjarstjórn samþykkir að verða við erindi Brynju leigufélags ses. um greiðslu sex stofnframlaga vegna kaupa á fjórum tveggja herbergja íbúðum og tveimur þriggja herbergja íbúðum í Garðabæ árið 2026. Áætlað kaupverð er 463,6 mkr. og nemur stofnframlag 12% eða 55,6 mkr. (mál nr. 2603474)
Fylgiskjöl
03
Fundargerð bæjarráðs frá 14/4 ´26.
Fundargerðin sem er 20.tl. er samþykkt samhljóða.
3.3 - 2010080 - Afgreiðsla skipulagsnefndar - Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 6. Garðahverfi.
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 10. apríl 2026 varðandi tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til Garðahverfis og Garðaholts og hefur verið auglýst samhliða tillögu að breytingu deiliskipulags Garðahverfis. Í tillögunni eru gerðar eftirfarandi breytingar: Afmörkun Grænagarðs, 1.89 OP er breytt. Stækkun til vesturs, skerðing um íbúðarlóð í NV-horni. Afmarkað stofnanasvæði 1.90 S fyrir samfélagsþjónustu/skólastarfsemi. Afmörkun íbúðarsvæðis 1.76 Íb er breytt í samræmi við breytingu á afmörkun Grænagarðs. Nýr tengistígur í Garðahverfi. Gönguleiðir við Garðakirkju skilgreindar sem tengistígar. Auk þess er gerð eftirfarandi leiðrétting á aðalskipulagsuppdrætti: Á staðfestum aðalskipulagsuppdrætti frá 2018 var svæði 1.81 M fyrir mistök einungis sýnt að hluta, svæði 1.80 var ekki sýnilegt og auk þess rangmerkt S í stað ÍÞ. Prentuð útgáfa uppdráttarins var leiðrétt nema landnotkunarmerking svæðis 1.80. Þessi atriði eru hér með færð í rétt horf og til samræmis við staðfesta greinargerð og auglýsta uppdrætti. Athugasemdir og umsagnir gefa ekki tilefni til breytinga á tillögunni. Skipulagsnefnd Garðabæjar samþykkir tillöguna sem breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 óbreytta frá auglýstri tillögu.
Fylgiskjöl
3.4 - 2601486 - Afgreiðsla skipulagsnefndar - Birkiholt 14 - Stækkun byggingarreits - Fyrirspurn til umhverfissviðs.
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 10. apríl 2026 varðandi fyrirspurn lóðarhafa að endaraðhúsinu Birkiholti 14 um hugmynd að útfærslu bílageymslu við norðurhlið raðhússins. Skipulagsnefnd taldi að til greina komi að vísa tillögu þess efnis í grenndarkynningu ef að viðbygging fari ekki nær lóðarmörkum en 1 metri og að kvöð komi um gróður milli byggingarreits og lóðarmarka. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að skipulagsstjóri vísi umsókn um deiliskipulagsbreytingu til grenndarkynningar sem óverulegri breytingu deiliskipulags Breiðumýrar og norðanverðs Sviðholts. Sækja þarf um deiliskipulagsbreytingu.
Fylgiskjöl
- Skipulagsnefnd Garðabæjar - 7 (10.4.2026) - Birkiholt 14 - Stækkun byggingarreits - Fyrirspurn til umhverfissviðs.pdf
- Skipulagsnefnd Garðabæjar - 3 (12.2.2026) - Birkiholt 14 - Stækkun byggingarreits - Fyrirspurn til umhverfissviðs.pdf
- Birkiholt 14.pdf
- Birkiholt 14 Fyrirspurn.pdf
- 26002IR- Birkiholt 14 AU20260217.pdf
- 26002IR- Birkiholt 14 DB 20260217.pdf
3.5 - 2505354 - Afgreiðsla skipulagsnefndar - Teistunes 1 - byggingareitur - Fyrirspurn til umhverfissviðs.
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 10. apríl 2026 varðandi fyrirspurn um tillögu að útfærslu breytinga á einbýlishúsinu að Teistunesi 1. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að skipulagsstjóri vísi tillögu að óverulegri deiliskipulagsbreytingu til grenndarkynningar sem er í samræmi við gögn sem fylgja fyrirspurn. Sækja þarf um deiliskipulagsbreytingu. Grenndarkynna skal eigendum Kríuness 1 og 4, Súluness 3 og 5 og Þernuness 3 og 5.
