Beint í efni

10. fundur

19.06.2025
Skipulagsnefnd Garðabæjar

10. fundur

Skipulagsnefnd Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

19.06.2025

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - formaður
  • Kjartan Vilhjálmsson - aðalmaður
  • Sigþrúður Ármann - varamaður
  • Baldur Ólafur Svavarsson - aðalmaður
  • Hlynur Elías Bæringsson - aðalmaður
  • Guðlaugur Kristmundsson - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
  • Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi
  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs

Ritari

  • Arinbjörn Vilhjálmsson

Dagskrá

Málsnúmer 2506360

01

Urriðaholt - Háholt

Hrafnhildur Brynjólfsdóttir skipulagsfræðingur hjá Eflu gerði grein fyrir niðurstöðum úr hönnunarsamkeppni vegna Háholts Urriðaholts sem Urriðaholt ehf. efndi til.

Í undirbúningi er hugmyndaleit á vegum Urriðaholts ehf og Oddfellowa um listaverk sem kennileiti á torginu í hjarta háholtsins.

Málsnúmer 2502444

02

Urriðaholtsstræti 1-7 - Urriðaholt Norð.- 4.áf.



Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts norðurhluta 4. áfanga, sem nær til lóðanna Urriðaholtsstrætis 1-7 að lokinni auglýsingu, ásamt tillögum að svörum við þeim athugasemdum sem bárust á auglýsingartíma.

Hrafnhildur Brynjólfsdóttir skipulagsfræðingur hjá Eflu gerði grein fyrir tillögunni og athugasemdum og umsögnum sem borist hafa.

Sem viðbrögð við þeim athugasemdum sem bárust leggur skipulagsnefnd til að eftirfarandi breytingar verði gerðar á tillögunni:

- Kennisnið fyrir vörugeymslu við Urriðaholtsstræti 3 verður breytt þannig

að hámarksþakhæð þess húshluta sem gerir ráð fyrir vöruafgreiðslu verður hækkuð úr 6,0 m í 6,5 m.

Skipulagsnefnd Garðabæjar samþykkir deiliskipulagsbreytinguna í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Málsnúmer 2502186

03

Urriðaholt Austurhluti, deiliskipulagsbreyting, Flóttamannavegur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts austurhluta, ásamt tillögum að svörum og viðbrögðum við þeim athugasemdum sem bárust á auglýsingartíma. Hrafnhildur Brynjólfsdóttir skipulagsfræðingur hjá Eflu gerði grein fyrir tillögunni og athugasemdum og umsögnum.

Í deiliskipulaginu mun koma fram það sjónarmið Garðabæjar að æskilegt sé að hámarkshraði á Flóttamannavegi á þessum kafla sé ekki hærri en 50 km/klst í ljósi þess að hann liggurum þéttbýli með byggð á aðra hönd og útivistarsvæði/golfvöll á hina. Miðað við þær aðstæður er ekki ráðlagt að vera með hærri umferðarhraða en 50 km/klst.

Mörk fólkvanga verða einnig sett inn á deiliskipulagsuppdrátt.

Skipulagsnefnd Garðabæjar samþykkir deiliskipulagsbreytinguna í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Málsnúmer 2502185

04

Urriðaholt Norðurhluti 4.áfangi, deiliskipulagsbreyting, Flóttamannavegur



Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts norðurhluta 4. áfanga, ásamt tillögum að svörum og viðbrögðum við þeim athugasemdum sem bárust á auglýsingartíma. Hrafnhildur Brynjólfsdóttir skipulagsfræðingur hjá Eflu gerði grein fyrir tillögunni og athugasemdum og umsögnum sem borist hafa.

Í deiliskipulaginu mun koma fram það sjónarmið Garðabæjar að æskilegt sé að hámarkshraði á Flóttamannavegi á þessum kafla sé ekki hærri en 50 km/klst í ljósi þess að hann liggur á um þéttbýli með byggð á aðra hönd og útivistarsvæði/golfvöll á hina. Miðað við þær aðstæður er ekki ráðlagt að vera með hærri umferðarhraða en 50 km/klst.

Mörk fólkvanga verða einnig sett inn á deiliskipulagsuppdrátt.

Skipulagsnefnd Garðabæjar samþykkir deiliskipulagsbreytinguna í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Málsnúmer 2502187

05

Deiliskipulag útivistarsvæðis í Urriðavatnsdölum, deiliskipulagsbreyting Flóttamannavegur



Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags útivistarsvæðis í Urriðavatnsdölum, ásamt tillögum að svörum og viðbrögðum við þeim athugasemdum sem bárust á auglýsingartíma.

Hrafnhildur Brynjólfsdóttir skipulagsfræðingur hjá Eflu gerði grein fyrir tillögunni og athugasemdum og umsögnum sem borist hafa.

