Beint í efni

Garðprýði 1 - Deiliskipulagsbreyting

Málsnúmer 2501011

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

3. (973). fundur

Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 29. janúar 2026 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Garðahrauns sem nær til lóðarinnar Garðprýði 1 að lokinni auglýsingu ásamt þeim athugasemdum og umsögnum sem borist hafa. Einnig lagt fram erindi lögmanns umsækjanda þar sem brugðist var við þeim athugasemdum sem borist höfðu. Skipulagsnefnd taldi að sjónarmið beggja aðila lægju ljós fyrir og að andmælaréttur hafi verið virtur á báða bóga. Í greinargerð deiliskipulags Garðahrauns eru sett fram markmið deiliskipulagsins. Þar segir í kafla 1.5. "Þar sem framkvæmdir eru heimilar samkvæmt skipulaginu er lögð rík áhersla á að halda sem best sérkennum svæðisins og vernda hraumyndanir eftir því sem nokkur kostur er." Enn fremur segir í kafla 2.1.2. um nýtingarhlutfall: "Stærðin takmarkast fyrst of fremst af mikilvægum umhverfisþáttum hverrar lóðar og er ekki sjálfgefið að þessi rýmilegu mörk (þ.e. uppgefið nýtingarhlutfall) gildi í öllum tilfellum." Í kafla 1.5. er vikið að þeim möguleika að skipta lóðum upp: "Gert er ráð fyrir þeim möguleika að lóðum Hrauns og Hrauntungu verði skipt í smærri lóðir, með sambærilegu skipulagi og hér er fjallað um". Ljóst er að ekki var horft til möguleika að lóð Hraungarða (Garðprýði 1) yrði skipt upp, skv. greinargerð deiliskipulagsins. Lóðin Garðprýði 1 er stærsta lóðin innan skipulagssvæðisins sem hefur verið skipulögð og stærri hluti hennar, allt að tveir þriðju, er skilgreindur sem svæði með hraunmyndunum sem taka þurfi tillit til við staðsetningu og útfærslu húss og lóðar. Það skýrist af því hve hraunmyndanir á lóðinni þar eru miklar og sérkennilegar og hafa áhrif á umhverfisgæði aðliggjandi húsa. Viðbrögð eigenda aðliggjandi lóða hafa verið mjög afdráttarlaus og hafa þeir gengið út frá því að þeir myndu njóta þeirra gæða sem í hraunmyndununum felast til frambúðar. Þeim hefur verið bent á að byggingarreitur sá sem nú er til staðar hefði minnkað umtalsvert samkvæmt tillögunni þó svo að lóðinni yrði skipt í tvær lóðir. Afstaða eigenda aðliggjandi lóða er óbreytt, þó svo að síðari tillagan sem grenndarkynnt var geri ráð fyrir húsi á öðrum stað sem liggur neðar í lóðinni. Í svo viðkvæmu umhverfi þar sem áhersla er lögð á að varðveita náttúruleg sérkenni landslags er mikilvægt að sátt náist um framkvæmdir sem hafa árhrif á þau gæði sem leitast er við að varðveita. Skipulagsnefnd taldi að framlagðar tillögur hafi ekki náð fram því markmiði og sé fullreynt að reyna að skapa sátt um þær. Í ljósi ofangreindra atriða hafnaði skipulagsnefnd grenndarkynntri tillögu.