Fylgiskjöl
3.6 - 2601143 - Afgreiðsla skipulagsnefndar - Vesturhraun 3 - Deiliskipulagsbreyting.
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 10. apríl 2026 varðandi tillögu að óverulegri breytingu deiliskipulags Molduhrauns sem nær til lóðarinnar Vesturhraun 3 að lokinni grenndarkynningu. Gert er ráð fyrir stækkun byggingarreits við húsgafl að sunnanverðu að götu. Einnig er gert ráð fyrir að ákvæði um vegghæð hækki úr 7,5 í 8,35 m. Tillagan er sett fram á breytingaruppdrætti og fylgja með útlitsteikningar af fyrirhugaðri viðbyggingu. Engar athugasemdir bárust. Tillagan skoðast því samþykkt sem óveruleg breyting deiliskipulags Molduhrauns.
Fylgiskjöl
3.7 - 2603397 - Afgreiðsla skipulagsnefndar - Fífumýri 3 - Viðbygging - Fyrirspurn til umhverfissviðs.
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 10. apríl 2026 varðandi fyrirspurn lóðarhafa að Fífumýri 3 um tillögur að breytingum á einbýlishúsinu. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að skipulagsstjóri vísi umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum í þá veru sem fyrirspurn lítur að í grenndarkynningu. Sækja þarf um byggingarleyfi og vera í samráði við byggingarfulltrúa og skipulagsstjóra um útfærslur og framsetningu grenndarkynntra gagna. Grenndarkynna skal lóðarhöfum að Fífumýri 1, 2, 4, 5 og 6 sem og Engimýri 11, 13 og 15.
Fylgiskjöl
3.8 - 2601487 - Afgreiðsla skipulagsnefndar - Suðurhraun 6 og 10 - Deiliskipulagsbreyting.
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 10. apríl 2026 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Molduhrauns sem nær til lóðanna Suðurhraun 6 og 10 og fylgir umsókn um deiliskipulagsbreytingu. Einnig lagt fram minnisblað lóðarhafa um samnýtingu bílastæða og tillögu að kvöð um sameiginleg afnot bílastæða milli lóða sem þinglýst yrði í kjölfar deiliskipulagsbreytingar. Tillagan gerir ráð fyrir eftirfarandi breytingum: -Grunnflötur húsa verði 60% af flatarmáli lóðar í stað 50%. -Heimilt er að hafa sameiginlega aðkomu að aðliggjandi lóðum. Þ.e. aka má yfir eina lóð til að komast að annarri, í samræmi við þinglýstar kvaðir á útgefnum mæliblöðum. -Heimilt er að samnýta bílastæði á aðliggjandi lóðum, þannig að bygging á lóð nr. 10 getur nýtt bílastæði sem tilheyra lóð nr. 6, í samræmi við þinglýstar kvaðir á útgefnum mæliblöðum. -Ákvæði um að bílastæði skulu að jafnaði vera götumegin við hús og ákvæði um bindandi byggingarlínur fellt út þar sem það er ekki viðeigandi við Suðurhraun. Skipulagsnefnd leggur til að eftirfarandi breytingar verði gerðar á tillögunni: Í grein 2.2.2. standi: Hæðarkótar á jarðhæðum eru sýndir á hæðablöðum og er hámarkshæð frá gólfplötu jarðhæða í mæni 9,8 m. (Sú hæð er til samræmis við bygginguna sem fyrir er á lóðinni. Ákvæði um hæð þakbrúnar er því fellt út) Í grein 2.1.4 Frágangur lóða bætist við: "Breidd kvaðar um gróðurbelti innan lóðar númer 10 skal ná að húshlið þar sem að byggingarreitur færist að götu. Ef gafl sem snýr að götu verður gluggalaus skal hugað vel að útliti hans og yfirbragði t.d. með uppbroti í efnisvali, hávöxnum trjátegunum, klifurgróðri eða listaverki." Skipulagsnefnd vísar tillögunni með ofangreindum breytingum til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Fylgiskjöl
- Skipulagsnefnd Garðabæjar - 7 (10.4.2026) - Suðurhraun 10 - Deiliskipulagsbreyting.pdf
- Skipulagsnefnd Garðabæjar - 6 (26.3.2026) - Suðurhraun 10 - Deiliskipulagsbreyting.pdf
- Minnisblað - Suðurhraun 6 og 10.pdf
- Kvöð - Suðurhraun 6 og 10.pdf
- Suðurhraun 6 og10_Deiliskipulagsbreyting-skýringaruppdráttur.pdf
- Suðurhraun 6 og10_Deiliskipulagsbreyting.pdf
04
Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 8/4 ´26.
