Beint í efni

Afgreiðsla skipulagsnefndar - Urriðaholtsstræti 1-7 - Urriðaholt Norð.- 4.áf.

Málsnúmer 2502444

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

23. (2171). fundur

Bæjarráð staðfestir, skv. heimild í 5.mgr. 35.gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 19. júní 2025 vegna tillögu að breytingu deiliskipulags Urriðaholts norðurhluta 4. áfanga, sem nær til lóðanna Urriðaholtsstrætis 1-7 að lokinni auglýsingu, ásamt tillögum að svörum við þeim athugasemdum sem bárust á auglýsingartíma.
Sem viðbrögð við þeim athugasemdum sem bárust lagði skipulagsnefnd til að eftirfarandi breytingar verði gerðar á tillögunni:
- Kennisnið fyrir vörugeymslu við Urriðaholtsstræti 3 verður breytt þannig
að hámarksþakhæð þess húshluta sem gerir ráð fyrir vöruafgreiðslu verður hækkuð úr 6,0 m í 6,5 m.
Skipulagsnefnd Garðabæjar samþykkti deiliskipulagsbreytinguna í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

10. fundur



Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts norðurhluta 4. áfanga, sem nær til lóðanna Urriðaholtsstrætis 1-7 að lokinni auglýsingu, ásamt tillögum að svörum við þeim athugasemdum sem bárust á auglýsingartíma.
Hrafnhildur Brynjólfsdóttir skipulagsfræðingur hjá Eflu gerði grein fyrir tillögunni og athugasemdum og umsögnum sem borist hafa.
Sem viðbrögð við þeim athugasemdum sem bárust leggur skipulagsnefnd til að eftirfarandi breytingar verði gerðar á tillögunni:
- Kennisnið fyrir vörugeymslu við Urriðaholtsstræti 3 verður breytt þannig
að hámarksþakhæð þess húshluta sem gerir ráð fyrir vöruafgreiðslu verður hækkuð úr 6,0 m í 6,5 m.
Skipulagsnefnd Garðabæjar samþykkir deiliskipulagsbreytinguna í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

9. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts Norður 4.áfanga að lokinni auglýsingu, ásamt þeim athugasemdum og ábendingum sem borist hafa. Tillaga nær til lóðanna Urriðaholtsstræti 1, 3-5 og 7.
Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og skipulagsráðgjafa.

Bæjarstjórn Garðabæjar

04

5. (957). fundur

Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 13. mars 2025 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Urriðaholts Norðurhluta 4. áfanga sem nær til lóðanna Urriðaholtsstræti 1, Urriðaholtsstræti 3-5 og Urriðaholtsstræti 7. Í breytingartillögunni felst eftirfarandi: Urriðaholtsstræti 1: - Byggingarreitur bílgeymslu stækkar. - Fjöldi hæða verður 2 hæðir í stað 1-2 hæðir. - Gerður er meiri sveigjanleiki í útfærslu þaks. Flatt þak skal ekki vera hærra en 9 metrar yfir aðkomuhæð. Sé bygging með mænisþaki eða einhalla hækkar hámarkshæð byggingar úr 9 m í 12 m. Við slíka útfærslu skal hámarksvegghæð ekki vera meiri en 8 metrar upp að þakbrún mænisþaks. Meðalhæð slíks þaks skal þó ekki vera hærri en 9,5 m. - Heimilað er að byggja kalt óupphitað garðsvæði(A eða B rými) á lóð. - Byggingamagn á lóð eykst um 500 m² vegna óupphitaðs garðrýmis á lóð. Urriðaholtsstræti 3-5: - Byggingarreitur á lóð breytist. - Lóðamörk milli lóða Urriðaholtsstrætis 3-5 og 7 breytast og kvöð um gegnumakstur milli lóða 3-5 og 7 er felld niður. - Heimilt verður að koma fyrir gróðurhúsi á þaki 1. hæðar. - Byggingamagn atvinnuhúsnæðis á lóð minnkar um 500 m² en eykst í bílgeymslu um 732 m². - Hæð húss breytist innbyrðis en hámarkshæð er óbreytt. - Bílastæðakrafa er aukin úr 1 stæði fyrir hverja 30 m² í eitt stæði fyrir hverja 25 m². Urriðaholtsstræti 7: - Notkun breytist úr verslun- og þjónustu í íbúðir fyrir 50 ára og eldri. - Almennir skilmálar fyrir íbúðir í norðurhluta 4 gilda fyrir lóðina eftir breytingu. - Salarhæðir og hæðafjöldi byggingar breytist en hámarkshæð húss helst óbreytt. - Heimilað byggingarmagn eykst úr 4.000 m² í 5.000 m² vegna íbúða neðan aðkomuhæðar og skilgreint er byggingamagn fyrir B rými svala. Byggingamagn bílgeymslu minnkar sem því nemur. - Byggingarreitur breytist. Byggingarreitur er brotinn upp og myndaðar sjónlínur milli byggingahluta. - Lóðamörk milli Urriðaholtsstrætis 3-5 og 7 breytast og kvöð um gegnumakstur milli lóða er felld niður. - Bílastæðum á lóð fækkar til samræmis við breytta notkun. - Aðkoma að bílakjallara breytist. Samhliða deiliskipulagsbreytingunni er gerð númerabreyting á lóðum þannig að lóð nr. 3-5 verður eftir breytingu lóð nr. 3 og lóð nr. 7 verður eftir breytingu lóð nr. 5-7. Urriðaholt ehf. hefur kynnt rekstraraðilum í nágrenninu drög að tillögunni. Tillagan er í samræmi við ákvæði Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030. Skipulagsnefnd vísaði tillögunni til auglýsingar í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Boða skal til almenns kynningarfundar á auglýsingartíma.