Bæjarráð Garðabæjar

02

4. (2199). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 29. janúar 2026 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Garðahrauns sem nær til lóðarinnar Garðprýði 1 að lokinni auglýsingu ásamt þeim athugasemdum og umsögnum sem borist hafa. Einnig lagt fram erindi lögmanns umsækjanda þar sem brugðist var við þeim athugasemdum sem borist höfðu.
Skipulagsnefnd taldi að sjónarmið beggja aðila lægju ljós fyrir og að andmælaréttur hafi verið virtur á báða bóga.
Í greinargerð deiliskipulags Garðahrauns eru sett fram markmið deiliskipulagsins. Þar segir í kafla 1.5. "Þar sem framkvæmdir eru heimilar samkvæmt skipulaginu er lögð rík áhersla á að halda sem best sérkennum svæðisins og vernda hraumyndanir eftir því sem nokkur kostur er." Enn fremur segir í kafla 2.1.2. um nýtingarhlutfall: "Stærðin takmarkast fyrst of fremst af mikilvægum umhverfisþáttum hverrar lóðar og er ekki sjálfgefið að þessi rýmilegu mörk (þ.e. uppgefið nýtingarhlutfall) gildi í öllum tilfellum."
Í kafla 1.5. er vikið að þeim möguleika að skipta lóðum upp: "Gert er ráð fyrir þeim möguleika að lóðum Hrauns og Hrauntungu verði skipt í smærri lóðir, með sambærilegu skipulagi og hér er fjallað um". Ljóst er að ekki var horft til möguleika að lóð Hraungarða (Garðprýði 1) yrði skipt upp, skv. greinargerð deiliskipulagsins.
Lóðin Garðprýði 1 er stærsta lóðin innan skipulagssvæðisins sem hefur verið skipulögð og stærri hluti hennar, allt að tveir þriðju, er skilgreindur sem svæði með hraunmyndunum sem taka þurfi tillit til við staðsetningu og útfærslu húss og lóðar. Það skýrist af því hve hraunmyndanir á lóðinni þar eru miklar og sérkennilegar og hafa áhrif á umhverfisgæði aðliggjandi húsa.
Viðbrögð eigenda aðliggjandi lóða hafa verið mjög afdráttarlaus og hafa þeir gengið út frá því að þeir myndu njóta þeirra gæða sem í hraunmyndununum felast til frambúðar. Þeim hefur verið bent á að byggingarreitur sá sem nú er til staðar hefði minnkað umtalsvert samkvæmt tillögunni þó svo að lóðinni yrði skipt í tvær lóðir. Afstaða eigenda aðliggjandi lóða er óbreytt, þó svo að síðari tillagan sem grenndarkynnt var geri ráð fyrir húsi á öðrum stað sem liggur neðar í lóðinni. Í svo viðkvæmu umhverfi þar sem áhersla er lögð á að varðveita náttúruleg sérkenni landslags er mikilvægt að sátt náist um framkvæmdir sem hafa árhrif á þau gæði sem leitast er við að varðveita. Skipulagsnefnd taldi að framlagðar tillögur hafi ekki náð fram því markmiði og sé fullreynt að reyna að skapa sátt um þær.
Í ljósi ofangreindra atriða hafnaði skipulagsnefnd grenndarkynntri tillögu.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

2. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Garðahrauns sem nær til lóðarinnar Garðprýði 1 að lokinni auglýsingu ásamt þeim athugasemdum og umsögnum sem borist hafa. Einnig lagt fram erindi lögmanns umsækjanda þar sem brugðist er við þeim athugasemdum sem borist hafa.
Skipulagsnefnd telur að sjónarmið beggja aðila liggi ljóst fyrir og að andmælaréttur hafi verið virtur á báða bóga.
Í greinargerð deiliskipulags Garðahrauns eru sett fram markmið deiliskipulagsins. Þar segir í kafla 1.5. "Þar sem framkvæmdir eru heimilar samkvæmt skipulaginu er lögð rík áhersla á að halda sem best sérkennum svæðisins og vernda hraumyndanir eftir því sem nokkur kostur er." Enn fremur segir í kafla 2.1.2. um nýtingarhlutfall: "Stærðin takmarkast fyrst of fremst af mikilvægum umhverfisþáttum hverrar lóðar og er ekki sjálfgefið að þessi rýmilegu mörk (þ.e. uppgefið nýtingarhlutfall) gildi í öllum tilfellum."
Í kafla 1.5. er vikið að þeim möguleika að skipta lóðum upp: "Gert er ráð fyrir þeim möguleika að lóðum Hrauns og Hrauntungu verði skipt í smærri lóðir, með sambærilegu skipulagi og hér er fjallað um". Ljóst er að ekki var horft til möguleika að lóð Hraungarða (Garðprýði 1) yrði skipt upp, skv. greinargerð deiliskipulagsins.
Lóðin Garðprýði 1 er stærsta lóðin innan skipulagssvæðsins sem hefur verið skipulögð og stærri hluti hennar, allt að tveir þriðju, er skilgreindur sem svæði með hraunmyndunum sem taka þurfi tillit til við staðsetningu og útfærslu húss og lóðar. Það skýrist af því hve hraunmyndanir á lóðinni þar eru miklar og sérkennilegar og hafa áhrif á umhverfisgæði aðliggjandi húsa.
Viðbrögð eigenda aðliggjandi lóða hafa verið mjög afdráttarlaus og hafa þeir gengið út frá því að þeir myndu njóta þeirra gæða sem í hraunmyndununum felast til frambúðar. Þeim hefur verið bent á að byggingarreitur sá sem nú er til staðar hefði minnkað umtalsvert samkvæmt tillögunni þó svo að lóðinni yrði skipt í tvær lóðir. Afstaða eigenda aðliggjandi lóða er óbreytt, þó svo að síðari tillagan sem grenndarkynnt var geri ráð fyrir húsi á öðrum stað sem liggur neðar í lóðinni. Í svo viðkvæmu umhverfi þar sem áhersla er lögð á að varðveita náttúruleg sérkenni landslags er mikilvægt að sátt náist um framkvæmdir sem hafa árhrif á þau gæði sem leitast er við að varðveita. Skipulagsnefnd telur að framlagðar tillögur hafi ekki náð fram því markmiði og sé fullreynt að reyna að skapa sátt um þær.
Í ljósi ofangreindra atriða hafnar skipulagsnefnd grenndarkynntri tillögu.


Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

16. fundur

Máli frestað.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

14. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Garðahrauns, sem nær til lóðarinnar Garðprýði 1. Skipulagsstjóri gerði grein fyrir fundi með þeim sem að hafa gert athugasemdir.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til skoðunar hjá umhverfissviði.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

06

12. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Garðahrauns sem nær til lóðarinnar Garðprýði 1.
Vísað til úrvinnslu hjá skipulagsráðgjöfum og umhverfissviði. Skipulagsstjóra falið að funda með þeim aðilum sem gert hafa athugasemdir.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

07

10. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Garðahrauns að lokinni auglýsingu, ásamt þeim athugasemdum sem bárust á auglýsingartíma.
Skipulagsnefnd vísar framlögðum gögnum til úrvinnslu hjá skipulagsráðgjafa og umhverfissviði.

Bæjarstjórn Garðabæjar

08

2. (954). fundur

Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 23. janúar 2025 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Garðahrauns sem gerir ráð fyrir því að lóðin Garðprýði 1 (Hraungarðar) skiptist í tvær lóðir. Gert er ráð fyrir nýjum byggingarreit nær nústandandi byggingu en fyrri tillaga gerði, auk þess sem hann stendur neðar í landi. Byggingarreitur sem nú er á stórum hluta lóðarinnar minnkar og takmarkast við núverandi hús og staðsetningu nýrrar byggingar samkvæmt tillögunni. Aðkoma að nýrri byggingu er innan lóðar Garðprýði 1. Skipulagsnefnd vísaði tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 43. gr. og 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Senda skal dreifibréf í aðliggjandi hús þar sem athygli skal vakin á auglýsingunni.

Bæjarráð Garðabæjar

09

4. (2152). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 23. janúar 2025 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Garðahrauns sem gerir ráð fyrir því að lóðin Garðprýði 1 (Hraungarðar) skiptist í tvær lóðir. Gert er ráð fyrir nýjum byggingarreit nær nústandandi byggingu en fyrri tillaga gerði, auk þess sem hann stendur neðar í landi. Byggingarreitur sem nú er á stórum hluta lóðarinnar minnkar og takmarkast við núverandi hús og staðsetningu nýrrar byggingar samkvæmt tillögunni. Aðkoma að nýrri byggingu er innan lóðar Garðprýði 1. Skipulagsnefnd vísaði tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 43. gr. og 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Senda skal dreifibréf í aðliggjandi hús þar sem athygli skal vakin á auglýsingunni.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

10

1. fundur

Lögð fram ný tillaga að breytingu deiliskipulags Garðahrauns sem gerir ráð fyrir því að lóðin Garðprýði 1 (Hraungarðar) skiptist í tvær lóðir. Gert er ráð fyrir nýjum byggingarreit nær nústandandi byggingu en fyrri tillaga gerði, auk þess sem hann stendur neðar í landi. Byggingarreitur sem nú er á stórum hluta lóðarinnar minnkar og takmarkast við núverandi hús og staðsetningu nýrrar byggingar samkvæmt tillögunni. Aðkoma að nýrri byggingu er innan lóðar Garðprýði 1. Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 43. gr. og 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Senda skal dreifibréf í aðliggjandi hús þar sem athygli skal vakin á auglýsingunni.