Vífilsstaðir, deiliskipulag, 1.áfangi
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
8. (978). fundur
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 30. apríl 2026 varðandi tillögu að deiliskipulagi 1. áfanga Vífilsstaða sem unnin hafa verið af arkitektastofunni Gláma/Kím í samstarfi við umhverfissvið. Svæðið sem tillagan nær til er um 2 hektarar að stærð og afmarkast af Spítalavegi til vesturs og suðurs, Vífilsstaðavegi til norðurs og Ungmennafélagsgarði til austurs. Innan skipulagssvæðisins standa gamla fjósið, vélageymsluhús, Búshúsið og starfsmannabústaður austan þess. Á skipulagssvæðinu er gert er ráð fyrir atvinnuhúsnæði (skrifstofuhúsnæði), sem yrði samanlagt um 6000 m² að stærð. Gert er ráð fyrir 10 nýbyggingum í tveimur samstæðum. Auk þess yrðu fjósið, vélageymsluhúsið og Búshúsið nýtt sem atvinnu- eða þjónustuhúsnæði og þau gerð upp með tilhlýðilegri virðingu. Leitast er við að nýjar byggingar falli sem best að anda staðar og þeim mikilvæga byggingararfi sem fyrirfinnst á Vífilsstöðum. Það á við um stærðir bygginga, þakform, byggðamynstur og yfirbragð. Horft er til þess að rýmið (torgið) norðan Vífilsstaðaspítala haldi sér þó hluti þess sé utan þess svæðis sem deiliskipulagsáfanginn nær til. Aðkoma verður frá tveimur hringtorgum á Vífilsstaðavegi og verður aðalaðkoma frá hringtorginu næst Reykjanesbraut. Skipulagsnefnd vísar tillögunum til forkynningar (kynningar á vinnslustigi) í samræmi við 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Halda skal almennan kynningarfund á meðan á forkynningu stendur.
Bæjarráð Garðabæjar
02
16. (2211). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 30. apríl 2026 varðandi tillögu að deiliskipulagi 1. áfanga Vífilsstaða sem unnin hafa verið af arkitektastofunni Gláma/Kím í samstarfi við umhverfissvið.
Svæðið sem tillagan nær til er um 2 hektarar að stærð og afmarkast af Spítalavegi til vesturs og suðurs, Vífilsstaðavegi til norðurs og Ungmennafélagsgarði til austurs. Innan skipulagssvæðisins standa gamla fjósið, vélageymsluhús, Búshúsið og starfsmannabústaður austan þess.
Á skipulagssvæðinu er gert er ráð fyrir atvinnuhúsnæði (skrifstofuhúsnæði), sem yrði samanlagt um 6000 m² að stærð. Gert er ráð fyrir 10 nýbyggingum í tveimur samstæðum. Auk þess yrðu fjósið, vélageymsluhúsið og Búshúsið nýtt sem atvinnu- eða þjónustuhúsnæði og þau gerð upp með tilhlýðilegri virðingu.
Leitast er við að nýjar byggingar falli sem best að anda staðar og þeim mikilvæga byggingararfi sem fyrirfinnst á Vífilsstöðum. Það á við um stærðir bygginga, þakform, byggðamynstur og yfirbragð. Horft er til þess að rýmið (torgið) norðan Vífilsstaðaspítala haldi sér þó hluti þess sé utan þess svæðis sem deiliskipulagsáfanginn nær til.
Aðkoma verður frá tveimur hringtorgum á Vífilsstaðavegi og verður aðalaðkoma frá hringtorginu næst Reykjanesbraut.
Skipulagsnefnd vísar tillögunum til forkynningar (kynningar á vinnslustigi) í samræmi við 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Halda skal almennan kynningarfund á meðan á forkynningu stendur.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
8. fundur
Lögð fram drög að tillögu að deiliskipulagi 1. áfanga Vífilsstaða sem unnin hafa verið af arkitektastofunni Gláma/Kím í samstarfi við umhverfissvið.
Svæðið sem tillagan nær til er um 2 hektarar að stærð og afmarkast af Spítalavegi til vesturs og suðurs, Vífilsstaðavegi til norðurs og Ungmennafélagsgarði til austurs. Innan skipulagssvæðisins standa gamla fjósið, vélageymsluhús, Búshúsið og starfsmannabústaður austan þess.
Á skipulagssvæðinu er gert er ráð fyrir atvinnuhúsnæði (skrifstofuhúsnæði), sem yrði samanlagt um 6000 m² að stærð. Gert er ráð fyrir 10 nýbyggingum í tveimur samstæðum. Auk þess yrðu fjósið, vélageymsluhúsið og Búshúsið nýtt sem atvinnu- eða þjónustuhúsnæði og þau gerð upp með tilhlýðilegri virðingu.
Leitast er við að ný byggð falli sem best að anda staðar og þeim mikilvæga byggingararfi sem fyrirfinnst á Vífilsstöðum. Það á við um stærðir bygginga, þakform, byggðamynstur og yfirbragð. Horft er til þess að rýmið (torgið) norðan Vífilsstaðaspítala haldi sér þó hluti þess sé utan þess svæðis sem deiliskipulagsáfanginn nær til.
Aðkoma verður frá tveimur hringtorgum á Vífilsstaðavegi og verður aðalaðkoma frá hringtorginu næst Reykjanesbraut.
Skipulagsnefnd vísar tillögunum til forkynningar (kynningar á vinnslustigi) í samræmi við 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Halda skal almennan kynningarfund á meðan á forkynningu stendur.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
6. fundur
Sigbjörn Kjartansson og Bæring Bjarnar Jónsson hjá Glámu Kím gerðu grein fyrir drögum að deiliskipulagi 1. áfanga deiliskipulags Vífilsstaða.
Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
3. fundur
Sigbjörn Kjartansson og Bæring Bjarnar Jónsson arkitektar hjá Glámu-Kím fóru yfir helstu forsendur vinnu við mótun tillögu að 1. áfanga deiliskipulags Vífilsstaða.
Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
06
18. fundur
Formaður skipulagsnefndar gerði grein fyrir samkomulagi Garðabæjar og Ríkissjóðs Íslands um framtíðarþróun eigna og lóða á Vífilsstöðum.
Ekkert deiliskipulag er í gildi fyrir Vífilsstaðasvæði en rammahluti aðalskipulags fyrir Vífilsstaðaland nær til svæðisins. Þar skiptist svæðið upp í 4 landnotkunarreiti sem gera ráð fyrir samfélagsþjónustu, opnum svæðum og íbúðabyggð.
Skipulagsnefnd felur umhverfissviði að undirbúa mótun deiliskipulags 1.áfanga Vífilsstaðasvæðis sem nái til fjóssins, búshússins og nánasta umhverfis. Skoða þarf um leið Vífilsstaðasvæðið í heild sinni og tengsl við aðliggjandi svæði.