Bæjarráð Garðabæjar

05

11. (2159). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 13. mars 2025 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Urriðaholts Norðurhluta 4. áfanga sem nær til lóðanna Urriðaholtsstræti 1, Urriðaholtsstræti 3-5 og Urriðaholtsstræti 7.

Í breytingartillögunni felst eftirfarandi:

Urriðaholtsstræti 1:
- Byggingarreitur bílgeymslu stækkar.
- Fjöldi hæða verður 2 hæðir í stað 1-2 hæðir.
- Gerður er meiri sveigjanleiki í útfærslu þaks. Flatt þak skal ekki vera hærra en 9 metrar yfir aðkomuhæð. Sé bygging með mænisþaki eða einhalla hækkar hámarkshæð byggingar úr 9 m í 12 m. Við slíka útfærslu skal hámarksvegghæð ekki vera meiri en 8 metrar upp að þakbrún mænisþaks. Meðalhæð slíks þaks skal þó ekki vera hærri en 9,5 m.
- Heimilað er að byggja kalt óupphitað garðsvæði(A eða B rými) á lóð.
- Byggingamagn á lóð eykst um 500 m² vegna óupphitaðs garðrýmis á lóð.

Urriðaholtsstræti 3-5:
- Byggingarreitur á lóð breytist.
- Lóðamörk milli lóða Urriðaholtsstrætis 3-5 og 7 breytast og kvöð um gegnumakstur milli lóða 3-5 og 7 er felld niður.
- Heimilt verður að koma fyrir gróðurhúsi á þaki 1. hæðar.
- Byggingamagn atvinnuhúsnæðis á lóð minnkar um 500 m² en eykst í bílgeymslu um 732 m².
- Hæð húss breytist innbyrðis en hámarkshæð er óbreytt.
- Bílastæðakrafa er aukin úr 1 stæði fyrir hverja 30 m² í eitt stæði fyrir hverja 25 m².

Urriðaholtsstræti 7:
- Notkun breytist úr verslun- og þjónustu í íbúðir fyrir 50 ára og eldri.
- Almennir skilmálar fyrir íbúðir í norðurhluta 4 gilda fyrir lóðina eftir breytingu.
- Salarhæðir og hæðafjöldi byggingar breytist en hámarkshæð húss helst óbreytt.
- Heimilað byggingarmagn eykst úr 4.000 m² í 5.000 m² vegna íbúða neðan aðkomuhæðar og skilgreint er byggingamagn fyrir B rými svala. Byggingamagn bílgeymslu minnkar sem því nemur.
- Byggingarreitur breytist. Byggingarreitur er brotinn upp og myndaðar sjónlínur milli byggingahluta.
- Lóðamörk milli Urriðaholtsstrætis 3-5 og 7 breytast og kvöð um gegnumakstur milli lóða er felld niður.
- Bílastæðum á lóð fækkar til samræmis við breytta notkun.
- Aðkoma að bílakjallara breytist.

