3. fundur
3. fundur
Skipulagsnefnd Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
12.02.2026
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Kjartan Vilhjálmsson - aðalmaður
- Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
- Baldur Ólafur Svavarsson - aðalmaður
- Guðlaugur Kristmundsson - aðalmaður
- Hlynur Elías Bæringsson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
- Hrönn Hafliðadóttir - verkefnastjóri
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Guðlaugur Kristmundsson mætti til fundarins kl.9.15.
Dagskrá
Málsnúmer 1903374
01
Skipulag - Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 3. Norðurnes
Lögð fram tillaga að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til Norðurness á Álftanesi að lokinni forkynningu ásamt þeim ábendingum og umsögnum sem borist hafa.
Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.
Málsnúmer 1803108
02
Norðurnes Álftaness, deiliskipulag
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Norðurness á Álftanesi að lokinni forkynningu ásamt þeim ábendingum og umsögnum sem borist hafa.
Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.
Málsnúmer 2203422
03
Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 10. Stígakerfi í þéttbýli og þjónustukerfi
Lögð fram tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 sem nær til stígakerfis. Viðfangsefni breytingartillögunnar er heildarendurskoðun á kafla 4.2 aðalskipulagsgreinargerðarinnar um stígakerfi. Svæðið sem tillagan nær til er allt land innan sveitarfélagsmarka Garðabæjar og miðar að því að skilgreina heildrænt og skilvirkt stígakerfi með öryggi og aðlaðandi umhverfi að leiðarljósi. Skilmálar tillögunnar eru ætlaðir til leiðbeiningar fyrir deiliskipulagsgerð, verkhönnun og uppbyggingu stíga í Garðabæ til framtíðar. Texti og myndir í kafla 4.2 um stígakerfi í greinargerð Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 munu verða felldir úr gildi og í staðinn komi endurskoðaður kafli um stígakerfið sem fram er settur í greinargerð framlagðrar tillögu sem kafli 2 "Breytingartillaga".
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Þráinn Hauksson frá Landslagi ehf gerði grein fyrir tillögunni.
Málsnúmer 1710244
04
Gálgahraun, deiliskipulag friðlands.
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Gálgahrauns og Garðahrauns neðra sem unnin hefur verið af Dagnýju Bjarnadóttur landslagsarkitekt.
Innan deiliskipulagssvæðisins eru tvö friðlýst svæði, annars vegar Gálgahraun sem er friðlýst sem friðland í samræmi við 1. tl. 53. gr. laga um náttúruvernd, nr. 44/1999 og hins vegar Garðahraun neðra sem er hluti af friðlýstum fólkvangi, í samræmi við 55. gr. laga um náttúruvernd nr. 44/1999.
Friðlýstu svæðin tvö mynda órofa heild frá strönd að núverandi samgöngumannvirkjum og er svæðið þekkt fyrir merkar hraunmyndanir sem ná niður að sjó. Svæðið er einnig þekkt fyrir forna slóða sem liggja í gegnum hraunið og Gálgakletta. Svæðið er á jaðri byggðar og er vinsælt göngusvæði einstaklinga og gönguhópa.
Megin markmið deiliskipulagsins er verndun mikilvægra náttúruminja, jarðmyndana, gróðurfars og fuglalífs. Einnig er lögð áhersla á fræðsluþátt friðlýsingarinnar og á það ekki síst við um sögulegar minjar.
Undirliggjandi markmið skipulagsins snúa að lýðheilsumarkmiðum Garðabæjar, þar sem lögð er áhersla á að bæta vistvænar samgönguleiðir og skapa gott aðgengi að mikilvægum útivistarsvæðum.
Í skipulaginu er þannig reynt að stuðla að hollri útivist en á sama tíma vernda einstakar hraunmyndanir og náttúra með stýrðu aðgengi.
Í friðlýsingu fólkvangsins segir m.a. „markmið friðlýsingarinnar er að efla lífsgæði í sveitarfélaginu með því að tryggja möguleika til útivistar, náttúruskoðunar og fræðslu í náttúrulegu umhverfi“, deiliskipulagið er unnið með það í huga ásamt ríkri áherslu á náttúruvernd.
Lýsing verkefnisins var samþykkt í byrjun árs 2019 og forkynning fór fram síðar á því ári.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Hún skal kynnt samhliða tillögu að breytingu Aðalskiplags Garðabæjar sem nær til stígakerfis.
