Beint í efni

Íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup 2025

Málsnúmer 2509268

Ferill máls

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

01

37. fundur

Hulda Hauksdóttir, deildarstjóri þjónustu og stafrænnar þróunar kynnti niðurstöður könnunar sem framkvæmd var frá 17. nóvember til 13. janúar sl. Niðurstöður eru mjög jákvæðar í öllum þáttum könnunarinnar. Skólanefnd er sérstaklega ánægð með jákvæða útkomu hvað varðar ánægju foreldra/forráðamanna með grunnskólastarf í bænum og þakkar stjórnendum og öllum starfsmönnum skóla ásamt skólaskrifstofu fyrir faglegt og metnaðarfullt starf.

Skólanefnd Tónlistarskóla Garðabæjar

02

12. fundur

Hulda Hauksdóttir deildarstjóri þjónustu og stafrænnar þróunar kynnti helstu niðurstöður þjónustukönnunar.

Leikskólanefnd Garðabæjar

03

38. fundur

Hulda Hauksdóttir, deildarstjóri þjónustu og stafrænnar þróunar kynnti niðurstöður könnunar sem framkvæmd var frá 17. nóvember til 13. janúar sl. Niðurstöður eru mjög jákvæðar í öllum þáttum könnunarinnar.

Öldungaráð

04

1. fundur

Íbúakönnun - Þjónustukönnun Gallup 2025 lögð fram til kynningar.

Þjónustukönnun Gallup 2025, Hulda Hauksdóttir, deildarstjóri þjónustu og stafrænnar þróunar kynnti niðurstöður könnunar og svaraði fyrirspurnum fundarmanna.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

3. fundur

Lögð fram íbúakönnun/þjónustukönnun Gallups um þjónustu sveitarfélaga á Íslandi.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

06

69. fundur

Hulda Hauksdóttir kynnti niðurstöður þjónustu sveitarfélaga 2025. Nefndin fagnar útkomu menningarmála í könnuninni.

Fylgiskjöl

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

07

47. fundur

Hulda Hauksdóttir kynnti niðurstöður þjónustukönnunar Gallup sem framkvæmd var frá 17. nóvember til 13. janúar sl. Niðurstöður eru mjög jákvæðar og sýna betri einkunn í öllum þáttum könnunarinnar. Hulda fór einnig yfir viðbótar spurningar í könnuninni sem sneru að þátttöku í íþrótta- og tómstundastarfi.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

08

33 (22-26). fundur

Hulda Hauksdóttir, deildarstjóri þjónustu og stafrænnar þróunar kynnti helstu niðurstöður þjónustukönnunar meðal íbúa Garðabæjar á árinu 2025 og svaraði fyrirspurnum fundarmanna. Umhverfisnefnd leggur til að umhverfissvið rýni frekar í niðurstöður sem lúta að sorphirðu og endurvinnslumálum.

Velferðarráð Garðabæjar

09

1. fundur

Íbúakönnun - Þjónustukönnun Gallup 2025 lögð fram til kynningar.

Þjónustukönnun Gallup 2025, Hulda Hauksdóttir, deildarstjóri þjónustu og stafrænnar þróunar kynnti niðurstöður könnunar og svaraði fyrirspurnum fundarmanna.

Bæjarráð Garðabæjar

10

3. (2198). fundur

Á fund bæjarráðs mætti Matthías Þorvaldsson, starfsmaður GI rannsókna ehf. og gerði grein fyrir helstu niðurstöðum þjónustukönnunar meðal íbúa Garðabæjar á árinu 2025. Ánægja íbúa með þjónustu bæjarins hækkaði á árinu 2025 miðað við árið áður. Könnunin leiðir í ljós að íbúar í Garðabæ eru þegar á heildina er litið ánægðir með Garðabæ sem sveitarfélag til að búa í.

Hulda Hauksdóttir deildarstjóri þjónustu og stafrænnar þróunar sat fundinn undir þessum dagskrárlið.

Fylgiskjöl