Beint í efni

5. (957). fundur

20.03.2025
Bæjarstjórn Garðabæjar

5. (957). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

20.03.2025

Kl. 17:00 - 19:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Margrét Bjarnadóttir - forseti bæjarstjórnar
  • Almar Guðmundsson - bæjarfulltrúi
  • Björg Fenger - bæjarfulltrúi
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - bæjarfulltrúi
  • Hrannar Bragi Eyjólfsson - bæjarfulltrúi
  • Gunnar Valur Gíslason - bæjarfulltrúi
  • Guðfinnur Sigurvinsson - bæjarfulltrúi
  • Þorbjörg Þorvaldsdóttir - bæjarfulltrúi
  • Ingvar Arnarson - bæjarfulltrúi
  • Hlynur Elías Bæringsson - varabæjarfulltrúi
  • Rakel Steinberg Sölvadóttir - varabæjarfulltrúi

Ritari

  • Lúðvík Örn Steinarsson

Fundurinn er hljóðritaður og streymt beint á vef bæjarins.

Margrét Bjarnadóttir, forseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.

Fundargerð bæjarstjórnar frá 6. mars 2025 er lögð fram.

Dagskrá

Málsnúmer 2503009F

01

Fundargerð bæjarráðs frá 11/3 ´25.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir ræddi 8.tl. upplýsingabeiðni Alþýðusambands Íslands, SGS og Eflingar um útvistun sveitarfélagsins á ræstingu og þrifum.

Rakel Steinberg Sölvadóttir ræddi 1.tl. sjóvarnir á Álftanesi og í Garðahverfi, 3.tl. upplýsingaöryggisstefnu Garðabæjar og 4.tl. kjarasamninga KÍ.

Björg Fenger ræddi 2.tl. þjónustumiðstöð Garðabæjar og 5.tl. umsögn Garðabæjar um frumvarp til laga um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga.

Sigríður Hulda Jónsdóttir ræddi 4.tl. kjarasamninga KÍ.

Gunnar Valur Gíslason ræddi 5.tl. umsögn Garðabæjar um frumvarp til laga um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga.

Hlynur Bæringsson ræddi 4.tl. kjarasamninga KÍ og 5.tl. umsögn Garðabæjar um frumvarp til laga um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga.

Almar Guðmundsson ræddi 3.tl. upplýsingaöryggisstefnu Garðabæjar, 4.tl. kjarasamninga KÍ, 5. tl. umsögn Garðabæjar um frumvarp til laga um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga og 8.tl. upplýsingabeiðni Alþýðusambands Íslands, SGS og Eflingar um útvistun sveitarfélaga á ræstingu og þrifum.

Fundargerðin sem er 11.tl. er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 2503017F

02

Fundargerð bæjarráðs frá 18/3 ´25.

Gunnar Valur Gíslason ræddi 1.tl. þjónustukönnun meðal fatlaðs fólks í Garðabæ.

Rakel Steinberg Sölvadóttir ræddi 1.tl. þjónustukönnun meðal fatlaðs fólks í Garðabæ, 2.tl. neyðarstjórn - æfingu 2025 - jarðskjálfta- og eldgosavá og 5.tl. afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts Norðurhluta 4 vegna lóðanna við Urriðaholtsstræti 1-7.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir ræddi 1.tl. þjónustukönnun meðal fatlaðs fólks í Garðabæ.

Björg Fenger ræddi 1.tl. þjónustukönnun meðal fatlaðs fólks í Garðabæ, 2.tl. neyðarstjórn - æfingu 2025 - jarðskjálfta- og eldgosavá, 3.tl. afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi tillögu að deiliskipulagi Hleina að Langeyrarmölum.4.tl. afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi deiliskipulag fyrir tvo vegkafla Arnarnesvegar, 5.tl. afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts Norðurhluta 4 vegna lóðanna við Urriðaholtsstræti 1-7 og 7.tl. afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030.

Hrannar Bragi Eyjólfsson ræddi 1.tl. þjónustukönnun meðal fatlaðs fólks í Garðabæ.

Gunnar Valur Gíslason tók til máls að nýju og ræddi 6.tl. afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholt norður - raðhús - fjölbýlishús íbúðareiningar.

Rakel Steinberg Sölvadóttir tók til máls að nýju og ræddi 5.tl. afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts Norðurhluta 4 vegna lóðanna við Urriðaholtsstræti 1-7.

