Beint í efni

14. fundur

09.10.2025
Skipulagsnefnd Garðabæjar

14. fundur

Skipulagsnefnd Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

09.10.2025

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - formaður
  • Kjartan Vilhjálmsson - aðalmaður
  • Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
  • Baldur Ólafur Svavarsson - aðalmaður
  • Guðlaugur Kristmundsson - aðalmaður
  • Hlynur Elías Bæringsson - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
  • Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi
  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
  • Hrönn Hafliðadóttir - verkefnastjóri

Ritari

  • Arinbjörn Vilhjálmsson

Dagskrá

Málsnúmer 2406836

01

Miðbær, svæði I og II, Garðatorg 1, deiliskipulagsbreyting.

Elín Ríta Sveinbjörnsdóttir skipulagsfræðingur, Daði Baldur Ottósson og Valur Elli Valsson samgönguverkfræðingar frá ráðgjafastofunni Eflu gerðu grein fyrir samgöngumati Miðbæjar sem unnin hefur verið að beiðni skipulagsnefndar. Einnig voru ræddar mögulegar útfærslur á yfirbyggðri göngugötu.

Vísað til úrvinnslu hjá ráðgjöfum og umhverfissviði.

Málsnúmer 2208190

02

Samgöngu-og þróunarás í Garðabæ. Rammahluti aðalskipulags

Jóhanna Helgadóttir arkitekt og skipulagsfræðingur hjá Nordic fór yfir stöðu verkefnisins og valkosti um næstu skref.

Skipulagsnefnd felur umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum að halda áfram samtali við hagsmunaaðila á svæðinu og mótun tillögunnar.

Málsnúmer 1903374

03

Skipulag - Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 3. Norðurnes

Lögð fram drög að tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til Norðurness og er í samræmi við drög að tillögu á breytingu deiliskipulags Norðurness.

Vísað til úrvinnslu hjá Umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.

Málsnúmer 1803108

04

Norðurnes Álftaness, deiliskipulag

Lögð fram drög að tillögu á breytingu deiliskipulags Norðurness. Skipulagsstjóri og Guðjón Friðriksson gerðu grein fyrir samtali sem átt hefur sér stað við landeigendur á Norðurnesi.

Vísað til úrvinnslu hjá Umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.

Málsnúmer 2311400

05

Hjólreiðastefna Garðabæjar

Þráinn Hauksson landslagsarkitekt hjá Landslagi og Hrönn Hafliðadóttir verkefnisstjóri skipulagsmála á umhverfissviði gerðu grein fyrir tillögu að hjólreiðastefnu Garðabæjar 2025-2030.

Skipulagsnefnd vísar tillögunni til áframhaldandi vinnu hjá umhverfissviði og ráðgjöfum.

Málsnúmer 2501011

06

Garðprýði 1 - Deiliskipulagsbreyting

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Garðahrauns, sem nær til lóðarinnar Garðprýði 1. Skipulagsstjóri gerði grein fyrir fundi með þeim sem að hafa gert athugasemdir.

Skipulagsnefnd vísar tillögunni til skoðunar hjá umhverfissviði.

Málsnúmer 2509008

07

Holtstún 14 - breyta lóð - Fyrirspurn til umhverfissviðs

Lögð fram bókun frá afgreiðslufundi skipulagsstjóra þar sem fyrirspurn lóðarhafa er svarað.

Skipulagsnefnd tekur undir svar skipulagsstjóra við fyrirspurn.

Málsnúmer 2507052

08

Hagaflöt 1 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Lagðar fram athugasemdir sem borist hafa við grenndarkynningu á útfærslu tillögunnar.

Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði.

Málsnúmer 2306521

09

Stórás - breyting á deiliskipulagi

Skipulagsnefnd felur umhverfissviði að leita lausna og gera tillögu að breytingu deiliskipulags ef ástæða er til.

