15. (2210). fundur
15. (2210). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
28.04.2026
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - varaformaður
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - aðalmaður
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
- Rakel Norðfjörð Vilhjálmsdóttir - varamaður
- Guðlaugur Kristmundsson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
- Lúðvík Örn Steinarsson - sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri velferðarsviðs
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
- Ágúst Þór Guðmundsson - sviðsstjóri þróunar- og þjónustusviðs
- Guðný Hrönn Antonsdóttir - samskipta- og kynningarfulltrúi
Ritari
- Lúðvík Örn Steinarsson
Dagskrá
Málsnúmer 2604418
01
Hraunavá á höfuðborgarsvæðinu - Kynning Almannavarna.
Á fund bæjarráðs mættu Jón Viðar Matthíasson, framkvæmdastjóri almannavarnarnefndar höfuðborgarsvæðisins (AHS) og Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, deildarstjóri almannavarnanefndar höfuðborgarsvæðisins (AHS) og kynntu skýrslu langtímahættumats vegna hraunavár.
Hulda Hauksdóttir, deildarstjóri þjónustu og stafrænnar þróunar, sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2508513
02
Ársreikningur Garðabæjar 2025 - endurskoðunarskýrsla.
Lúðvík Hjalti Jónsson fjármálastjóri gerði grein fyrir skýrslu endurskoðenda varðandi ársreikning Garðabæjar fyrir árið 2025. Í skýrslunni er gerð grein fyrir framkvæmd endurskoðunar, helstu áherslum, niðurstöðum og öðrum mikilvægum atriðum.
Málsnúmer 2602468
03
Vesturtún 17 - Umsókn um byggingarheimild.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Þórhalli Helgasyni, kt. 020277-4919, leyfi fyrir stækkun Vesturtúns 17.
Málsnúmer 2601206
04
Hraunhólar 6A - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Ívari Reyni Antonssyni, kt. 050600-2890, leyfi til að byggja einbýlishús á tveimur hæðum að Hraunhólum 6A.
Málsnúmer 2604015
05
Krókamýri 14 - Umsókn um byggingarheimild.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Ásgeiri Sigurði Ágústssyni, kt. 130983-5109, leyfi fyrir viðbyggingu til austurs við núverandi húsbyggingu að Krókamýri 14.
Málsnúmer 2601406
06
Suðurhraun 1 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Heimum atvinnuhúsnæði ehf., kt. 590404-2410, leyfi til að breyta innra skipulagi rýma 0102, 0103 og hluta af rými 0101 í matshluta 01 að Suðurhrauni 1.
Málsnúmer 2306493
07
Lautargata 1 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita HHV ehf., kt. 450916-1880, leyfi fyrir breytingu á andddyri húss að Lautargötu 1.
Málsnúmer 2602452
08
Miðhraun 4 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Heimum atvinnuhúsnæði ehf., kt. 590404-2410, leyfi fyrir innanhúss breytingum að Miðhrauni 4.
Málsnúmer 2405295
09
Yfirferð tilboða í niðurrif suðurálmu og hluta miðálmu Flataskóla.
Alls bárust fimm tilboð í verkið. Lægsta tilboð hljóðaði upp á 48 m.kr. og það hæsta 93 m.kr.
Við yfirferð tilboða kom í ljós að tilboð lægstbjóðanda uppfyllti ekki lágmarkskröfur útboðsins og var því vísað frá frekari meðferð, í samræmi við útboðsskilmála og lög nr. 120/2016 um opinber innkaup.
Næstlægsta tilboð barst frá H2Orku ehf. Fyrirtækið uppfyllir öll skilyrði útboðsins. Bæjarráð samþykkir að gengið verði til samninga við H2Orku ehf. um framkvæmd verksins að fjárhæð 53.500.000 kr. með virðisaukaskatti.
Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er sviðsstjóra umhverfissviðs falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun
Málsnúmer 2604438
10
Opnun tilboða í verkið - Stækkun Tónlistarskólans, umsjón og eftirlit.
Eftirfarandi tilboð bárust í útboðsverkið "Tónlistarskólinn í Garðabæ - umsjón og eftirlit":
1. Norconsult Ísland ehf., kr. 15.442.500 (84,9%).
2. Verksýn ehf., kr. 16.912.080 (93,0%).
3. VSÓ Ráðgjöf ehf,. kr. 17.084.100 (93,9%).
4. EFLA hf., kr. 17.503.500 (96,2%).
5. JTV ehf., kr. 18.104.500 (99,5%).
6. Verkís hf., kr. 19.705.790 (108,4%).
7. Ferill ehf., kr. 20.619.655 (113,4%).
Kostnaðaráætlun verkkaupa kr. 18.186.400. Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Norconsult Ísland ehf., að fjárhæð kr. 15.442.500 (84,9% af kostnaðaráætlun).
Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er sviðsstjóra umhverfissviðs falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.
Málsnúmer 2601008
11
Samfélags- og viðburðahús í Garðabæ.
Lagt fram minnisblað sviðsstjóra þjónustu- og þróunarsviðs og umhverfissviðs vegna vinnu við þarfagreiningu Samfélags- og viðburðarhúss í Garðabæ.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2401526
12
Holtsbúð 87 - Klaustrið.
Fyrir liggur að lægstbjóðandi í útboði vegna samstarfs um endurbætur og notkun Holtsbúðar 87 (Klaustrið) hefur ekki enn hrint verkefninu í framkvæmd.
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að skoða, í samráði við VSÓ Ráðgjöf hf. sem hefur verið ráðgefandi í málinu, möguleika á framtíðar nýtingu og endurbyggingu Holtsbúðar 87 og gera tillögu til bæjarráðs um framhald málsins.
Málsnúmer 2604441
13
Þjónustumiðstöð GKG.
Lagt fram minnisblað vegna viðræðna Kópavogs, Garðabæjar og Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar, vegna uppbyggingar á þjónustumiðstöð fyrir Golfklúbb Kópavogs og Garðabæjar.
Málsnúmer 2507256
14
Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2026 - úthlutun styrkja.
Bæjarráð samþykkir eftirfarandi tillögu um úthlutun styrkja:
Garðakórinn, kór eldri borgara kr. 500.000.
Kvennaathvarf, kr. 900.000.
Stígamót kr. 900.000.
Kór Vídalínskirkju kr. 300.000.
Örninn - minningar og styrktarsjóður kr. 1.000.000.
UMFÁ herinn - vegna forsetabikarsins kr. 1.000.000.
Bjarkarhlíð kr. 900.000.