Hrannar Bragi Eyjólfsson ræddi 1.tl. vígslu fundarrýma og setustofu á 2. hæð í Miðgarði, 2.tl. Íþróttaþing, samráðsfund íþróttafélaga Garðabæjar, 3.tl. sumarnámskeið barna 2026 og 4.tl. Hönnun - útboð - Lambamýri 2. áfangi - frístundaþjónusta fyrir fötluð ungmenni.
Harpa Þorsteinsdóttir ræddi 2.tl. Íþróttaþing, samráðsfund íþróttafélaga Garðabæjar.
Hrannar Bragi Eyjólfsson tók til máls að nýju og ræddi 2.tl. Íþróttaþing, samráðsfund íþróttafélaga Garðabæjar.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir ræddi 2.tl. Íþróttaþing, samráðsfund íþróttafélaga Garðabæjar.
Fundargerðin er lögð fram.
05
Fundargerð leikskólanefndar frá 18/3 ´26.
Margrét Bjarnadóttir ræddi 1.tl. heimsókn leikskólanefndar í Urriðaból við Holtsveg og 2.tl. erindi til leik- og grunnskólanefnda frá Hjallastefnunni.
Fundargerðin er lögð fram.
06
Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 9/4 ´26.
Guðfinnur Sigurvinsson ræddi fundargerðina.
Almar Guðmundsson ræddi 2.tl. Jazzþorpið í Garðabæ 2026.
Fundargerðin er lögð fram.
09
Fundargerð skólanefndar grunnskóla frá 18/3 ´26.
Sigríður Hulda Jónsdóttir ræddi 1.tl. Þróunarsjóð grunnskóla 2026-2027 og 2.-26.tl. umsóknir úr Þróunarsjóði grunnskóla.
Fundargerðin er lögð fram.
10
Fundargerð skólanefndar grunnskóla frá 25/3 ´26.
Sigríður Hulda Jónsdóttir ræddi 1.tl. innleiðingu farsældar í Garðabæ, 2.tl. Þróunarsjóð grunnskóla, 3.tl. erindi til leik- og grunnskólanefnda frá Hjallastefnunni, 4.tl. erindi til skólanefndar frá Flataskóla og 5.tl. Hjallastefnan, uppbygging á Vífilsstöðum.
Fundargerðin er lögð fram.
12
Fundargerð velferðarráðs frá 20/3 ´26.
Gunnar Valur Gíslason ræddi 1.tl. endurskoðun á stefnu Garðabæjar í málefnum fatlaðs fólks, 2.tl. frístundaþjónusta fatlaðra ungmenna og 3.tl. búsetuúrræði fyrir fatlað fólk í Hnoðraholti.
Rakel Steinberg Sölvadóttir ræddi 3.tl. búsetuúrræði fyrir fatlað fólk í Hnoðraholti.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir ræddi 1.tl. endurskoðun á stefnu Garðabæjar í málefnum fatlaðs fólks.
Fundargerðin er lögð fram.
13
Fundargerðir heilbrigðisnefndar frá 24/2 og 30/3 ´26.
Fundargerðirnar eru lagðar fram.
15
Fundargerð samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsv. frá 18/3 ´26.
Fundargerðin er lögð fram.
16
Fundargerð stjórnar Sorpu bs. frá 11/2 ´26.
Gunnar Valur Gíslason ræddi 2.tl. málefni Endurvinnslustöðva - lokun Dalvegar og breyting á fjölda flokka og 8.tl. aðalfund Sorpu bs.
Fundargerðin er lögð fram.
19
Fundargerðir stjórnar Strætó bs. frá 10/3 og 20/3 ´26.
Hrannar Bragi Eyjólfsson ræddi fundargerð 20. mars 2026, 1.tl. hleðsluútboð og fundargerð 30. mars 2026 2.tl. nýtt félag, 3.tl. ársreikningur 2025, 4.tl. innri endurskoðun, 5.tl. umræður um gjaldskrá og 6.tl. uppgjör við verktaka.
Harpa Þorsteinsdóttir ræddi fundargerð 20. mars 2026, nýtt félag, 3.tl. ársreikning og 5.tl. umræður um gjaldskrá.