Samhliða deiliskipulagsbreytingunni er gerð númerabreyting á lóðum þannig að lóð nr. 3-5 verður eftir breytingu lóð nr. 3 og lóð nr. 7 verður eftir breytingu lóð nr. 5-7.

Urriðaholt ehf. hefur kynnt rekstraraðilum í nágrenninu drög að tillögunni.

Tillagan er í samræmi við ákvæði Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030.

Skipulagsnefnd vísaði tillögunni til auglýsingar í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Boða skal til almenns kynningarfundar á auglýsingartíma.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

06

5. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts Norðurhluta 4. áfanga sem nær til lóðanna Urriðaholtsstræti 1, Urriðaholtsstræti 3-5 og Urriðaholtsstræti 7.

Í breytingartillögunni felst eftirfarandi:

Urriðaholtsstræti 1:
- Byggingarreitur bílgeymslu stækkar.
- Fjöldi hæða verður 2 hæðir í stað 1-2 hæðir.
- Gerður er meiri sveigjanleiki í útfærslu þaks. Flatt þak skal ekki vera hærra en 9 metrar yfir aðkomuhæð. Sé bygging með mænisþaki eða einhalla hækkar hámarkshæð byggingar úr 9 m í 12 m. Við slíka útfærslu skal hámarksvegghæð ekki vera meiri en 8 metrar upp að þakbrún mænisþaks. Meðalhæð slíks þaks skal þó ekki vera hærri en 9,5 m.
- Heimilað er að byggja kalt óupphitað garðsvæði(A eða B rými) á lóð.
- Byggingamagn á lóð eykst um 500 m² vegna óupphitaðs garðrýmis á lóð.

Urriðaholtsstræti 3-5:
- Byggingarreitur á lóð breytist.
- Lóðamörk milli lóða Urriðaholtsstrætis 3-5 og 7 breytast og kvöð um gegnumakstur milli lóða 3-5 og 7 er felld niður.
- Heimilt verður að koma fyrir gróðurhúsi á þaki 1. hæðar.
- Byggingamagn atvinnuhúsnæðis á lóð minnkar um 500 m² en eykst í bílgeymslu um 732 m².
- Hæð húss breytist innbyrðis en hámarkshæð er óbreytt.
- Bílastæðakrafa er aukin úr 1 stæði fyrir hverja 30 m² í eitt stæði fyrir hverja 25 m².

Urriðaholtsstræti 7:
- Notkun breytist úr verslun- og þjónustu í íbúðir fyrir 50 ára og eldri.
- Almennir skilmálar fyrir íbúðir í norðurhluta 4 gilda fyrir lóðina eftir breytingu.
- Salarhæðir og hæðafjöldi byggingar breytist en hámarkshæð húss helst óbreytt.
- Heimilað byggingarmagn eykst úr 4.000 m² í 5.000 m² vegna íbúða neðan aðkomuhæðar og skilgreint er byggingamagn fyrir B rými svala. Byggingamagn bílgeymslu minnkar sem því nemur.
- Byggingarreitur breytist. Byggingarreitur er brotinn upp og myndaðar sjónlínur milli byggingahluta.
- Lóðamörk milli Urriðaholtsstrætis 3-5 og 7 breytast og kvöð um gegnumakstur milli lóða er felld niður.
- Bílastæðum á lóð fækkar til samræmis við breytta notkun.
- Aðkoma að bílakjallara breytist.

Samhliða deiliskipulagsbreytingunni er gerð númerabreyting á lóðum þannig að lóð nr. 3-5 verður eftir breytingu lóð nr. 3 og lóð nr. 7 verður eftir breytingu lóð nr. 5-7.

Urriðaholt ehf hefur kynnt rekstraraðilum í nágrenninu drög að tillögunni.

Tillagan er í samræmi við ákvæði Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030.

Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Boða skal til almenns kynningarfundar á auglýsingartíma.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

07

4. fundur

Drífa Árnadóttir skipulagsráðgjafi hjá Alta og Jón Pálmi Guðmundsson framkvæmdastjóri Urriðaholts ehf kynntu drög að tillögu að breytingu deiliskipulags Urriðaholts norður 4. áfanga sem nær til lóðanna Urriðaholtsstræti 1-7 sem eru enn óbyggðar.
Vísað til áframhaldandi mótunar hjá Umhverfissviði, Urriðaholti ehf og skipulagsráðgjafa.