Beint í efni

23. (2171). fundur

24.06.2025
Bæjarráð Garðabæjar

23. (2171). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

24.06.2025

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Hrannar Bragi Eyjólfsson - aðalmaður
  • Gunnar Valur Gíslason - varamaður
  • Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
  • Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
  • Brynja Dan Gunnarsdóttir - aðalmaður
  • Arnar Hólm Einarsson - varaáheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Lúðvík Örn Steinarsson - sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
  • Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri velferðarsviðs
  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
  • Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs

Ritari

  • Lúðvík Örn Steinarsson

Dagskrá

Málsnúmer 2407142

01

Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2025 (2025-2028) - Viðauki nr. 1.

Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs gerði grein fyrir eftirfarandi viðauka nr. 1 við fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2025.

Bæjarráð samþykkir, skv. heimild í 5.mgr. 35.gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, eftirfarandi viðauka nr. 1 við fjárhagsáætlun 2025 samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

"Viðauki 1

Vegna launahækkana kennara sem eru umfram samþykkta fjárhagsáætlun Garðabæjar

þarf að gera eftirfarandi viðauka við fjárhagsáætlun 2025.



Á fundi bæjarráðs 25. mars sl. var gerð grein fyrir kostnaðarauka vegna samninganna og mögulegri fjármögnun þeirra og á fundi bæjarráðs 20. maí var nákvæmar greint frá fjármögnun varðandi 83 m.kr. hagræðingu.



Kostnaðarauki:



Launahækkun kennara kr. 533.000.000

Samtals kostnaðarauki kr. 533.000.000



Fjármögnun:



Varasjóður kr. -200.000.000



Tekjuauki Jöfnunarsjóður kr. -100.000.000



Tekjuauki útsvars vegna hærri launa kennara kr. -50.000.000



Hagræðing kr. -83.000.000

(Launaliðir: Færri sumarstörf á bæjarskrifstofum, engar nýráðningar sumarstarfa eftir 19. maí, átak í að draga úr kostnaði vegna skammtímaveikinda

launafrysting bæjarstjóra og sviðsstjóra, ásamt almennri hagræðingu launa.

kr. 73.000.000

Hagræðing í aðkeyptri þjónustu kr. 10.000.000)



Minna umfang framkvæmda kr. -100.000.000



Samtals fjármögnun kr. -533.000.000"

Málsnúmer 2504217

02

Kjarrprýði 4 - Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Antoni Kjartanssyni, kt. 190766-3499, leyfi fyrir byggingu einbýlishúss að Kjarrprýði 4.

Málsnúmer 2503312

03

Norðurtún 15 - Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Guðlaugi Ingasyni, kt. 170883-5869, leyfi fyrir viðbyggingu að Norðurtúni 15.

Málsnúmer 2505238

04

Seinakur 4 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Múr og hleðslu ehf., kt. 510719-0260 leyfi til að byggja einbýlishús á einni hæð að Seinakri 4.

Málsnúmer 2504023

05

Stekkholt 6 - Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Sigurði Hrafni Kiernan, kt. 190969-4799, leyfi fyrir byggingu einbýlishúss að Stekkholti 6.

Málsnúmer 2504453

06

Útholt 43 (áður 35) - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Ólafssonum ehf., kt. 560305-0280, leyfi fyrir byggingu tveggja hæða raðhúss að Útholti 43.

Málsnúmer 2506384

07

Útholt 45 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Ólafssonum ehf., kt. 560305-0280, leyfi fyrir byggingu tveggja hæða raðhúss að Útholti 45.

Málsnúmer 2506385

08

Útholt 47 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Ólafssonum ehf., kt. 560305-0280, leyfi fyrir byggingu tveggja hæða raðhúss að Útholti 47.

Málsnúmer 2506386

09

Útholt 49 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Ólafssonum ehf., kt. 560305-0280, leyfi fyrir byggingu tveggja hæða raðhúss að Útholti 49.

Málsnúmer 2506387

10

Útholt 51 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Ólafssonum ehf., kt. 560305-0280, leyfi fyrir byggingu tveggja hæða raðhúss að Útholti 51.

Málsnúmer 2407382

11

Vorbraut 15 - Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Vorbraut ehf., kt. 411123-1890, leyfi fyrir stækkun og breytingu á kjallara að Vorbraut 15.