Hrannar Bragi Eyjólfsson tók til máls að nýju og ræddi fundargerð 20. mars 2026, 5.tl. umræður um gjaldskrá.
Harpa Þorsteinsdóttir tók til máls að nýju og ræddi fundargerð 20. mars 2026, 5.tl. umræður um gjaldskrá.
Björg Fenger ræddi fundargerð 20. mars 2026, 2.tl. nýtt félag.
Fundargerðirnar eru lagðar fram.
20
Endurskoðun á stefnu Garðabæjar í málefnum fatlaðs fólks.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða Stefnu Garðabæjar í málefnum fatlaðs fólks.
21
Húsnæðisáætlun Garðabæjar 2026
Almar Guðmundsson tók til máls.
Rakel Steinberg Sölvadóttir tók til máls.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun:
"Húsnæðisáætlun Garðabæjar ber merki þess að séreignastefna er áfram í forgangi hjá meirihlutanum. Áætlunin ber þó einnig merki um metnað í málaflokki fatlaðs fólks, sem er vel, en Garðabæjarlistinn vill sjá frekari áherslu á uppbyggingu félagslegs leiguhúsnæðis, búseturéttaríbúða og leiguhúsnæðis í samstarfi við óhagnaðardrifin félög. Við eigum öll að geta búið í Garðabæ."
Björg Fenger tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun:
"Uppfærð húsnæðisáætlun Garðabæjar fyrir árið 2026 endurspeglar áframhaldandi metnaðarfulla uppbyggingu íbúðarhúsnæðis sem miðar að því að mæta vaxandi þörf á húsnæðismarkaði og styðja við heilbrigt og fjölbreytt samfélag.
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja ríka áherslu á að uppbygging húsnæðis fari hönd í hönd við uppbyggingu innviða, þannig að tryggð sé áfram góð og aðgengileg þjónusta við íbúa, líkt og niðurstöður þjónustukannana hafa ítrekað staðfest.
Í áætluninni er lögð sérstök áhersla á fjölbreytni í íbúðagerð. Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins fagna þeirri skýru áherslu sem lögð er á aukna uppbyggingu sérbýlis og telja hana lykilatriði í áframhaldandi þróun bæjarins. Fyrirhuguð uppbygging sérbýlis í Hnoðraholti suður, á Álftanesi og í Háholti Hnoðraholts er mikilvægt og tímabært skref sem mætir eftirspurn fjölskyldna og styrkir stöðu Garðabæjar sem eftirsóknarverðs búsetukosts.
Jafnframt er mikilvægt að tryggja að ólíkir hópar hafi raunhæfan aðgang að húsnæði við hæfi, hvort sem um er að ræða fyrstu kaup, stækkun eða tilfærslu í minna húsnæði. Þar vegur séreignarstefna þungt sem grundvöllur að öryggi og stöðugleika heimila.
Áætlunin tekur einnig mið af þörf fyrir hagkvæmar íbúðir fyrir ólíka hópa. Áfram er gert ráð fyrir góðu samstarfi við Brynju leigufélag um kaup þeirra á leiguíbúðum í bænum og verið er að hefja uppbyggingu við nýjan búsetukjarna í Hnoðraholti sem mun bæta aðgengi að húsnæði fyrir fatlað fólk.
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins líta á áætlunina sem mikilvægan lið í því að tryggja áframhaldandi uppbyggingu, jafnvægi og lífsgæði í Garðabæ."
Rakel Steinberg Sölvadóttir tók til máls að nýju og lagði fram eftirfarandi bókun:
"Viðreisn í Garðabæ vill vekja athygli á því að uppsetning og útfylling húsnæðisáætlunar samkvæmt sniðmáti HMS geti, að hluta til, haft í för með sér að formkröfur vegi þyngra en raunveruleg áætlanagerð. Í skýrslunni má víða sjá óbreytt gildi milli ára sem gefa takmarkaða mynd af mögulegri framtíðarþróun. Þá teljum við mikilvægt að skýrt samræmi sé milli talna um félagslegt og hagkvæmt húsnæði og þess rökstuðnings sem fram kemur í texta áætlunarinnar. Við leggjum áherslu á að í samstarfi við HMS verði skoðað hvernig megi þróa bæði form og vinnulag þannig að húsnæðisáætlanir nýtist sem raunverulegt og gagnlegt stjórntæki. Jafnframt er bent á tækifæri til að byggja áfram á fyrirliggjandi greiningum um leik- og grunnskólaþörf og vinna markvisst með þau gögn til framtíðar."