Í deiliskipulaginu mun koma fram það sjónarmið Garðabæjar að æskilegt sé að hámarkshraði á Flóttamannavegi á þessum kafla sé ekki hærri en 50 km/klst í ljósi þess að hann liggur um þéttbýli með byggð á aðra hönd og útivistarsvæði/golfvöll á hina. Miðað við þær aðstæður er ekki ráðlagt að vera með hærri umferðarhraða en 50 km/klst.

Mörk fólkvanga verða einnig sett inn á deiliskipulagsuppdrátt.

Skipulagsnefnd Garðabæjar samþykkir deiliskipulagsbreytinguna í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Málsnúmer 2502449

06

Vetrarmýri, tillaga að breytingu á deiliskipulagi, leikvangur ofl.

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Vetrarmýrar, ásamt tillögum að svörum og viðbrögðum við þeim athugasemdum og umsögnum sem bárust á auglýsingartíma.

Sem viðbrögð við þeim umsögnum sem bárust leggur skipulagnefnd til að eftirfarandi breytingar verði gerðar á tillögunni:

- Knattspyrnuleikvangur er færður til vesturs svo svæði fyrir áhorfendur verður bæði að austanverðu og vestanverðu. Að austanverðu verði lægri og minni stúka þ.e.ein hæð. Að vestanverðu lækkar stúku- og verslunarbygging frá auglýstri tillögu úr 4 hæðum í 3 hæðir. Við það minnkar heildarstærð stúkubygginga. Nýtingahlutfall minnkar til samræmis.

- Spennistöð er bætt við innan lóðar í suðausturhorni fjölnotahúss Miðgarðs.

- Heimild fyrir tveggja hæða kjallara er tekin út á lóðunum 15, 17, 19, 24-28, 32, 34 og 36 við Vetrarbraut. Við það lækkar heildarbyggingarmagn á lóðunum og nýtingarhlutfall í samræmi við það.

Skipulagsnefnd Garðabæjar samþykkir deiliskipulagsbreytinguna með ofangreindum breytingum í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Málsnúmer 2202488

07

Deiliskipulag Vetrarmýrar og Smalaholts. Golfvöllur og útivistarskógur.

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Vetrarmýrar og Smalaholts að lokinni auglýsingu, ásamt þeim athugasemdum og umsögnum sem bárust á auglýsingartíma.

Þráinn Hauksson landslagsarkitekt hjá Landslagi ehf gerði grein fyrir samantekt um innsend gögn.

Skipulagsnefnd vísar framlögðum gögnum til úrvinnslu hjá skipulagsráðgjafa og umhverfissviði.

Málsnúmer 2406836

08

Miðbær, svæði I og II, Garðatorg 1, deiliskipulagsbreyting.

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Miðbæjar, svæði I og II að lokinni forkynningu, ásamt þeim umsögnum og ábendingum sem bárust á kynningartíma. Skipulagsnefnd vísar framlögðum gögnum til úrvinnslu hjá skipulagsráðgjafa og umhverfissviði.

Málsnúmer 2409396

09

Arnarnesvegur - Deiliskipulag

Lögð fram skipulagslýsing fyrir deiliskipulag Arnarnesvegar að lokinni kynningu, ásamt þeim umsögnum og ábendingum sem borist hafa á kynningartíma.

Vísað til úrvinnslu hjá Umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.

Málsnúmer 2505078

10

Þorraholt 2-4, br dsk Hnoðrah Norður.

Lögð fram tillaga að breytingu Hnoðraholts norður, sem nær til lóðarinnar Þorraholts 2-4 að lokinni auglýsingu, ásamt þeim athugasemdum sem borist hafa á auglýsingartíma.

Vísað til úrvinnslu hjá Umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.

Baldur Ó. Svavarsson vék af fundi undir þessum lið.

Málsnúmer 1903374

11

Skipulag - Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 3. Norðurnes

Skipulagsstjóri gerði grein fyrir stöðu mála og samtali Garðabæjar við landeigendur í tengslum við tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar og deiliskipulags á Norðurnesi á Álftanesi.

Málsnúmer 1803108

12

Norðurnes Álftaness, deiliskipulag

Skipulagsstjóri gerði grein fyrir stöðu mála og samtali Garðabæjar við landeigendur í tengslum við tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar og deiliskipulags á Norðurnesi á Álftanesi.

Málsnúmer 2505259

13

Víðiholt - Veggir, girðingar og smáhýsi

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Víðiholts sem nær til veggja, girðinga og smáhýsa.