Málsnúmer 2510094

10

Vetrarmýri - Dsk.br. - Skólalóð

Formaður skipulagsnefndar leggur til að umhverfissviði verði falið að móta tillögu að deiliskipulagi skólalóðar, á því svæði sem aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030 gerir ráð fyrir landnotkunarreit (4.07 S) fyrir grunnskóla. Það deiliskipulag verði sett fram sem breyting deiliskipulagsins Vetrarmýri-miðsvæði.

Skipulagsnefnd samþykkir tillögu formanns.

Málsnúmer 2405262

11

Kársnes Þróunarsvæði. Rammahluti aðalskipulags. Lýsing skipulagsverkefnis.

Skipulagsnefnd Garðabæjar gerir ekki athugsemd við tillöguna.

Málsnúmer 2504075

12

Breyting á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013 - 2025 vegna breyttrar landnotkunar Hrauns vestur, nr. 0723/2024

Lögð fram greinargerð skipulagstjóra um tillöguna, sem send hefur verið inn sem umsögn í skipulagsgátt, þar sem m.a. eru gerðar athugasemdir.

Skipulagsnefnd tekur undir umsögn og athugasemdir skipulagsstjóra.

Málsnúmer 2510073

13

Breyting á greinargerð aðalskipulag Hafnarfjarðar vegna Flensborgarhafnar, nr. 1257/2025: Lýsing

Skipulagsnefnd Garðabæjar gerir ekki athugasemd við lýsinguna.

Málsnúmer 2506304

14

Aðalskipulag Reykjavíkur 2040 - Laugardalur, breytt landnotkun. - Ósk um umsögn

Skipulagsnefnd Garðabæjar gerir ekki athugasemd við lýsinguna.

Málsnúmer 2508023F

15

Afgreiðslufundir skipulagsstjóra - 12

Lögð fram

15.1 - 2405525 - Krókur - svæði 2 - Gásamýri 2-28 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Lögð tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Króks - Svæði 2 sem vísað hefur verið til grenndarkynningar. Tillagan gerir ráð fyrir breytingu á byggingarreitum og lóðum við Gásamýri 2-12 og 14-28. Þeir sem grenndarkynning nær til hafa staðfest að þau gera ekki athugasemdir við tillöguna. Skipulagsstjóri styttir hér með tíma grenndarkynningar í samræmi við 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og skoðast breytingartillagan því samþykkt. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.

15.2 - 2506548 - Tjarnarbrekka 13 - Fyrirspurn til umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn um girðingar, allt að 1,8 m, á lóðarmörkum við Tjarnarbrekku 13, ásamt samþykki frá nærliggjandi lóðarhöfum. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við útfærslu sem er í samræmi við framlagða uppdrætti. Skipulagsstjóri leggur til að þar sem girðing er tekin inn á lóð skuli koma fyrir runnagróðri, til að milda ásýnd að girðingum.

15.3 - 2501426 - Skeiðarás 6 - Umsókn um byggingarleyfi

Lagðir fram aðaluppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi fyrir atvinnuhúsnæði að Skeiðarási 6, ásamt drögum að samkomulagi lóðarhafa og Garðabæjar um uppbyggingu á lóðinni, þar sem tillit er tekið til legu og stöðu lóðar innan þróunarsvæðis A í gildandi aðalskipulagi Garðabæjar.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis enda er það í samræmi við ákvæði gildandi deiliskipulags.

15.4 - 2507240 - Móaflöt 51 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti.

15.5 - 2505026 - Stekkholt 43 - 53 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti.

15.6 - 2507181 - Vorbraut 2 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Lagðir fram aðaluppdrættir fjölbýlishúss Vorbrautar 2 sem fylgja umsókn um byggingarleyfi, ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar. Uppdrættir eru í samræmi við ákvæði deiliskipulags en bílakjallari er breiðari en deiliskipulag kveður á um. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verði vikið frá kröfum 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 sbr. 3. mgr. sömu greinar hvað breidd bílakjallara varðar. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjón Garðabæjar nr. 1182/2022.