Málsnúmer 2506056

12

Afgreiðsla skipulagsnefndar - Breiðás 11 - Fyrirspurn til umhverfissviðs

Bæjarráð staðfestir, skv. heimild í 5.mgr. 35.gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 19. júní 2025 varðandi fyrirspurn um fjölgun íbúða við Breiðás 11. Í dag eru samþykktar tvær íbúðir í húsinu og yrðu þær þá þrjár.

Skipulagsnefnd gat ekki fallist á þær breytingar að fjölga íbúðum við Breiðás 11 úr tveimur í þrjár.

Staðfest með fjórum atkvæðum (HBE, AG, GVG, BDG). Þorbjörg Þorvaldsdóttir sat hjá.

Málsnúmer 2410218

13

Afgreiðsla skipulagsnefndar - Móaflöt 51 - Dsk. br. Flata

Bæjarráð staðfestir, skv. heimild í 5.mgr. 35.gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 19. júní 2025 vegna tillögu að óverulegri breytingu deiliskipulags Flata, sem nær til lóðarinnar Móaflatar 51, að lokinni grenndarkynningu. Engar athugasemdir bárust.

Skipulagsnefnd samþykkti tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Flata í samræmi við 41. og 2.mgr.43.gr. skipulagslaga nr.123/2010.

Málsnúmer 2502444

14

Afgreiðsla skipulagsnefndar - Urriðaholtsstræti 1-7 - Urriðaholt Norð.- 4.áf.

Bæjarráð staðfestir, skv. heimild í 5.mgr. 35.gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 19. júní 2025 vegna tillögu að breytingu deiliskipulags Urriðaholts norðurhluta 4. áfanga, sem nær til lóðanna Urriðaholtsstrætis 1-7 að lokinni auglýsingu, ásamt tillögum að svörum við þeim athugasemdum sem bárust á auglýsingartíma.

Sem viðbrögð við þeim athugasemdum sem bárust lagði skipulagsnefnd til að eftirfarandi breytingar verði gerðar á tillögunni:

- Kennisnið fyrir vörugeymslu við Urriðaholtsstræti 3 verður breytt þannig

að hámarksþakhæð þess húshluta sem gerir ráð fyrir vöruafgreiðslu verður hækkuð úr 6,0 m í 6,5 m.

Skipulagsnefnd Garðabæjar samþykkti deiliskipulagsbreytinguna í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Málsnúmer 2502186

15

Afgreiðsla skipulagsnefndar - Urriðaholt Austurhluti, deiliskipulagsbreyting, Flóttamannavegur

Bæjarráð staðfestir, skv. heimild í 5.mgr. 35.gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 19. júní 2025 vegna tillögu að breytingu deiliskipulags Urriðaholts austurhluta, ásamt tillögum að svörum og viðbrögðum við þeim athugasemdum sem bárust á auglýsingartíma.

Í deiliskipulaginu mun koma fram það sjónarmið Garðabæjar að æskilegt sé að hámarkshraði á Flóttamannavegi á þessum kafla sé ekki hærri en 50 km/klst í ljósi þess að hann liggur um þéttbýli með byggð á aðra hönd og útivistarsvæði/golfvöll á hina. Miðað við þær aðstæður er ekki ráðlagt að vera með hærri umferðarhraða en 50 km/klst.

Mörk fólkvanga verða einnig sett inn á deiliskipulagsuppdrátt.

Skipulagsnefnd Garðabæjar samþykkti deiliskipulagsbreytinguna í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Málsnúmer 2502185

16

Afgreiðsla skipulagsnefndar - Urriðaholt Norðurhluti 4.áfangi, deiliskipulagsbreyting, Flóttamannavegur

Bæjarráð staðfestir, skv. heimild í 5.mgr. 35.gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 19. júní 2025 vegna tillögu að breytingu deiliskipulags Urriðaholts norðurhluta 4. áfanga, ásamt tillögum að svörum og viðbrögðum við þeim athugasemdum sem bárust á auglýsingartíma.