Tillagan gerir ráð fyrir eftirfarandi breytingum:

- Heimilt er að setja skjólvegg allt að 1,8 m háan á milli lóða eða út frá horni endahúsa, allt að 4,4 m frá byggingarreit.

- Heimilt er að skerma lóðina af með gróðri eða girðingu allt að 1,5 m hárri. Ef girðing á lóðarmörkum er höfð hærri en 1,2 m skal koma fyrir uppbrotum í vegg með gróðurhólfum.

- Heimilt er að setja upp eitt smáhýsi á hverja rað- og parhúsalóð, allt að 5 m² að stærð. Að öðru leiti gilda ákvæði byggingarreglugerðar um fjarlægð smáhýsa frá lóðarmörkum og hámarkshæð smáhýsa.

Skipulagsnefnd metur tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Víðiholts í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. sömu laga.

Grenndarkynna skal lóðarhöfum við Víðiholt, við Asparholt 2,4,6,8,10,12 og 14 sem og Lyngholt 6, 8,10, 15,17 og 19.

Málsnúmer 2501011

14

Garðprýði 1 - Deiliskipulagsbreyting

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Garðahrauns að lokinni auglýsingu, ásamt þeim athugasemdum sem bárust á auglýsingartíma.

Skipulagsnefnd vísar framlögðum gögnum til úrvinnslu hjá skipulagsráðgjafa og umhverfissviði.

Málsnúmer 2506056

15

Breiðás 11 - Fyrirspurn til umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn um fjölgun íbúða við Breiðás 11. Í dag eru samþykktar tvær íbúðir í húsinu og yrðu þær þá þrjár.

Skipulagsnefnd getur ekki fallist á þær breytingar að fjölga íbúðum við Breiðás 11 úr tveimur í þrjár.

Málsnúmer 2410218

16

Móaflöt 51 - Dsk. br. Flata

Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Flata, sem nær til lóðarinnar Móaflatar 51, að lokinni grenndarkynningu. Engar athugasemdir bárust.

Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Flata í samræmi við 41. og 2.mgr.43.gr. skipulagslaga nr.123/2010.

Málsnúmer 2504479

17

Markarflöt 41 - Deiliskipulagsbreyting Flata

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Flata, sem nær til lóðarinnar Markarflatar 41, að lokinni grenndarkynningu, ásamt þeim athugasemdum sem bárust á auglýsingartíma.

Skipulagsnefnd vísar framlögðum gögnum til úrvinnslu hjá umhverfissviði.

Málsnúmer 2504023

18

Stekkholt 6 - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram fyrirspurn sem felur í sér byggingu gróðurhúss á þaki við Stekkholt 6.

Þak gróðurhúss mun ná allt að 1 m upp fyrir uppgefna hámarkshæð skv. deiliskipulagi Hnoðraholts norður.

Vísað til umsagnar hjá deiliskipulagshöfundi.

Málsnúmer 2505401

19

Kinnargata 70 - Deiliskipulag

Lögð fram umsókn um breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts austurhluta 1 . áf. Umsóknin felur í sér byggingu þriggja smáhýsa við Kinnargötu 70 en deiliskipulagið kveður á um að einungis skuli vera eitt smáhýsi á lóð og að hámarki 10 m².

Vísað til umsagnar deiliskipulagshöfundar.

Málsnúmer 2506248

20

Heiðmörk - USK24030262 - ósk um umsögn

Skipulagsnefnd Garðabæjar leggur áherslu á nauðsyn þess að vinna við gerð nýs deiliskipulags Heiðmerkur og verkefni því tengdu séu unnin í góðri samvinnu við Garðabæ.

Skipulagsnefnd tekur undir það sjónarmið að tryggja þurfi öryggi neysluvatns á höfuðborgarsvæðinu en leggur jafnframt áherslu á að leita skuli allra leiða til að

skerðing á aðgengi almennings að Heiðmörk sem útivistarsvæði verði sem minnst. Mikilvægt er að tryggja jafnvægi milli verndar og

aðgengis í sátt við alla hagaðila.

Skipulagsnefnd vísar deiliskipulagi Heiðmerkur til umsagnar hjá Umhverfissviði Garðabæjar á seinni skipulagsstigum.

Málsnúmer 2506304

21

Aðalskipulag Reykjavíkur 2040 - Laugardalur, breytt landnotkun. - Ósk um umsögn

Skipulagsnefnd Garðabæjar gerir ekki athugasemd við tillöguna.

Málsnúmer 2506016F

22

Afgreiðslufundir skipulagsstjóra - 7

Fundargerð afgreiðslufundar lögð fram sbr. 3.grein viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.

Málsnúmer 2506003F

23

Afgreiðslufundir skipulagsstjóra - 6

Fundargerð afreiðslufundar lögð fram sbr. 3.grein viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.