Beint í efni

Ársreikningur Garðabæjar 2025 (síðari umræða).

Málsnúmer 2508513

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

8. (978). fundur

Almar Guðmundsson, bæjarstjóri kvaddi sér hljóðs og fór nánar yfir helstu niðurstöður ársreiknings Garðabæjar fyrir árið 2025.

Bæjarstjóri lagði til við bæjarstjórn að samþykkja ársreikning Garðabæjar fyrir árið 2025.

Gunnar Valur Gíslason tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun:

"Ársreikningur Garðabæjar fyrir árið 2025 staðfestir enn á ný sterka fjárhagslega stöðu bæjarsjóðs Garðabæjar og ábyrga fjármálastjórn. Rekstrarniðurstaða er jákvæð um 2.753 m.kr. og fjármagnsgjöld lækkuðu um 275 m.kr. frá árinu 2024. Þetta er afar góð niðurstaða miðað við óvenju óhagstæðar ytri aðstæður, viðvarandi verðbólgu og háa vexti.
Tekjur jukust umfram áætlanir og reksturinn skilar traustu veltufé frá rekstri, alls 2.389 m.kr. Samhliða því var hrein lántaka óveruleg á árinu 2025. Skuldaviðmið lækkaði úr 97% í 86% og skuldahlutfall lækkaði úr 120% í 110%. Þetta er skýr vísbending um að markviss stefna um aðhald, ábyrgð og langtímahugsun skilaði miklum árangri árinu.
Haldið var áfram öflugri uppbyggingu í bænum með fjárfestingum í skólum, íþróttamannvirkjum, fráveitu og annarri grunnþjónustu. Slík uppbygging er forsenda þess að mæta þörfum ört vaxandi samfélags, en íbúum Garðabæjar fjölgaði um rúmlega 600 á árinu 2025. Það er mikilvægt að tekjur af sölu byggingarréttar hafa ávallt verið nýttar til áframhaldandi uppbyggingar innviða og niðurgreiðslu skulda.
Þessi góði árangur hefur náðst á sama tíma og álögum er stillt í hóf. Útsvarshlutfallið er með því lægsta sem þekkist meðal sveitarfélaga á Íslandi, álagningarhlutfall fasteignagjalda hefur verið lækkað ásamt því að almennar gjaldskrárhækkanir hafa ekki verið umfram verðlag.
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins telja að ársreikningur Garðabæjar fyrir árið 2025 endurspegli traustan rekstur, skýra forgangsröðun og ábyrg vinnubrögð. Sá árangur skapar sterkan grunn fyrir áframhaldandi uppbyggingu, öfluga þjónustu og aukin lífsgæði í Garðabæ. Um þessa mikilvægu hagsmuni bæjarbúa vilja bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins standa vörð um hér eftir sem hingað til."

Þorbjörg Þorvaldsdóttir tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun:

"Bæjarfulltrúar Garðabæjarlistans vilja koma á framfæri þökkum til starfsfólks bæjarins fyrir vinnu við ársreikning. Jákvæð rekstrarafkoma Garðabæjar og lækkandi skuldahlutfall eru fagnaðarefni, skuldir á hvern íbúa hafa einnig lækkað lítillega milli ára. Undirliggjandi er þó sú staða að án sölu byggingarréttar væri A-sjóður rekinn með töluverðum halla. Tekjur af sölu byggingarréttar voru varlega áætlaðar 1,2 milljarðar í fjárhagsáætlun en enda í tæpum 3,7 milljörðum. Einnig reyndust tekjur af útsvari og fasteignaskatti hærri en áætlað var.
Hefði Garðabær ekki selt byggingarrétt fyrir tæpa 2,5 milljarða umfram áætlun væri rekstrarafkoma A-sjóðs neikvæð um 234 milljónir. Hefði enginn byggingarréttur komið til yfirhöfuð væri afkoman neikvæð upp á 1,4 milljarða. Auk þess eru rekstrargjöld í A-hluta rúmum 700 milljónum yfir áætlun og mikilvægt í framhaldinu að rýna vel ástæður þess.
Tekjur af sölu byggingarréttar eru í eðli sínu einskiptistekjur - og Garðabær er því langt frá því að skatttekjur, framlög jöfnunarsjóðs og tekjur af þjónustugjöldum dugi fyrir rekstri grunnþjónustunnar. Það er eðlilegt að sveitarfélag í uppbyggingu brúi bilið með byggingarrétti og skuldi mikið áður en skatttekjur nýrra íbúa og fyrirtækja koma inn. Við höfum þó áhyggjur, því á sama tíma gera háar skuldir Garðabæ veikari fyrir áhrifum ytri þátta - líkt og birtist í fjámagnskostnaði, sem stendur í 1,7 milljörðum og er 100 milljónum yfir áætlun.
Framundan eru áframhaldandi vöxtur og fjárfestingar í innviðum sem eru nauðsynlegir til að veita bæjarbúum viðeigandi þjónustu. Til að standa undir þeirri fjárfestingu er mikilvægt að fara varlega í næstu skref, sérstaklega í ljósi ytri aðstæðna bæði á Íslandi og í heiminum öllum."

