Samgöngu-og þróunarás í Garðabæ. Rammahluti aðalskipulags
Ferill máls
Skipulagsnefnd Garðabæjar
01
14. fundur
Jóhanna Helgadóttir arkitekt og skipulagsfræðingur hjá Nordic fór yfir stöðu verkefnisins og valkosti um næstu skref.
Skipulagsnefnd felur umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum að halda áfram samtali við hagsmunaaðila á svæðinu og mótun tillögunnar.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
10. fundur
Lagðar fram þær umsagnir og ábendingar sem borist hafa við verkefnislýsingu breytingar á Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 (Rammahluti Aðalskipulags).
Skipulagsnefnd vísar þeim umsögnum og ábendingum sem borist hafa til vinnu við mótun skipulagstillagna.
Bæjarstjórn Garðabæjar
03
12. (908). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um skipulagslýsingu fyrir rammahluta aðalskipulags og deiliskipulagsáætlanir fyrir þróunarsvæði A, ásamt Hafnarfjarðarvegi milli bæjarmarka, samkvæmt 1. mgr. 30. gr. og 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Leita skal umsagnar um lýsinguna hjá Skipulagsstofnun og umsagnaraðilum og kynna hana fyrir almenningi. (Mál nr. 2208190)
Bæjarráð Garðabæjar
04
32. (2039). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um skipulagslýsingu fyrir rammahluta aðalskipulags og deiliskipulagsáætlanir fyrir þróunarsvæði A, ásamt Hafnarfjarðarvegi milli bæjarmarka, samkvæmt 1. mgr. 30. gr. og 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Leita skal umsagnar um lýsinguna hjá Skipulagsstofnun og umsagnaraðilum og kynna hana fyrir almenningi.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
8. fundur
Jóhanna Helgadóttir verkefnisstjóri gerði grein fyrir tillögu að verkefnislýsingu aðalskipulagsbreytingar og deiliskipulagsáfanga sem nær til Samgöngu-og þróunaráss Hafnarfjarðarvegar og Lyngássvæðis.
Skipulagsnefnd samþykkir framlagða tillögu sem lýsingu verkefnisins í samræmi við 1.mgr.30.gr. og 1.mgr.40.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
06
7. fundur
Jóhanna Helgadóttir arkitekt og skipulagsfræðingur hjá Nordic kynnti helstu forsendur fyrir vinnu við mótun skipulags á Þróunarsvæði A og Hafnarfjarðarvegi milli bæjarmarka sem hún leiðir fyrir hönd ráðgjafateymis. Auk Jóhönnu voru Helgi Mar Hallgrímsson hjá Nordic og Hrafnhildur Brynjólfsdóttir og Berglind Hallgrímsdóttir hjá Eflu viðstödd fundinn undir þessum lið.
Heiti verkefnisins verður "Samgöngu-og þróunarás í Garðabæ. Rammahluti aðalskipulags."
Rammahlutinn verður settur fram sem breyting á Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030.
Skipulagsnefnd felur ráðgjafateymi að vinna verkefnislýsingu í samráði við tækni-og umhverfissvið Garðabæjar.