Málsnúmer 2601486
05
Birkiholt 14 - Stækkun byggingarreits - Fyrirspurn til umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn um hugmynd að viðbyggingu við endaraðhúsið Birkiholt 14. Vísað til skoðunar hjá umhverfissviði.
Málsnúmer 2512147
06
Vífilsstaðir, deiliskipulag, 1.áfangi
Sigbjörn Kjartansson og Bæring Bjarnar Jónsson arkitektar hjá Glámu-Kím fóru yfir helstu forsendur vinnu við mótun tillögu að 1. áfanga deiliskipulags Vífilsstaða.
Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.
Málsnúmer 2506190
07
Kjarrprýði 1 - Fyrirspurn til umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn um útfærslu einbýlishúss sem gerir ráð fyrir því að gólfkóti hússins verði lækkaður um 30 cm þannig að hæð húss sé í sömu hæð yfir sjávarmáli og sú hæð sem deiliskipulag kveður á um. Lögð fram umsögn deiliskipulagshöfundar um fyrirspurn.
Svar: Skipulagsnefnd telur að hæð útveggja yfir landi hafi áhrif á upplifun hússins og hún verði samkvæmt þessu 6,8 metrar en deiliskipulag kveði á um 6,5 metra. Hæð yfir sjávarmáli breytir því litlu um þá upplifun. Fram kemur í umsögn deiliskipulagshöfundar að "ríkjandi" hæð lóðarinnar sé 21 mys og er gólfkótinn 21,1 því eðlileg hæð og ekki ástæða til að lækka hús í landi til þess að ná fram því markmiði deiliskipulagsins að laga hæðarsetningu lóðar að náttúrulegu landslagi.
Skipulagsnefnd bendir auk þess á að samkvæmt uppdrætti eru tvær íbúðir í húsinu en í grein 2.2.2 í skipulagsgreinargerð segir að aðeins ein íbúð sé heimiluð.
Málsnúmer 2601474
08
Kjarrprýði 6 - Fyrirspurn til umhverfissviðs
Lögð fram skissa sem fylgir fyrirspurn um útfærslu byggingar á lóðinni Kjarrprýði 6. Skipulagsnefnd telur að hugmyndin geti samrýmst ákvæðum deiliskipulags Garðahrauns.
Málsnúmer 2601475
09
Kjarrprýði 8 - Fyrirspurn til umhverfissviðs
Lögð fram skissa sem fylgir fyrirspurn um útfærslu byggingar á lóðinni Kjarrprýði 8. Skipulagsnefnd telur að hugmyndin geti samrýmst ákvæðum deiliskipulags Garðahrauns.
Málsnúmer 2512239
10
Skerpluholt 2 - Fyrirspurn til umhverfissviðs
Lögð fram tillaga að útfærslu einbýlishúss að Skerpluholti 2 sem fylgir fyrirspurn arkitekts fyrir hönd lóðarhafa. Tillagan gerir ráð fyrir kjallara undir suðurhluta hússins.
Svar: Skipulagsnefnd telur að útfærslan komi til greina þar sem að sýnt hefur verið fram á að hæðarlega lóðarinnar og aðliggjandi lands gefi tilefni til þess að útfæra bygginguna með þessum hætti. Útfærslan kallar á umsókn um breytingu deiliskipulags.
Málsnúmer 2601487
11
Suðurhraun 10 - Deiliskipulagsbreyting
Máli frestað til næsta fundar en ráðgjafi boðaði forföll vegna veikinda.
Málsnúmer 2509268
12
Íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup 2025
Lögð fram íbúakönnun/þjónustukönnun Gallups um þjónustu sveitarfélaga á Íslandi.
Málsnúmer 2510073
13
Breyting á greinargerð aðalskipulag Hafnarfjarðar vegna Flensborgarhafnar, nr. 1257/2025: Lýsing
Lögð fram verkefnislýsing á tillögu að breytingu Aðalskipulags Hafnarfjarðar. Skipulagsnefnd Garðabæjar gerir ekki athugasemd við lýsinguna.
Málsnúmer 2601514
14
Breyting á þingsályktun nr.24/152 um áætlun og vernd og orkunýtingu landsvæða, 307. mál.
Lögð fram tillaga frá nefnda-og greiningarsviði Alþingis að breytingu á þingsályktun nr.24/152 um áætlun og vernd orkunýtinga landssvæða sem er til umsagnar í umsagnagátt Alþingis.
Málsnúmer 2601051F
15