Guðlaugur Kristmundsson tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun:

"Rekstrarniðurstaða skv. ársreikningi Garðabæjar fyrir árið 2025 virðist gefa til kynna sterka afkomu af rekstri bæjarins, þ.e. 2,2 ma.kr. hagnað. Þessi niðurstaða staðfestir þær freistingar sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur fallið fyrir. Sömu freistingar og önnur sveitarfélög í vexti hafa fallið fyrir og líða nú fyrir. Staðreyndin er hins vegar sú að rekstrarafkoma af grunnrekstri Garðabæjar er neikvæð um tæpan milljarð! Grunnreksturinn okkar stendur ekki undir sjálfum sér. Með öðrum orðum; grunnrekstur Garðabæjar er ósjálfbær.
Söluandvirði af eignum bæjarins hefur hér verið varið til þess að fjármagna grunnrekstur Garðabæjar í stað þess að verja þeim á ábyrgan hátt og greiða niður skuldir eða ráðast í brýnar fjárfestingar sem stækkandi bæjarfélag þarfnast. Ný hverfi kalla á að fjárfest sé með byggingaframkvæmdum, t.d. í skóla og aðra grunninnviði sem ekki eru byggðar á meðan krónurnar fara í grunnreksturinn. Við nýtum sömu krónuna ekki tvisvar.
Þegar við erum farin að reiða okkur á sölu eigna til að standa undir rekstrinum og fegra afkomu bæjarfélagsins, þá bólgnar báknið bara út og reksturinn verður enn ósjálfbærari. Slík þróun gerir reksturinn brothættari og dregur úr fjárhagslegu svigrúmi. Ákvörðun í framtíðinni um að hætta eða hægja á uppbyggingu bæjarins verður ekki lengur pólitísk eða á okkar valdi, hún verður þá orðin nauðsynleg til þess að fjármagna neysluna. Ákvörðunin um það hvernig eða hvort stækka skuli bæinn yrði ekki lengur tekin af yfirlögðu ráði með framtíðarsýn bæjarfélagsins okkar að leiðarljósi, hún væri tekin af illri nauðsyn. Við verðum að sjálf að hafa forræði fyrir þeirri ákvörðun.
Viðreisn í Garðabæ gagnrýnir þessa stöðu og að afkoman sé fegruð á þennan hátt. Viðreisn vill koma að myndun nýs meirihluta sem tekur á þessari stöðu og snýr grunnrekstrinum við í jákvæða stöðu."

Almar Guðmundsson tók til máls að nýju.

Gunnar Valur Gíslason tók til máls að nýju.

Guðlaugur Kristmundsson tók til máls að nýju.

Gunnar Valur Gíslason tók til máls að nýju.

Almar Guðmundsson tók til máls að nýju.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða við síðari umræðu ársreikning Garðabæjar fyrir árið 2025 samkvæmt 61. gr. sveitarstjórnalaga nr. 138/2011, sbr. 2. tl. 1. mgr. 18. gr. laganna.

Samþykktinni til staðfestingar er ársreikningurinn undirritaður af viðstöddum bæjarfulltrúum.

Bæjarráð Garðabæjar

02

15. (2210). fundur

Lúðvík Hjalti Jónsson fjármálastjóri gerði grein fyrir skýrslu endurskoðenda varðandi ársreikning Garðabæjar fyrir árið 2025. Í skýrslunni er gerð grein fyrir framkvæmd endurskoðunar, helstu áherslum, niðurstöðum og öðrum mikilvægum atriðum.

Bæjarstjórn Garðabæjar

03

7. (977). fundur

Almar Guðmundsson, bæjarstjóri fylgdi úr hlaði ársreikningi Garðabæjar fyrir árið 2025. Gerði bæjarstjóri grein fyrir helstu niðurstöðum reikningsins og lykiltölum. Almar þakkaði starfsmönnum bæjarins fyrir þeirra hlut að góðum rekstri bæjarins. Bæjarstjóri lagði til að vísa ársreikningnum til síðari umræðu í bæjarstjórn.

