13. fundur
13. fundur
Skipulagsnefnd Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
21.09.2026
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - aðalmaður
- Ásgeir Sigurður Ágústsson - aðalmaður
- Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
- Agla Eir Vilhjálmsdóttir - aðalmaður
- Einar Þór Einarsson - aðalmaður
- Guðjón Pétur Lýðsson - áheyrnarfulltrúi
- Kjartan Atli Kjartansson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
- Hrönn Hafliðadóttir - verkefnastjóri
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
01
Samgöngu-og þróunarás í Garðabæ. Rammahluti aðalskipulags
Jóhanna Helgadóttir arkitekt og skipulagsfræðingur hjá Nordic og Berglind Hallgrímsdóttir samgöngusérfræðingur hjá EFLU fóru yfir stöðu verkefnisins og valkosti um næstu skref. Skipulagsnefnd felur umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum að halda áfram samtali við hagsmunaaðila á svæðinu og mótun tillögunnar.
02
Skipulag - Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 3. Norðurnes
Skipulagsstjóri fór yfir þá valkosti sem staðið er frammi fyrir varðandi áframhald vinnu við mótun tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til Norðurness. Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og ráðgjöfum.
03
Norðurnes Álftaness, deiliskipulag
Skipulagsstjóri fór yfir þá valkosti sem staðið er frammi fyrir varðandi áframhald vinnu við deiliskipulagsgerð Norðurness. Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og ráðgjöfum.
04
Vífilsstaðir, deiliskipulag, 1.áfangi
Lögð fram drög að tillögu að deiliskipulagi 1. áfanga Vífilsstaða að lokinni forkynningu. Haldinn var kynningarfundur 2.september síðastliðinn sem var vel sóttur.
Ábendingar og umsagnir sem borist hafa innan tilskilins frests lagðar fram.
Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.
05
Hönnun - Útboð - Arnarnes Endurnýjun fráveitulagna
Lögð fram umsókn umhverfissviðs um framkvæmdaleyfi fyrir endurnýjun á fráveitulögn í Arnarnesi ásamt hönnunargögnum.
Vísað til nánari skoðunar hjá umhverfissviði.
06
Reykjavíkurborg - Umsagnarbeiðni - Borgarspítalareitur
Lögð fram verklýsing á fyrirhugaðri breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur sem nær til Borgarspítalasvæðis. Varðar uppbyggingu geðsviðs LSH sunnan núverandi spítalabyggingar.
Skipulagsnefnd Garðabæjar gerir ekki athugasemd við verklýsinguna.