Almar Guðmundsson tók til máls að nýju.
Bæjarstjórn samþykkir með 8 atkvæðum (AG, BF, SHJ, MB, HBE, GVG, GS, BDG) uppfærslu húsnæðisáætlunar Garðabæjar til 10 ára í samræmi við 1. gr. reglugerðar um húsnæðisáætlun sveitarfélaga nr. 1248/2018, sbr. breyting samkvæmt reglugerð nr. 1597/2022 og lög um húsnæðismál nr. 44/1998. 3 bæjarfulltrúar (ÞÞ, HÞ, RSS) sátu hjá.
22
Tillaga um kjörstaði og skipun fulltrúa í undirkjörstjórnir og hverfiskjörstjórn Álftaness við sveitarstjórnarkosningar 16. maí 2026.
Bæjarstjórn samþykkir að kjörstaðir við sveitarstjórnarkosningar sem fram eiga að fara 16. maí 2026 verði tveir, í Álftanesskóla þar sem kjördeildir verða tvær og Íþróttahúsinu Mýrinni þar sem kjördeildir verða tíu.
Bæjarstjórn samþykkir að kjósa eftirfarandi fulltrúa í 12 undirkjörstjórnir vegna kosninga til sveitarstjórnar sem fram eiga að fara laugardaginn 16. maí 2026.
Fulltrúar í undirkjörstjórnir í Álftanesskóla.
Anna Kristmundsdóttir, Asparholti 1, Elsa Rut Leifsdóttir, Birkiholti 6, Emilía Gunnarsdóttir, Krókamýri 78, Guðmundur Ingi Bjarnason, Vesturtúni 42, Guðríður Eyvindardóttir, Hólmatúni 43, Ingibjörg Systa Jónsdóttir, Hestamýri 2A, Katrín Jónína Gunnarsdóttir, Birkiholti 6, Kristín Rós Björnsdóttir, Sjávargötu 22, Marta Ottósdóttir, Asparholti 1, Rúna Lísa Þráinsdóttir, Sviðsholtsvör 9.
Fulltrúar í undirkjörstjórnir í Íþróttahúsinu Mýrinni.
Agnes Ýr Pétursdóttir, Eskiási 1B, Anna Ingibergsdóttir, Bæjargili 65, Anna Margrét Halldórsdóttir, Kríunesi 14, Auður Atladóttir, Holtsvegi 39, Árni Gunnar Kristjánsson, Hlíðarbyggð 9, Birna Ágústdóttir, Kinnargötu 57, Birta María Sigmundsdóttir, Ótilgreint, Björn Ingi L. Jónsson, Lautargötu 4, Bryndís Kristjánsdóttir, Ægisgrund 13, Brynhildur Þórðardóttir, Vinastræti 12, Daníel Arnar Magnússon, Hallakri 4A, Daníel Jósefsson, Kjarrmóum 39, Dóra Þórisdóttir, Espilundi 10, Dröfn Ágústsdóttir, Lyngmóum 7, Edda Björg Sigurðardóttir, Hraunsholtsvegi 10, Eiríkur Sigurðsson, Strandvegi 26, Erna Björk Ásbjörnsdóttir, Kjarrmóum 39, Eva Júlía Birgisdóttir, Ásbúð 49, Guðmunda Inga Gunnarsdóttir, Strandvegi 10, Guðrún Valgerður Ásgeirsdóttir, Lyngási 1C, Gunnhildur Eva Arnoddsóttir, Hagaflöt 4, Gunnsteinn Geirsson, Hagaflöt 4, Hafdís Bára Kristmundsdóttir, Asparholti 5, Haukur Steinn Helgason, Norðurbrú 2, Haukur Þorsteinsson, Eskiási 1C, Heimir Björnsson, Bæjargili 98, Herdís Sigurbergsdóttir, Lynggötu 3, Hildur Benediktsdóttir, Steinprýði 4 (Gimli), Ingimundur Orri Jóhannsson, Heiðarlundi 9, Íris Rut Erlingsdóttir, Furuási 2, Íris Rut Sigurbergsdóttir, Móaflöt 7, Íris Þóra Birgisdóttir, Ásbúð 49, Kolbrún Sigmundsdóttir, Hofakri 3, Kristín Bjarnadóttir, Maríugötu 5, Kristín Einarsdóttir, Ótilgreint, Lára Gísladóttir, Lambamýri 3, Magnús Stephensen, Löngumýri 57, Ragnheiður Stephensen, Löngumýri 57, Ríkey Jóna Eiríksdóttir, Hrísmóum 6, Sigríður Logadóttir, Kinnargötu 82, Skarphéðinn Jónsson, Strandvegi 10, Sunna G. Sigurðardóttir, Ásbúð 49, Unnur Flygenring, Strandvegi 11, Urður Hafþórsdóttir, Þorraholti 1B, Vala Dröfn Hauksdóttir, Móaflöt 37, Vala Guðný Guðnadóttir, Heiðarlundi 9, Þórhildur Reinharðsdóttir, Aratúni 18, Þóroddur Björgvinsson, Keldugötu 1, Þórunn Þórsdóttir, Maríugötu 32.
