3. (2198). fundur
3. (2198). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
27.01.2026
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - varaformaður
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - aðalmaður
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - aðalmaður
- Guðlaugur Kristmundsson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
- Lúðvík Örn Steinarsson - sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri velferðarsviðs
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
- Ágúst Þór Guðmundsson - sviðsstjóri þróunar- og þjónustusviðs
- Guðný Hrönn Antonsdóttir - samskipta- og kynningarfulltrúi
Ritari
- Lúðvík Örn Steinarsson
Dagskrá
Málsnúmer 2509268
01
Íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup 2025 - kynning
Á fund bæjarráðs mætti Matthías Þorvaldsson, starfsmaður GI rannsókna ehf. og gerði grein fyrir helstu niðurstöðum þjónustukönnunar meðal íbúa Garðabæjar á árinu 2025. Ánægja íbúa með þjónustu bæjarins hækkaði á árinu 2025 miðað við árið áður. Könnunin leiðir í ljós að íbúar í Garðabæ eru þegar á heildina er litið ánægðir með Garðabæ sem sveitarfélag til að búa í.
Hulda Hauksdóttir deildarstjóri þjónustu og stafrænnar þróunar sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2601008
02
Samfélags- og viðburðarhús í Garðabæ.
Á hátíðarfundi bæjarstjórnar Garðabæjar sem haldinn var 6. janúar 2026 var samþykkt tillaga bæjarstjórnar að vinna að byggingu samfélags- og viðburðarhúss í bænum. Var bæjarráði falin framkvæmd samþykktarinnar.
Bæjarráð vísar málinu til skoðunar á þjónustu- og þróunarsviði og umhverfissviði til undirbúnings þarfagreiningar, staðsetningar, hönnunar og framkvæmda.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2601404
03
Útboð - Stækkun Tónlistarskóli.
Bæjarráð felur umhverfissviði að bjóða út fyrirhugaða stækkun á tónlistarskólanum að Kirkjulundi 11 í Garðabæ í samræmi við deiliskipulagsuppdrátt. Um er að ræða u.þ.b. 590 m2 viðbyggingu á einni hæð ásamt 14 m2 kjallara. Gert er ráð fyrir opnu svæði með aðgangi að kennslustofnum, slagverkssal, blásarasal, salerni, kaffistofu og geymslu. Nýja viðbyggingin verður með inngang frá eldri byggingu.
Málsnúmer 2405295
04
Útboð - Flataskóli suðurálma.
Bæjarráð felur umhverfissviði að óska aftur eftir tilboðum verktaka í að rífa hluta Flataskóla, sem er steinhús samtals um 1.170 m². Hlutinn sem á að rífa er að meginhluta byggður á 1958 - 1963, viðbygging við suðurálmu er nýrri byggð á árunum 1992 -1993. Verkefnið á að vinna nú á sumarmánuðum og vera lokið 15. ágúst.
Málsnúmer 2511091
05
Opnun tilboða í útboð vegna gervigrasvalla á Ásgarðssvæðinu.
Eftirfarandi tilboð bárust í útboðsverkið "Garðabær - þrír vellir, endurnýjun gervigrass":
1. Altis ehf. - tilboð 3, kr. 268.960.284.
2. Altis ehf. - tilboð 2, kr. 282.949.284.
3. Altis ehf. - tilboð 1, kr. 290.107.926.
4. Metatron ehf., kr. 308.365.322.
5. Leiktæki og Sport ehf., kr. 338.994.756.
6. Laiderz, kr. 384.324.570.
7. Vallarverk ehf., kr. 448.869.000.
Kostnaðaráætlun var kr. 329.325.000. Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Altis ehf. - tilboð 3, að fjárhæð kr. 268.960.284 (81,67% af kostnaðaráætlun).
Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er sviðsstjóra umhverfissviðs falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.
Málsnúmer 2401526
06
Holtsbúð 87 - samstarf um endurbætur og notkun hússins
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs gerði grein fyrir viðræðum við Setrið eignarhaldsfélag ehf. sem hlaut flest stig m.t.t. valforsendna útboðs og gæðaþátta varðandi samstarfsverkefni um endurbætur, viðhald og rekstur Holtsbúðar 87 - Klaustrið.
Málsnúmer 2512118
07
Garðbæingurinn okkar árið 2025.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir ferlinu við val á Garðbæingnum okkar árið 2025. Dómnefnd skipa Sigurbjörg Helena Jónasdóttir, fyrrverandi formaður Kvenfélags Garðabæjar, Björgvin Júníusson, kennari í Álftanesskóla og fyrrverandi framkvæmdastjóri UMFÁ og Sigríður Ósk Hrafnkelsdóttir söngkona.
Alls bárust 155 tilnefningar frá bæjarbúum.
Stefnt er að því að útnefning Garðbæingsins okkar árið 2025 verði í Sveinatungu fimmtudaginn 29. janúar kl. 17:00.
Málsnúmer 2601430
08
Bréf Alþingis varðandi þingsályktunartillögu um Samgönguáætlun fyrir árin 2026-2040 ásamt fimm ára aðgerðaráætlun fyrir árin 2026-2030, 322. mál.
Lagt fram.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að senda inn umsögn Garðabæjar vegna þingsályktunartillögunnar.
Málsnúmer 2512400
09
Bréf Samgöngustofu varðandi umsögn um geymslustað ökutækja vegna starfsleyfis Okkar Bílaleigu ehf., dags. 22.12.25.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að Okkar Bílaleigu ehf., kt. 490211-0390, Kauptúni 6, Garðabæ, verði veitt starfsleyfi til að starfrækja útibú ökutækjaleigu að Kauptúni 6 með allt að 250 bifreiðum, en um er að ræða starfsemi á vegum Toyota á Íslandi.
Málsnúmer 2601333
10
Bréf Golfklúbbsins Setberg varðandi niðurfellingu fasteignagjalda árið 2026, dags. 19.01.26.
Bæjarráð samþykkir að veita Golfklúbbnum Setbergi styrk að fjárhæð kr. 608.202 til greiðslu fasteignagjalda árið 2026.
Málsnúmer 2601334
11
Bréf Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar varðandi beiðni um niðurfellingu fasteignagjalda árið 2026 dags. 16.01.26.
Bæjarráð samþykkir að veita Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar styrk að fjárhæð kr. 11.708.399 til greiðslu fasteignagjalda árið 2026.