Í deiliskipulaginu mun koma fram það sjónarmið Garðabæjar að æskilegt sé að hámarkshraði á Flóttamannavegi á þessum kafla sé ekki hærri en 50 km/klst í ljósi þess að hann liggur á um þéttbýli með byggð á aðra hönd og útivistarsvæði/golfvöll á hina. Miðað við þær aðstæður er ekki ráðlagt að vera með hærri umferðarhraða en 50 km/klst.

Mörk fólkvanga verða einnig sett inn á deiliskipulagsuppdrátt.

Skipulagsnefnd Garðabæjar samþykkti deiliskipulagsbreytinguna í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Málsnúmer 2502187

17

Afgreiðsla skipulagsnefndar - Deiliskipulag útivistarsvæðis í Urriðavatnsdölum, deiliskipulagsbreyting Flóttamannavegur

Bæjarráð staðfestir, skv. heimild í 5.mgr. 35.gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 19. júní 2025 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags útivistarsvæðis í Urriðavatnsdölum, ásamt tillögum að svörum og viðbrögðum við þeim athugasemdum sem bárust á auglýsingartíma.

Í deiliskipulaginu mun koma fram það sjónarmið Garðabæjar að æskilegt sé að hámarkshraði á Flóttamannavegi á þessum kafla sé ekki hærri en 50 km/klst í ljósi þess að hann liggur um þéttbýli með byggð á aðra hönd og útivistarsvæði/golfvöll á hina. Miðað við þær aðstæður er ekki ráðlagt að vera með hærri umferðarhraða en 50 km/klst.

Mörk fólkvanga verða einnig sett inn á deiliskipulagsuppdrátt.

Skipulagsnefnd Garðabæjar samþykkti deiliskipulagsbreytinguna í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Málsnúmer 2505259

18

Afgreiðsla skipulagsnefndar - Víðiholt - Veggir, girðingar og smáhýsi.

Bæjarráð staðfestir, skv. heimild í 5.mgr. 35.gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 19. júní 2025 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Víðiholts sem nær til veggja, girðinga og smáhýsa.

Tillagan gerir ráð fyrir eftirfarandi breytingum:

- Heimilt er að setja skjólvegg allt að 1,8 m háan á milli lóða eða út frá horni endahúsa, allt að 4,4 m frá byggingarreit.

- Heimilt er að skerma lóðina af með gróðri eða girðingu allt að 1,5 m hárri. Ef girðing á lóðarmörkum er höfð hærri en 1,2 m skal koma fyrir uppbrotum í vegg með gróðurhólfum.

- Heimilt er að setja upp eitt smáhýsi á hverja rað- og parhúsalóð, allt að 5 m² að stærð. Að öðru leiti gilda ákvæði byggingarreglugerðar um fjarlægð smáhýsa frá lóðarmörkum og hámarkshæð smáhýsa.

Skipulagsnefnd mat tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Víðiholts í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. sömu laga.

Grenndarkynna skal lóðarhöfum við Víðiholt, við Asparholt 2,4,6,8,10,12 og 14 sem og Lyngholt 6, 8,10, 15,17 og 19.

Málsnúmer 2502449

19

Afgreiðsla skipulagsnefndar - Vetrarmýri, tillaga að breytingu á deiliskipulagi, leikvangur ofl.

Bæjarráð staðfestir, skv. heimild í 5.mgr. 35.gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 19. júní 2025 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Vetrarmýrar, ásamt tillögum að svörum og viðbrögðum við þeim athugasemdum og umsögnum sem bárust á auglýsingartíma.

Sem viðbrögð við þeim umsögnum sem bárust leggur skipulagnefnd til að eftirfarandi breytingar verði gerðar á tillögunni:

- Knattspyrnuleikvangur er færður til vesturs svo svæði fyrir áhorfendur verður bæði að austanverðu og vestanverðu. Að austanverðu verði lægri og minni stúka þ.e.ein hæð. Að vestanverðu lækkar stúku- og verslunarbygging frá auglýstri tillögu úr 4 hæðum í 3 hæðir. Við það minnkar heildarstærð stúkubygginga. Nýtingahlutfall minnkar til samræmis.

- Spennistöð er bætt við innan lóðar í suðausturhorni fjölnotahúss Miðgarðs.

- Heimild fyrir tveggja hæða kjallara er tekin út á lóðunum 15, 17, 19, 24-28, 32, 34 og 36 við Vetrarbraut. Við það lækkar heildarbyggingarmagn á lóðunum og nýtingarhlutfall í samræmi við það.