Gunnar Valur Gíslason tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun:
"Ársreikningur Garðabæjar fyrir árið 2025 staðfestir enn á ný sterka fjárhagslega stöðu bæjarsjóðs Garðabæjar og ábyrga fjármálastjórn. Rekstrarniðurstaða er jákvæð um 2.753 m.kr. og fjármagnsgjöld lækkuðu um 275 m.kr. frá árinu 2024. Þetta er afar góð niðurstaða miðað við óvenju óhagstæðar ytri aðstæður, viðvarandi verðbólgu og háa vexti.
Tekjur jukust umfram áætlanir og reksturinn skilar traustu veltufé frá rekstri, alls 2.389 m.kr. Samhliða því var hrein lántaka óveruleg á árinu 2025. Skuldaviðmið lækkaði úr 97% í 86% og skuldahlutfall lækkaði úr 120% í 110%. Þetta er skýr vísbending um að markviss stefna um aðhald, ábyrgð og langtímahugsun skilaði miklum árangri árinu.
Haldið var áfram öflugri uppbyggingu í bænum með fjárfestingum í skólum, íþróttamannvirkjum, fráveitu og annarri grunnþjónustu. Slík uppbygging er forsenda þess að mæta þörfum ört vaxandi samfélags, en íbúum Garðabæjar fjölgaði um rúmlega 600 á árinu 2025. Það er mikilvægt að tekjur af sölu byggingarréttar hafa ávallt verið nýttar til áframhaldandi uppbyggingar innviða og niðurgreiðslu skulda.
Þessi góði árangur hefur náðst á sama tíma og álögum er stillt í hóf. Útsvarshlutfallið er með því lægsta sem þekkist meðal sveitarfélaga á Íslandi, álagningarhlutfall fasteignagjalda hefur verið lækkað ásamt því að almennar gjaldskrárhækkanir hafa ekki verið umfram verðlag.
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins telja að ársreikningur Garðabæjar fyrir árið 2025 endurspegli traustan rekstur, skýra forgangsröðun og ábyrg vinnubrögð. Sá árangur skapar sterkan grunn fyrir áframhaldandi uppbyggingu, öfluga þjónustu og aukin lífsgæði í Garðabæ. Um þessa mikilvægu hagsmuni bæjarbúa vilja bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins standa vörð um hér eftir sem hingað til."

Þorbjörg Þorvaldsdóttir tók til máls.

Harpa Þorsteinsdóttir tók til máls.

Almar Guðmundsson tók til máls að nýju.

Bæjarstjórn samþykkir að vísa ársreikningi Garðabæjar 2025 til síðari umræðu í bæjarstjórn sem er fyrirhuguð 7. maí 2026.

Bæjarráð Garðabæjar

04

13. (2208). fundur

Davíð Búi Halldórsson, löggiltur endurskoðandi, Arnór Orri Jóhannsson, löggiltur endurskoðandi, starfsmenn Enor og Lúðvík Hjalti Jónsson fjármálastjóri, mættu á fund bæjarráðs.

Davíð Búi Halldórsson, gerði grein fyrir rekstri bæjarins á árinu 2025, efnahagsreikningi í árslok og skýringum í ársreikningi. Fjallað var um lykiltölur og helstu niðurstöður.

Bæjarráð samþykkir framlagðan ársreikning Garðabæjar 2025 samkvæmt 3.mgr. 61.gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Ársreikningur er undirritaður af bæjarstjóra og bæjarráði og vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar. Fyrri umræða í bæjarstjórn er fyrirhuguð á fundi bæjarstjórnar 16. apríl 2026 og síðari umræða á fundi bæjarstjórnar 7. maí 2026.

Bæjarráð Garðabæjar

05

7. (2202). fundur

Bæjarráð samþykkir tillögu um afskriftir viðskiptakrafna árið 2025 samkvæmt framlögðum lista samtals að fjárhæð kr. 461.580.-

Bæjarráð Garðabæjar

06

31. (2179). fundur

Bæjarstjóri gerði grein fyrir árshlutauppgjöri Garðabæjar fyrir tímabilið janúar - júní 2025.
Niðurstaða A og B hluta fyrir tímabilið er í þ.kr.: Rekstrartekjur 16.224.159. Rekstrargjöld 13.870.936. Rekstrarniðurstaða fyrir afskriftir 2.353.224.
Afskriftir (986.461). Rekstrarniðurstaða án fjármunatekna og gjalda 1.366.763. Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld (1.079.727). Rekstrarniðurstaða er jákvæð 287.036.

Fylgiskjöl