Almar Guðmundsson ræddi 1.tl. þjónustukönnun meðal fatlaðs fólks í Garðabæ, 2.tl. neyðarstjórn - æfingu 2025 - jarðskjálfta og eldgosavá, 5.tl. afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts Norðurhluta 4 vegna lóðanna við Urriðaholtsstræti 1-7 og 9.tl. afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2015 - landnotkun AT1 reits við Hólshraun. Vakti hann athygli á að fyrir liggi að Hafnarfjörður hafi fallið frá áformum sínum um breytingar á aðalskipulagi bæjarins að þessu leyti til.

Fundargerðin sem er 12 tl. er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 2503012F

03

Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 11/3 ´25.

Guðfinnur Sigurvinsson ræddi 1.tl. jazzþorpið í Garðabæ, 2.tl. barnamenningarhátíð í Garðabæ og 3.tl. menningarstefnu Garðabæjar.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir ræddi 2.tl. barnamenningarhátíð í Garðabæ og 1.tl. jazzþorpið í Garðabæ.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2503015F

04

Fundargerð leikskólanefndar frá 13/3 ´25.

Margrét Bjarnadóttir ræddi 2.tl. innritun í leikskóla 2025.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2503014F

05

Fundargerð skipulagsnefndar frá 10/3 ´25.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2503004F

06

Fundargerð skólanefndar Tónlistarskóla frá 10/3 ´25.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2502035F

07

Fundargerð ungmennaráðs frá 4/3 ´25.

Hrannar Bragi Eyjólfsson ræddi fundargerðina, 2.tl. strætó og samgöngur í Garðabæ - undirbúning fyrir fund með Hrannari Braga formanni íþrótta- og tómstundaráðs.

Hlynur Bæringsson ræddi fundargerðina, 2.tl. strætó og samgöngur - undirbúning fyrir fund með Hrannari Braga formanni íþrótta- og tómstundaráðs.

Ingvar Arnarson ræddi fundargerðina, 2.tl. strætó og samgöngur - undirbúning fyrir fund með Hrannari Braga formanni íþrótta- og tómstundaráðs.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir ræddi fundargerðina, 2.tl. strætó og samgöngur - undirbúning fyrir fund með Hrannari Braga formanni íþrótta- og tómstundaráðs og 3.tl. önnur mál.

Hrannar Bragi Eyjólfsson tók til máls að nýju og ræddi 2.tl. strætó og samgöngur - undirbúning fyrir fund með Hrannari Braga formanni íþrótta- og tómstundaráðs.

Rakel Steinberg Sölvadóttir ræddi 2.tl. strætó og samgöngur - undirbúning fyrir fund með Hrannari Braga formanni íþrótta- og tómstundaráðs.

Hrannar Bragi Eyjólfsson tók til máls að nýju og ræddi 2.tl. strætó og samgöngur - undirbúning fyrir fund með Hrannari Braga formanni íþrótta- og tómstundaráðs.

Ingvar Arnarson tók til máls að nýju og ræddi 2.tl. strætó og samgöngur - undirbúning fyrir fund með Hrannari Braga formanni íþrótta- og tómstundaráðs.

Hlynur Bæringsson tók til máls að nýju og ræddi 2.tl. strætó og samgöngur - undirbúning fyrir fund með Hrannari Braga formanni íþrótta- og tómstundaráðs.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2501149

08

Fundargerð stjórnar SSH frá 3/3 ´25.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2502221

09

Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 19/2 ´25.

Hrannar Bragi Eyjólfsson ræddi 1.tl. Samgöngusáttmálann og 2.tl. endastöð Skúlagötu.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2501405

10

Fundargerðir 2025 - Sorpa

Gunnar Valur Gíslason ræddi 1.tl. ársuppgjör Sorpu bs. fyrir starfsárið 2024 lagt fram til kynningar og 2.tl. dagsetningu aðalfundar.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2502251

11

Fundargerð stjórnar SHS frá 28/2 ´25.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2502329

12

Umsókn Brynju leigufélags um stofnframlag.

Bæjarstjórn samþykkir að verða við erindi Brynju leigufélags ses. um greiðslu stofnframlags vegna kaupa á þremur tveggja og þriggja herbergja íbúðum í Garðabæ árið 2025. Áætlað kaupverð er 205,2 mkr. og nemur stofnframlag 12% eða 24,6 mkr. (mál nr. 2502329)