Bæjarstjórn samþykkir að kjósa eftirfarandi fulltrúa í hverfiskjörstjórn Álftaness vegna sveitarstjórnarkosninga sem fram eiga að fara 16. maí 2026.
Snædís Björnsdóttir, Lyngmóum 7, Lúðvík Hjalti Jónsson, Lindarflöt 50, Guðfinna Aradóttir, Hólmatúni 8, Þorgerður Kristinsdóttir, Vesturtúni 42.
23
Ársreikningur Garðabæjar 2025 - fyrri umræða
Almar Guðmundsson, bæjarstjóri fylgdi úr hlaði ársreikningi Garðabæjar fyrir árið 2025. Gerði bæjarstjóri grein fyrir helstu niðurstöðum reikningsins og lykiltölum. Almar þakkaði starfsmönnum bæjarins fyrir þeirra hlut að góðum rekstri bæjarins. Bæjarstjóri lagði til að vísa ársreikningnum til síðari umræðu í bæjarstjórn.
Gunnar Valur Gíslason tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun:
"Ársreikningur Garðabæjar fyrir árið 2025 staðfestir enn á ný sterka fjárhagslega stöðu bæjarsjóðs Garðabæjar og ábyrga fjármálastjórn. Rekstrarniðurstaða er jákvæð um 2.753 m.kr. og fjármagnsgjöld lækkuðu um 275 m.kr. frá árinu 2024. Þetta er afar góð niðurstaða miðað við óvenju óhagstæðar ytri aðstæður, viðvarandi verðbólgu og háa vexti.
Tekjur jukust umfram áætlanir og reksturinn skilar traustu veltufé frá rekstri, alls 2.389 m.kr. Samhliða því var hrein lántaka óveruleg á árinu 2025. Skuldaviðmið lækkaði úr 97% í 86% og skuldahlutfall lækkaði úr 120% í 110%. Þetta er skýr vísbending um að markviss stefna um aðhald, ábyrgð og langtímahugsun skilaði miklum árangri árinu.
Haldið var áfram öflugri uppbyggingu í bænum með fjárfestingum í skólum, íþróttamannvirkjum, fráveitu og annarri grunnþjónustu. Slík uppbygging er forsenda þess að mæta þörfum ört vaxandi samfélags, en íbúum Garðabæjar fjölgaði um rúmlega 600 á árinu 2025. Það er mikilvægt að tekjur af sölu byggingarréttar hafa ávallt verið nýttar til áframhaldandi uppbyggingar innviða og niðurgreiðslu skulda.
Þessi góði árangur hefur náðst á sama tíma og álögum er stillt í hóf. Útsvarshlutfallið er með því lægsta sem þekkist meðal sveitarfélaga á Íslandi, álagningarhlutfall fasteignagjalda hefur verið lækkað ásamt því að almennar gjaldskrárhækkanir hafa ekki verið umfram verðlag.
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins telja að ársreikningur Garðabæjar fyrir árið 2025 endurspegli traustan rekstur, skýra forgangsröðun og ábyrg vinnubrögð. Sá árangur skapar sterkan grunn fyrir áframhaldandi uppbyggingu, öfluga þjónustu og aukin lífsgæði í Garðabæ. Um þessa mikilvægu hagsmuni bæjarbúa vilja bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins standa vörð um hér eftir sem hingað til."
Þorbjörg Þorvaldsdóttir tók til máls.
Harpa Þorsteinsdóttir tók til máls.
Almar Guðmundsson tók til máls að nýju.
Bæjarstjórn samþykkir að vísa ársreikningi Garðabæjar 2025 til síðari umræðu í bæjarstjórn sem er fyrirhuguð 7. maí 2026.