Skipulagsnefnd Garðabæjar samþykkti deiliskipulagsbreytinguna með ofangreindum breytingum í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Málsnúmer 2505251

20

Hönnun - Útboð - Dælustöð Hólmatún Álftanes

Eftirfarandi tilboð bárust í útboðsverkið "Dælu- og hreinsistöð við Hólmatún ásamt þrýstilögnum fráveitu:

1. Fagurverk ehf., kr. 97.882.900.

2. Urð og grjót ehf., kr. 81.932.250.

3. Gleipnir verktakar ehf., kr. 89.000.000.

Kostnaðaráætlun var kr. 92.694.000.

Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Urð og grjót ehf. að fjárhæð kr. 81.932.250. Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er sviðsstjóra umhverfissviðs falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opin-ber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kæru-frestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.

Málsnúmer 2506431

21

Hönnun - Útboð - Hofstaðaskóli Lóð - Endurnýjun

Eftirfarandi tilboð bárust í útboðsverkið "Hofsstaðaskóli 1. áfangi":

1. Borgarvirki ehf., kr. 45.250.000.

2. Lóðarþjónustan ehf., kr. 50.021.000.

3. Sumargarðar ehf., kr. 49.702.000.

4. Fagurverk ehf., kr. 44.871.500.

5. Jóhann Helgi og Co ehf., kr. 40.405.000.

Kostnaðaráætlun var 53.588.000.

Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Jóhanns Helga og co ehf. að fjárhæð kr. 40.405.000. Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er sviðsstjóra umhverfissviðs falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opin-ber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kæru-frestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.

Málsnúmer 2405295

22

Útboð - Flataskóli suðurálma.

Ekki bárust tilboð í verkið.

Bæjarráð felur umhverfissviði að leita samninga við verktaka um framkvæmd verksins.

Málsnúmer 2412379

23

Útboð á ritföngum fyrir grunn- og leikskóla Garðabæjar.

Eftirfarandi tilboð bárust í útboðsverkið "Ritföng fyrir grunn- og leikskóla Garðabæjar 2025-2027":

1. A4 ehf., kr. 7.888.539.

2. Penninn ehf., kr. 8.398.825.

Kostnaðaráætlun var 10.000.000.

Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda A4 ehf., að fjárhæð kr. 7.883.539. Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er sviðsstjóra fræðslu- og frísundasviðs falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opin-ber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kæru-frestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.

Málsnúmer 2506214

24

Áskorun til sveitarstjórna frá Félagi atvinnurekenda , dags. 10. júní 2025.

Lagt fram.

Málsnúmer 2506260

25

Beiðni Þúfunnar áfangaheimilis fyrir konur um rekstrarstyrk, dags. 11. júní 2025.

Beiðni Litlu þúfunnar fta. um rekstrarstyrk.

Bæjarráð vísar málinu til úthlutunar styrkja samkvæmt fjárhagsáætlun.

Málsnúmer 2506001

26

Viljayfirlýsing um undirbúning stofnun skóla sérhæfðan fyrir einhvern börn.

Lögð fram viljayfirlýsing milli Garðabæjar og Jónsvegs ehf. um vilja til að undirbúa stofnun skóla, sem er sérhæfður grunnskóli fyrir einhverf börn.

Bæjarráð samþykkir með fjórum atkvæðum (HBE, AG, GVG, BDG) að veita bæjarstjóra heimild til að undirrita viljayfirlýsinguna fyrir hönd Garðabæjar.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir sat hjá og lagði fram eftirfarandi bókun: "Garðabæjarlistinn fagnar því að horft sé til þess að setja á fót sérúrræði fyrir einhverf grunnskólabörn. Hins vegar hefðum við viljað frekari umræðu og upplýsingar áður en viljayfirlýsing um stofnun nýs skóla er borin á borð bæjarráðs til afgreiðslu, einkarekins grunnskóla með húsnæðisstuðningi frá Garðabæ án þess að fjallað sé um kosti og galla rekstrarformsins, húsnæðismál, þarfagreiningu o.fl. Þess vegna sit ég hjá við hjá við atkvæðagreiðsluna."