Beint í efni

Samfélags- og viðburðahús í Garðabæ.

Málsnúmer 2601008

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

15. (2210). fundur

Lagt fram minnisblað sviðsstjóra þjónustu- og þróunarsviðs og umhverfissviðs vegna vinnu við þarfagreiningu Samfélags- og viðburðarhúss í Garðabæ.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

02

3. (2198). fundur

Á hátíðarfundi bæjarstjórnar Garðabæjar sem haldinn var 6. janúar 2026 var samþykkt tillaga bæjarstjórnar að vinna að byggingu samfélags- og viðburðarhúss í bænum. Var bæjarráði falin framkvæmd samþykktarinnar.
Bæjarráð vísar málinu til skoðunar á þjónustu- og þróunarsviði og umhverfissviði til undirbúnings þarfagreiningar, staðsetningar, hönnunar og framkvæmda.

Fylgiskjöl

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

03

68. fundur

Menningar- og safnanefnd fagnar tillögunni og hlakkar til að vinna að framgöngu menningar- og viðburðahúss.

Fylgiskjöl

Bæjarstjórn Garðabæjar

04

1. (971). fundur

Björg Fenger tók til máls og lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Í tilefni af 50 ára afmæli Garðabæjar samþykkir bæjarstjórn Garðabæjar að vinna að byggingu samfélags- og viðburðarhúss í bænum.
Bæjarstjórn samþykkir að fela bæjarráði að undirbúa þarfagreiningu, staðsetningu, hönnun og framkvæmdir."

Greinargerð
Markmiðið með samfélags- og viðburðahúsi er að skapa nýjan kjarna fyrir menningu og samfélagslega starfsemi í Garðabæ. Stuðlað verði að virkri þátttöku ólíkra aldurshópa þannig að húsið verði lifandi hluti af daglegu lífi bæjarbúa, fremur en rými sem aðeins er nýtt við sérstök tilefni.
Ákveða þarf staðsetningu fyrir húsið og vinna vandaða þarfagreiningu, þar sem horft verði til að byggja upp sveigjanlegt og fjölnota rými sem verði í stöðugri notkun allt árið. Við þarfagreiningu verði litið til rýma sem nýtist til fjölbreytts viðburðahalds, sýninga, samkomna og skapandi starfs.
Sérstök áhersla verði lögð á að bæta aðstöðu fyrir Bókasafn Garðabæjar og starfa með börnum og ungmennum, þar sem leik- og athafnarými verði samþætt menningar- og samfélagsstarfi hússins. Jafnframt verði horft til sameiginlegrar notkunar með Hönnunarsafni Íslands og annarri menningarstarfsemi.

Guðfinnur Sigurvinsson tók til máls.

Ingvar Arnarson tók til máls.

Hrannar Bragi Eyjólfsson tók til máls.

Framkomin tillaga samþykkt samhljóða.