Beint í efni

Fundargerð bæjarráðs frá 18/3 ´25.

Málsnúmer 2503017F

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

5. (957). fundur

Gunnar Valur Gíslason ræddi 1.tl. þjónustukönnun meðal fatlaðs fólks í Garðabæ.

Rakel Steinberg Sölvadóttir ræddi 1.tl. þjónustukönnun meðal fatlaðs fólks í Garðabæ, 2.tl. neyðarstjórn - æfingu 2025 - jarðskjálfta- og eldgosavá og 5.tl. afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts Norðurhluta 4 vegna lóðanna við Urriðaholtsstræti 1-7.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir ræddi 1.tl. þjónustukönnun meðal fatlaðs fólks í Garðabæ.

Björg Fenger ræddi 1.tl. þjónustukönnun meðal fatlaðs fólks í Garðabæ, 2.tl. neyðarstjórn - æfingu 2025 - jarðskjálfta- og eldgosavá, 3.tl. afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi tillögu að deiliskipulagi Hleina að Langeyrarmölum.4.tl. afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi deiliskipulag fyrir tvo vegkafla Arnarnesvegar, 5.tl. afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts Norðurhluta 4 vegna lóðanna við Urriðaholtsstræti 1-7 og 7.tl. afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030.

Hrannar Bragi Eyjólfsson ræddi 1.tl. þjónustukönnun meðal fatlaðs fólks í Garðabæ.

Gunnar Valur Gíslason tók til máls að nýju og ræddi 6.tl. afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholt norður - raðhús - fjölbýlishús íbúðareiningar.

Rakel Steinberg Sölvadóttir tók til máls að nýju og ræddi 5.tl. afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts Norðurhluta 4 vegna lóðanna við Urriðaholtsstræti 1-7.

Almar Guðmundsson ræddi 1.tl. þjónustukönnun meðal fatlaðs fólks í Garðabæ, 2.tl. neyðarstjórn - æfingu 2025 - jarðskjálfta og eldgosavá, 5.tl. afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts Norðurhluta 4 vegna lóðanna við Urriðaholtsstræti 1-7 og 9.tl. afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2015 - landnotkun AT1 reits við Hólshraun. Vakti hann athygli á að fyrir liggi að Hafnarfjörður hafi fallið frá áformum sínum um breytingar á aðalskipulagi bæjarins að þessu leyti til.

Fundargerðin sem er 12 tl. er samþykkt samhljóða.