15.7 - 2508444 - Kauptún 4 - Fyrirspurn til umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn um staðsetningu skýlis fyrir rafbúnað tengdan hraðhleðslustöðvum. Skýlið er 12 m² pg 2,5 m á hæð. Skýlið er innan marka byggingarreglugerðar er varðar framkvæmdir óháðar byggingarleyfi. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við ofangreint skýli innan lóðar Kauptúns 4.

15.8 - 2508290 - Hamraendi 14-20 - Ósk um umsögn

Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Kjóavalla, sem samþykkt var á afgreiðslufundi skipulagsstjóra Kópavogs 31. mars 2025.
Tillagan gerir ráð fyrir 42,1 m² viðbygging innan hestagerðis vestan megin á lóðinni. Nýtingarhlutfall hækkar úr 0,31 í 0,34.
Skiplagsstjóri gerir ekki athugasemd við ofangreinda tillögu.

Málsnúmer 2509045F

16

Afgreiðslufundir skipulagsstjóra - 13

Lögð fram

16.1 - 2509008 - Holtstún 14 - breyta lóð - Fyrirspurn til umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn um uppskiptingu lóðarinnar Holtstúns 14. Skipulagsstjóri getur ekki fallist á uppskiptingu lóðarinnar, þar sem það er ekki í samræmi við byggðarmynstur á staðnum, sem einkennist af einnar hæðar eibýlishúsum á stórum lóðum sem liggja að tjarnarbakkanum.

16.2 - 2506388 - Túngata 22 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi vegna viðbyggingar við Túngötu 22.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti.

16.3 - 2509260 - Langafit 26 - Breyting á deiliskipulagi

Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts eystra. Breytingin gerir ráð fyrir byggingarreit fyrir bílskúr í samræmi við veitt byggingarleyfi frá 1981.
Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Hraunsholts eystra í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. sömu laga. Grenndarkynna skal eigendum við Löngufit 22 og 24 og Hraunholtsveg 2. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.

16.4 - 2509187 - Aratún 8 - Deiliskipulagsbr

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Silfurtúns. Tillögu er vísað til umsagnar hjá deiliskipulagshöfundi.

16.5 - 2306581 - Blikanes 27 - Umsókn um byggingarleyfi

Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi, vegna nýtingu á óútgröfnu rými í kjallara í Blikanesi 27. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis hvað það varðar.

16.6 - 2509546 - Hegranes 35 - fyrirspurn til umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn vegna endurnýjun þaks við Haukanes 35. Fyrirhuguð útfærsla gerir ráð fyrir því að þakskegg muni ná út fyrir byggingarreit en í deiliskipulagi er kveðið á um að allir húshlutar, þar á meðal þakskegg, skuli vera innan byggingarreits. Skipulagsstjóri vísar útfærslunni til grenndarkynningar hjá eigendum Hegraness 33. hægt er að stytta tíma grenndarkynningar ef þeir sem að grenndarkynning nær til hafa með áritun sinni á uppdrátt staðfest að þau geri ekki athugasemd við útfærsluna.

16.7 - 2509213 - Hvannalundur 9 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi, vegna viðbyggingar, við Hvannalund 9. Viðbygging rúmast innan byggingarreits og er því samræmi við ákvæði deiliskipulags. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti.

16.8 - 2509343 - Skólabraut 5 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi á færanlegum kennslustofum við Hofsstaðaskóla. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti.

16.9 - 2508514 - Stekkholt 1-9 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi, ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar. Í umsögn kemur fram að bílastæðum á lóð hafi verið víxlað, með tilliti til staðsetningu þeirra á deiliskipulagsuppdrætti. Skoðun leiðir í ljós að það muni ekki hafa áhrif á gatnahönnun.
Skipulagsstjóri gerir því ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti.