Beint í efni

Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2025 (2025-2028)

Málsnúmer 2407142

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

15. (967). fundur

Bæjarstjórn samþykkir eftirfarandi viðauka nr. 2 við fjárhagsáætlun 2025 samkvæmt 2.mgr. 63.gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Viðauki 2

Velferðarsvið
Samtals er lagt til 103 m.kr. kostnaðarauka á Velferðarsviði sbr. neðangreinda sundurliðun.

02330 Vistgjöld vegna barnaverndar 70.000.000
02340 Úrræði á heimili v/barna, barnavernd 5.000.000
02150 Félagsleg heimaþjónusta 70.000.000
02564 Miðskógar sambýli fatlaðra 10.000.000
02568 Brekkuás íbúakjarni fatlað fólk 30.000.000
02415 Afsláttur fasteignagjalda -32.000.000
02567 Búsetuúrræði , sólarhringsþjónusta -50.000.000

Samtals kr. 103.000.000

Fræðslumál
Samtals er lagt til 167 m.kr. kostnaðarauka á Fræðslusviði sbr. neðangreinda sundurliðun.

04030 Niðurgreiðsla á skólamat 176.000.000
04030 Leikskóladeild Urriðaholtsskóla 40.000.000
04287 Frístund Urriðaholtsskóla 6.000.000
04290 Frístundaheimili önnur -55.000.000

Samtals kr. 167.000.000

Æskulýðs- og íþróttamál
Samtals er lagt til 31 m.kr. kostnaðarauka vegna æskulýðs- og íþróttamála sbr. neðangreinda sundurliðun.

06511 Orkukaup Ásgarðslaug 14.000.000
06271 Vinnuskóli laun 17.000.000

Samtals kr. 31.000.000

Hækkun lífeyrisskuldbindingar
Fyrir liggur útreikningur tryggingastærðfræðings á áætlaðri lífeyrisskuldbindingu Garðabæjar fyrir árin 2025 og 2026. Útreikningarnir gera ráð fyrir að gjaldfærsla vegna hækkunar verði á árinu 2025 490 m.kr. en áætlun gerði ráð fyrir 450 m.kr. Áætlun fyrir árið 2026 gerir hins vegar ráð fyrir 390 m.kr.

Hækkun gjaldfærslu lífeyrisskuldbindingar 2025 40.000.000

Samtals kr. 40.000.000

Kostnaðarauki samtals 341.000.000

341.000.000

Fjármögnun

00010 Útsvar -203.000.000
00060 Fasteignaskattur -63.000.000
00100 Jöfnunarsjóður -68.000.000
00350 Lóðarleiga -7.000.000

Samtals -341.000.000

Bæjarráð Garðabæjar

02

39. (2187). fundur

Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri gerði grein fyrir eftirfarandi viðauka nr. 2 við fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2025. Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja eftirfarandi viðauka nr. 2 við fjárhagsáætlun 2025 samkvæmt 2.mgr. 63.gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Viðauki 2

Velferðarsvið
Samtals er lagt til 103 m.kr. kostnaðarauka á Velferðarsviði sbr. neðangreinda sundurliðun.

02330 Vistgjöld vegna barnaverndar 70.000.000
02340 Úrræði á heimili v/barna, barnavernd 5.000.000
02150 Félagsleg heimaþjónusta 70.000.000
02564 Miðskógar sambýli fatlaðra 10.000.000
02568 Brekkuás íbúakjarni fatlað fólk 30.000.000
02415 Afsláttur fasteignagjalda -32.000.000
02567 Búsetuúrræði , sólarhringsþjónusta -50.000.000

Samtals kr. 103.000.000

Fræðslumál
Samtals er lagt til 167 m.kr. kostnaðarauka á Fræðslusviði sbr. neðangreinda sundurliðun.

04030 Niðurgreiðsla á skólamat 176.000.000
04030 Leikskóladeild Urriðaholtsskóla 40.000.000
04287 Frístund Urriðaholtsskóla 6.000.000
04290 Frístundaheimili önnur -55.000.000
Samtals kr. 167.000.000

Æskulýðs- og íþróttamál
Samtals er lagt til 31 m.kr. kostnaðarauka vegna æskulýðs- og íþróttamála sbr. neðangreinda sundurliðun.

06511 Orkukaup Ásgarðslaug 14.000.000
06271 Vinnuskóli laun 17.000.000
Samtals kr. 31.000.000

Hækkun lífeyrisskuldbindingar
Fyrir liggur útreikningur tryggingastærðfræðings á áætlaðri lífeyrisskuldbindingu Garðabæjar fyrir árin 2025 og 2026. Útreikningarnir gera ráð fyrir að gjaldfærsla vegna hækkunar verði á árinu 2025 490 m.kr. en áætlun gerði ráð fyrir 450 m.kr. Áætlun fyrir árið 2026 gerir hins vegar ráð fyrir 390 m.kr.

Hækkun gjaldfærslu lífeyrisskuldbindingar 2025 40.000.000
Samtals kr. 40.000.000

Kostnaðarauki samtals 341.000.000
341.000.000

Fjármögnun
00010 Útsvar -203.000.000
00060 Fasteignaskattur -63.000.000
00100 Jöfnunarsjóðu -68.000.000
00350 Lóðarleiga -7.000.000

Samtals -341.000.000

Fylgiskjöl

Bæjarstjórn Garðabæjar

03

12. (964). fundur

Almar Guðmundsson, bæjarstjóri, gerði grein fyrir eftirfarandi tillögu um lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga, að fjárhæð kr. 600.000.000. Um er að ræða skammtímalán með gjalddaga 18. mars 2026, óverðtryggt með 9,3% vöxtum.

"Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir hér með á bæjarstjórnarfundi að taka skammtímalán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstól 600.000.000 kr. með gjalddaga 18. mars 2026, óverðtryggt með 9,3% vöxtum. Fyrir liggur samþykki Lánasjóðs sveitarfélaga til Garðabæjar fyrir allt að 2.000.000.0000 kr. láni með þeim lánaskilmálum sem býðst á þeim tíma sem lántaka færi fram. Það skammtímalán sem nú er tekið getur verið forveri langtímaláns í þeim skuldabréfaflokkum sem Lánasjóðurinn býður sveitarfélögum upp á hverju sinni.
Bæjarstjórn samþykkir að til tryggingar láninu (höfuðstól, vöxtum, dráttarvöxtum og kostnaði) standi tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið í útsvarstekjum sínum og framlögum til sveitarfélagsins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga.
Er lánið tekið til að standa straum af 3. áfanga Urriðaholtsskóla sem felur í sér að vera verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006.
Jafnframt er Almari Guðmundssyni bæjarstjóra kt. 030572-2979 veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Garðabæjar að undirrita lánasamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hverskyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns."

Bæjarráð Garðabæjar

04

33. (2181). fundur

Á fund bæjarráðs kom Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og gerði grein fyrir tillögu um lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga. Lagt er til að Garðabær taki nú 600.000.000 kr. lán. Um er að ræða skammtímalán með gjalddaga 18. mars 2026, óverðtryggt með 9,3% vöxtum.
Fyrir liggur lánsloforð lánasjóðsins til Garðabæjar fyrir allt að kr. 2.000.000.000, en sú fjárhæð rúmast innan lántökuheimilda Garðabæjar skv. fjárhagsáætlun ársins 2025.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.

Bæjarráð Garðabæjar

05

23. (2171). fundur

Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs gerði grein fyrir eftirfarandi viðauka nr. 1 við fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2025.
Bæjarráð samþykkir, skv. heimild í 5.mgr. 35.gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, eftirfarandi viðauka nr. 1 við fjárhagsáætlun 2025 samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

"Viðauki 1

Vegna launahækkana kennara sem eru umfram samþykkta fjárhagsáætlun Garðabæjar
þarf að gera eftirfarandi viðauka við fjárhagsáætlun 2025.

Á fundi bæjarráðs 25. mars sl. var gerð grein fyrir kostnaðarauka vegna samninganna og mögulegri fjármögnun þeirra og á fundi bæjarráðs 20. maí var nákvæmar greint frá fjármögnun varðandi 83 m.kr. hagræðingu.

Kostnaðarauki:

Launahækkun kennara kr. 533.000.000
Samtals kostnaðarauki kr. 533.000.000

Fjármögnun:

Varasjóður kr. -200.000.000

Tekjuauki Jöfnunarsjóður kr. -100.000.000

Tekjuauki útsvars vegna hærri launa kennara kr. -50.000.000

Hagræðing kr. -83.000.000

(Launaliðir: Færri sumarstörf á bæjarskrifstofum, engar nýráðningar sumarstarfa eftir 19. maí, átak í að draga úr kostnaði vegna skammtímaveikinda
launafrysting bæjarstjóra og sviðsstjóra, ásamt almennri hagræðingu launa.
kr. 73.000.000
Hagræðing í aðkeyptri þjónustu kr. 10.000.000)

Minna umfang framkvæmda kr. -100.000.000

Samtals fjármögnun kr. -533.000.000"

Bæjarráð Garðabæjar

06

19. (2167). fundur

Bæjarstjóri kynnti útfærslu á því hvernig Garðabær hyggst mæta kostnaðarauka í tengslum við kjarasamninga við kennarafélögin, ásamt hagræðingartillögum.

1. Hagræðing kr. 83.000.000. Áformað er að hagræða í launakostnaði að fjárhæð kr. 73.000.000 sem mætt verður með færri sumarstörfum á bæjarskrifstofum, engar nýráðningar sumarstarfa eftir 19. maí, átak í að draga úr kostnaði vegna skammtímaveikinda, launafrysting bæjarstjóra og sviðsstjóra, ásamt almennri hagræðingu launa. Að auki er ráðgert að hagræða í aðkeyptri þjónustu sveitarfélagsins að fjárhæð kr. 10.000.000.

Þá mun frekari kostnaði mætt með eftirfarandi hætti, sbr. minnisblað sem kynnt var í bæjarráði 25. mars 2025:

2. Varasjóður samkvæmt samþykktri fjárhagsáætlun kr. 200.000.000.
3. Tekjuauki vegna Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga (uppfærð áætlun sjóðsins) kr. 100.000.000.
4. Tekjuauki vegna hærra útsvars af launum kennara kr. 50.000.000.
5. Minnkað umfang framkvæmda kr. 100.000.000. Dregið verður úr framkvæmdum eins og unnt er.

Bæjarráð Garðabæjar

07

17. (2165). fundur

Bæjarráð samþykkir eftirfarandi tillögu um úthlutun styrkja:

Garðálfar - kór eldri borgara á Álftanesi kr. 450.000.-
Garðakórinn kr. 500.000.-
Bjarkarhlíð - miðstöð fyrir þolendur ofbeldis kr. 800.000.-
Samtök um kvennaathvarf kr. 800.000.-
Stígamót kr. 800.000.-
Örninn - minningar- og styrktarsjóður kr. 800.000.-
Krabbameinsfélag höfuðborgarsvæðisins kr. 100.000.-
Kvennaráðgjöfin kr. 250.000.-
Lionsklúbburinn Eik kr. 500.000.-
Kiwanisklúbburinn Setberg kr. 500.000.-

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

08

16. (2164). fundur

Bæjarstjóri gerði grein fyrir vöru- og þjónustukaupum af stærstu birgja á árinu 2024.

Bæjarráð Garðabæjar

09

12. (2160). fundur

Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri fór yfir minnisblað um fjármögnun kostnaðarauka sem fylgir heildaráhrifum kjarasamninga KÍ á fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2025.
Bæjarráð vísar málinu til frekari skoðunar og útfærslu hjá bæjarstjóra.

Öldungaráð

10

1. fundur

Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2025.

Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2025, Lúðvík Hjalti Jónsson fjármálastjóri, fór yfir áætlunina og svaraði fyrirspurnum fundarmanna.

Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks

11

1. fundur

Kynning á fjárhagsáætlun Garðabæjar 2025.

Kynning á fjárhagsáætlun Garðabæjar 2025, Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálstjóri kynnti áætlunina og svaraði fyrirspurnum nefndarmanna.

Velferðarráð Garðabæjar

12

1. fundur

Kynning á fjárhagsáætlun Garðabæjar 2025.

Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri, sat fundinn undir þessum lið og kynnti fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2025.

Bæjarstjórn Garðabæjar

13

1. (953). fundur

Lögð fram gjaldskrá stuðningsþjónustu í Garðabæ. Gjaldskráin fylgdi fundarboði og er vistuð í fundargátt.

Gjaldskráin samþykkt með 9 atkvæðum (AG, BF, SHJ, MB, HBE, GVG, GS, RSS, BDG). Tveir sátu hjá (ÞÞ, IA).

Bæjarráð Garðabæjar

14

2. (2150). fundur

Bæjarráð samþykkir reglur um greiðslur vegna dvalar barna úr Garðabæ hjá dagforeldrum árið 2025.

Bæjarráð Garðabæjar

15

2. (2150). fundur

Lögð fram eftirfarandi tillaga um viðmiðunarfjárhæðir samkvæmt reglum um lækkun eða niðurfellingu fasteignaskatts elli- og örorkulífeyrisþega.

„Einstaklingar með tekjur árið 2023 allt að kr. 6.970.000 greiða ekki fasteignaskatt og holræsagjald. Afsláttur lækkar um 1% við hækkun tekna um kr. 6.100 og fellur niður ef tekjur fara yfir kr. 7.580.000. (Ath. að fjármagnstekjur falla undir tekjur).

Hjón og samskattaðir aðilar (elli- og örorkulífeyrisþegar):
Hjón með tekjur árið 2023 allt að kr. 8.870.000 greiða ekki fasteignaskatt og holræsagjald. Afsláttur lækkar um 1% við hækkun tekna um kr. 14.500 og fellur niður ef tekjur fara yfir kr. 10.330.000. (Ath. að fjármagnstekjur falla undir tekjur).

Ekki þarf að sækja um lækkunina.“

Tillagan byggir á hækkun á ellilífeyris í janúar 2025 (4,3% hækkun).

Bæjarráð samþykkir samhljóða framlagða tillögu.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að rýna fyrirkomulag reglnanna nánar.

Bæjarráð Garðabæjar

16

1. (2149). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja gjaldskrá stuðningsþjónustu fyrir árið 2025.

Bæjarstjórn Garðabæjar

17

18. (951). fundur

Skólamálsverðir í Garðabæ eru gjaldfrjálsar árið 2025.

Bæjarstjórn Garðabæjar

18

18. (951). fundur

Lögð fram gjaldskrá fyrir akstursþjónustu eldri borgara Garðabæjar þar sem gert er ráð fyrir að gjald fyrir hverja ferð nemi einu og hálfu strætisvagnafargjaldi. Gjaldskráin fylgdi fundarboði og er vistuð í fundargátt.

Gjaldskráin samþykkt samhljóða.

Bæjarstjórn Garðabæjar

19

18. (951). fundur

Lagðar fram reglur um tekjutengingu afslátta af leikskólagjöldum, gjöldum frístundaheimila og gjöldum til dagforeldra. Reglurnar fylgdu fundarboði og eru vistaðar í fundargátt.

Reglurnar samþykktar samhljóða.

Bæjarstjórn Garðabæjar

20

18. (951). fundur

Lögð fram gjaldskrá fyrir starfsemi frístundar þar sem gert er ráð fyrir 3,9% hækkun. Gjaldskráin fylgdi fundarboði og er vistuð í fundargátt.

Gjaldskráin samþykkt með 9 atkvæðum (AG, BF, SHJ, MB, HME, GVG, SS, BDG, GK) gegn 2 (ÞÞ, IA).


Bæjarstjórn Garðabæjar

21

18. (951). fundur

Eftirfarandi tillaga lögð fram. Tillagan fylgdi fundarboði og er vistuð í fundargátt.

Fasteignaskattur skal vera 0,161% af fasteignamati íbúða og íbúðarhúsa ásamt lóðarréttindum, erfðafestulanda og jarðeigna, sbr. a-lið 3. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995.

Fasteignaskattur skal vera 1,52% af öðrum fasteignum, sem metnar eru í fasteignamati, sbr. c-lið 3. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995.

Leigugjald á íbúðarhúsalóðum Garðabæjar skal vera 0,4% af fasteignamati lóðar og er þá ekki nýtt að fullu heimild bæjarins sem er 1,0% samkvæmt niðurstöðu í matsgerð dómkvaddra manna.

Leigugjald á atvinnuhúsalóðum Garðabæjar skal vera 1,0% af fasteignamati lóðar, samkvæmt niðurstöðu í matsgerð dómkvaddra manna.

Vatnsgjald skal vera 0,074% af fasteignamati húsa ásamt lóðarréttindum, sbr. heimild í reglugerð um vatnsveitur. [Sjá gjaldskrá]

Aukavatnsgjald skal á árinu 2024 vera 36,9 kr/tonn m.v. BVT í desember 2024.
Á Álftanesi skal vatnsgjald vera samkvæmt gjaldskrá Orkuveitu Reykjavíkur sem innheimtir vatnsgjald samkvæmt samningi.

Fráveitugjöld skulu vera 0,078% af fasteignamati húsa ásamt lóðarréttindum, sbr. samþykkt um fráveitu í Garðabæ nr. 282/2005. [Sjá gjaldskrá]

Á Álftanesi skal rotþróargjald vera kr. 37.900.

Sorphirðugjald skal vera samkvæmt sérstakri gjaldskrá.

Taðþróargjöld í hesthúsahverfi Andvara skulu vera kr. 219.670 á hvert hús fyrir tímabilið 1. janúar 2025 til 30. júní 2025. [Sjá gjaldskrá].

Fasteignaskattur og fráveitugjald sem tekjulágum elli- og örorkulífeyrisþegum er gert að greiða skal lækka að teknu tilliti til viðmiðunartekna. Bæjarstjórn samþykkir að fela bæjarráði að ákvarða viðmiðunartekjur samkvæmt reglum um lækkun fasteignaskatts elli- og örorkulífeyrisþega.

Gjalddagar fasteignagjalda á árinu 2025 verða 15. janúar, 15. febrúar, 15. mars, 15. apríl, 15. maí, 15. júní, 15. júlí, 15. ágúst, 15. september og 15. október.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Garðabæjarlistinn leggur til að fasteignaskattur á íbúðarhúsnæði verði áfram 0,163%." Um rökstuðning fyrir breytingunni vísast til bókunar Garðabæjarlistans undir dagskrárlið 28. Fjárhagsáætlun 2025 (2025-2028) - síðari umræða.
Gunnar Valur Gíslason tók til máls.
Guðlaugur Kristmundsson tók til máls.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir tók til máls að nýju.
Almar Guðmundsson tók til máls að nýju.
Guðlaugur Kristmundsson tók til máls að nýju.

Breytingatillaga Garðabæjarlistans felld með 7 atkvæðum (AG, BF, SHJ, MB, HBE, GVG, SS) gegn 2 atkvæðum (ÞÞ, IA). 2 sátu hjá (BGD, GK).

Tillaga um álagningu fasteignagjalda 2025 samþykkt með 9 atkvæðum (AG, BF, SHJ, MB, HME, GVG, SS, BDG, GK) gegn 2 (ÞÞ, IA).

Bæjarstjórn Garðabæjar

22

18. (951). fundur

Almar Guðmundsson, bæjarstjóri, fjallaði um frumvarp að fjárhagsáætlun og fór yfir vinnu við gerð fjárhagsáætlunar. Bæjarstjóri þakkaði starfsmönnum bæjarins fyrir þeirra aðkomu að gerð fjárhagsáætlunar og íbúum fyrir ábendingar sem fram komu á vef Garðabæjar. Bæjarstjóri lýsti ánægju með gott samstarf allra bæjarfulltrúa við umfjöllum um fjárhagsáætlun.

Bæjarstjóri fjallaði um helstu niðurstöður sem koma fram í frumvarpinu og greinargerð sem hefur verið uppfærð og er lögð fram nú við síðari umræðu.

Bæjarstjóri gerði grein fyrir eftirfarandi tillögum að breytingum við frumvarpið eins og það var lagt fram við fyrri umræðu.

Tekjur
Fasteignaskattur á íbúðarhúsnæði lækkun -15 m.kr.
Jöfnunarsjóður sveitarfélaga 567 m.kr.
Sorpgjald 26 m.kr.
Breytingar á tekjum 578 m.kr

Gjöld:
Uppfærð laun í leikskólum -120 m.kr.
Viðbótarstöðugildi í barnavernd - 15 m.kr.
Verkefnastjóri í skólaþjónustu - 16 m.kr.
Efling félagsmiðstöðva og ungmennastarfs - 25 m.kr.
Sálfræði- og atferlisráðgjöf í skólum - 8 m.kr.
Kvöldferðir strætó eða frístundabíls - 20 m kr.
Hækkun hvatapeninga -15 m.kr.
Forvarnir og heilsuefling eldri borgara - 5. m.kr.
Verkefnastjóri stafræn þróun -15 m.kr.
Upplýsingatækniöryggi -25 m.kr.
Stafræn verkefni, róbótar og gervigreind - 32 m.kr.
Mótteka barna með fjölbreyttan menn. bakgrunn - 14 m.kr.
Sjálfstætt starfandi grunnskólar - 20 m.kr.
Námsmat í grunnskólum, samræming - 5 m.kr.
Vinna og virkni, undirbúningur og framlög til stofn. 6 m.kr.
Hagræðing, almenn á málaflokka 200 m.kr.
Varasjóður vegna launaþróunar og verðlags -200 m.kr.
Lækkun framlaga ti Hönnunarsafns 10 m.kr.
Breyting á útgjöldum - 331 m.kr.

Samtals hækkun á rekstrarafgangi A- sjóðs 247 m.kr.
Rekstrarafgangur fyrri umræða A sjóður 112 m.kr.
Rekstrarafgangur A- sjóðs með breytingum 359 m.kr.
Rekstrarafgangur A og B sjóðs með breytingum 712 m.kr.

Guðlaugur Kristmundsson tók til máls.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir tók til máls og lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Garðabæjarlistinn leggur til að hvatapeningar hækki úr 55 þúsund í 65 þúsund fyrir árið 2025 í stað 60 þúsunda."

Rökstuðningur:

"Með hækkun hvatapeninga í 65 þúsund fyrir árið 2025 komum við með myndarlegum hætti til móts við barnafjölskyldur. Tómstundir eru stór útgjaldaliður á hverju ári hjá fjölskyldum og með hækkun hvatapeninga gerum við fólki betur kleift að takast á við hækkanir æfingagjalda síðustu ára og þrengri fjárhagsstöðu heimila. Líkt og fram kom í greinargerð okkar með fyrri tillögu hefur þátttaka í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi, ásamt því að vera mikilvægur vettvangur fyrir félagslegan þroska barna og heilsu, gríðarlegt forvarnargildi. Því er mikilvægt að allar fjölskyldur geti boðið börnum sínum upp á að stunda slíkt starf, óháð efnahag. Garðabær hefur fjárfest milljörðum í aðstöðu til íþróttaiðkunar á undanförnum árum og ber töluverðan kostnað af rekstri þeirra á ári hverju. Það er því afar mikilvægt að ýta undir að þeir innviðir nýtist sem best og fyrir sem flest.
Garðabæjarlistinnn lagði í haust fram tillögu að hækkun hvatapeninga upp í 70 þúsund. Við gerð fjárhagsáætlunar var komið að hluta til móts við þá tillögu, og meirihlutinn leggur til að þeir hækki úr 55 í 60 þúsund. Samhliða leggur meirihlutinn til að fasteignaskattur á íbúðarhúsnæði lækki um 0,002%.Um sambærilegar fjárhæðir er að ræða, eða um 15 milljónir. Við teljum að sameiginlegum fjármunum Garðbæinga verði betur varið með því hækka hvatapeningana enn frekar - í 65 þúsund - í stað þess að lækka fasteignaskattinn.
Bæjarfulltrúar Garðabæjarlistans."

Björg Fenger tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun:
„Leiðarljós Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ er ábyrgur rekstur bæjarfélagsins, lágar skattálögur og framúrskarandi þjónusta við bæjarbúa.
Fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2025 og þrjú næstu ár sýnir að bæjarsjóður Garðabæjar stendur vel fjárhagslega. Þrátt fyrir viðvarandi verðbólgu og háa vexti undanfarin ár ásamt miklum launahækkunum og auknum þunga velferðarmála hefur fjárhagslegt aðhald og rekstrarhagræðing skilað stórbættri afkomu A-hluta bæjarsjóðs á yfirstandandi ári.
Þessi góða staða leiðir m.a. til þess að í fjárhagsáætlun 2025 er álagningarhlutfall fasteignaskatts af íbúðarhúsnæði lækkað í 0,161% af fasteignamati og verður þar með áfram hið lægsta meðal sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.
Í fjárhagsáætluninni er lögð áhersla á að mæta ungmennum, eldri borgurum og fötluðu fólki í Garðabæ. Það gerum við m.a. með því að styrkja enn frekar skólaþjónustuna, efla forvarnarstarf barna og ungmenna, vinna gegn félagslegri einangrun eldri borgara ásamt því að hefja undirbúning að nýjum virkniúrræðum fyrir fatlað fólk. Þessu til viðbótar er ætlunin að nýta stafrænar lausnir í auknum mæli til að bæta enn frekar þjónustu bæjarins.
Þótt fjárhagsleg staða bæjarsjóðs Garðabæjar sé gríðarlega sterk er það skylda bæjarstjórnar að viðhalda hagkvæmni í rekstri og laga reksturinn áfram að krefjandi efnahagsaðstæðum í þjóðfélaginu. Stefnt er að góðum rekstrarhagnaði, bæði af A-hluta bæjarsjóðs sem og af samstæðureikningi A- og B-hluta á árinu 2025. Stóraukið veltufé frá rekstri leiðir til þess að áfram verður fjárfest markvisst í innviðum bæjarins með hóflegri lántöku.
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins stefna ótrauðir að því áfram að álagningarhlutföll útsvars og fasteignaskatts í Garðabæ séu hin lægstu meðal stærstu sveitarfélaga landsins, að þjónustukannanir staðfesti áfram mikla ánægju íbúa með þá þjónustu sem bærinn veitir og að íbúar séu ávallt mjög ánægðir með Garðabæ sem sveitarfélag til að búa í.“

Brynja Dan Gunnarsdóttir tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun:
"Við í Framsókn styðjum tillögu um hækkun hvatapeninga umfram það sem áætlað er eða í 65 þúsund í stað 60 þúsund króna og teljum skynsamlegt að halda álagningu fasteignagjalda óbreyttri til að fjármagna það skref eins og lagt er til mótvægis. Við hefðum viljað fara í meiri hækkun en teljum að þetta sé engu að síður skref í rétta átt og finnst afar mikilvægt að stutt sé enn betur við barnafjölskyldur með þessu móti."

Guðlaugur Kristmundsson tók til máls að nýju og lagði fram eftirfarndi bókun:
"Fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2025 er einkennandi fyrir sveitarfélag sem er í stækkun og mikilli uppbyggingu. Á sama tíma hefur ytra umhverfi okkar verið óhagstætt vegna hárra vaxta og verðbólgu. Með þeim forsendum sem okkur eru settar til þessarar áætlunar stefnir hvoru tveggja niður á við, verðbólga og vextir.
Garðabær fagnaði sínum 20.000 íbúa á árinu og fyrirséð er enn frekari stækkun bæjarins og fjölgun íbúa með uppbyggingu nýrra hverfa á Arnarlandi, Hnoðraholti, Vetrarmýri og Vífilstaðalandi og eins konar þéttingu byggðar á Álftanesi og við Eskiásinn. Samhliða þessari stækkun þurfa innviðir og þjónusta við íbúa að halda í við kröfur nútímans, umhverfi nýrra og núverandi hverfa þurfa að taka mið af kröfum okkar og bæta bæjarbraginn.
Fjárhagslegur styrkleiki þessa sveitarfélags veltur á því að hér verði hagstætt verðbólgu og vaxtaumhverfi á næstu árum til þess að núverandi fjárfestingar verði ekki íþyngjandi rekstri og fjárstreymi sveitarfélagsins á næstu árum.
Í þessari fjárhagsáætlanagerð vildum við í Viðreisn sjá ráðdeild í rekstri og tempraðar kröfur um sérverkefni eða fjármögnun verkefna sem einstaka flokkar hér í bæjarstjórn vildu skreyta sig með. Þess vegna mun Viðreisn heils hugar standa að baki þessari fjárhagsáætlun, enda er með henni lagt til að ekki bara fjármagna heldur ráðast í aðgerðir sem okkur þykja skynsamar og tímabærar. Hér er verið að ráðast í og bæta við útgjöld sem lagt hefur verið til hér við bæjarstjórnarborðið og meirihlutinn veitir núna brautargengi með því að leggja þær til sem tillögur.
Þetta eru áætlanir um að styrkja starfsemi bæjarskrifstofunnar með auknum stöðugildum, sem er eðlilegt í stækkandi bæ. Hér eru áætlanir um að bæta við stöðugildi og fjármagn til þess að fara í spennandi verkefni í rafrænum lausnum, sem ekki bara skapa hagræðingu heldur geta líka skapað nýtt og spennandi vinnuumhverfi, vinnutæki, sem aftur geta leitt af sér nýsköpun og aðferðafræði hjá starfsfólki, sem aftur getur aukið afköst og ánægju. Hér eru áætlanir um að bæta þjónustu við börn, hvort sem þau eru virk í félagsmiðstöðvum eða þurfi fagfólk til að stíga inn í með stuðning til þeirra sem þess þurfa. Hér eru áætlanir um aukið fé til almenningssamgangna sem er ekki bara eðlileg þjónusta heldur orðið að öryggis og jafnréttismáli innan bæjarins, þegar börn og unglingar í bænum sækja tómstundir bæjarendanna á milli. Hér eru nauðsynlegar áætlanir um innviðaframkvæmdir og hraustlegt viðhald og endurbætur á núverandi húsnæði. Hér eru svo áætlanir um ýmis önnur mál sem við listum ekki upp í þessari bókun, þó mikilvæg séu. Hér eru að lokum metnaðarfull markmið um að finna hagræðingu í rekstri, sem getur verið krefjandi en að sama skapi nauðsynleg til að kalla fram nýjar hugmyndir eða nýsköpun, en bæjarstjóri og allir sviðsstjórar fá mikla hvatningu frá okkur í Viðreisn í þeirri vinnu.
Fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2025 er skynsöm og ábyrg, allir flokkar í bæjarstjórn tóku þátt í og höfðu tök á að hafa áhrif á hana. Hún er skynsöm því hún er án flækinga eða fjármögnunar pólitískra minnisvarða. Fremur sópar hún upp og fjármagnar góðar hugmyndir sem hafa fengið góða umræðu hér við bæjarstjórnarborðið. Hún er ábyrg því allir flokkar við bæjarstjórnarborðið höfðu aðkomu að henni og aðgang að þeim upplýsingum sem nauðsynlegt var til að taka upplýstar ákvarðanir á þessum fundi."

Gunnar Valur Gíslason tók til máls.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir tók til máls að nýju og lagði fram eftirfarandi bókun:
"Fjárhagsáætlun 2025 er metnaðarfull og ber vott um vaxandi bæjarfélag. Við árslok 2025 er gert ráð fyrir því að Garðabær skuldi rúmlega 1,9 milljónir á hvern íbúa í bænum. Skuldir hafa aukist jafnt og þétt undanfarin ár og samkvæmt áætluninni munu þær standa í 40 milljörðum eftir ár. Við þessu er alveg að búast í jafn miklum uppbyggingarfasa og Garðabær er í, en Garðabæjarlistinn telur mikilvægt að íbúar bæjarins séu meðvitaðir um þessa staðreynd.
Það er ágætis þumalputtaregla að reglulegar tekjur sveitarfélagsins standi undir rekstri þess, en þær hafa ekki gert það um árabil í Garðabæ. Þetta gerir það auðvitað að verkum að lántaka fyrir framkvæmdum fyrir ný hverfi hefur verið mikil undanfarin ár, þrátt fyrir sölu á byggingarrétti upp á milljarða.
Rekstur A-sjóðs stendur ekki ennþá undir sér samkvæmt áætluninni sem hér er til umræðu - þótt reksturinn hafi sannarlega styrkst mikið. Gert er ráð fyrir því að A-sjóður skili rekstrarafgangi upp á 359 milljónir, en samhliða er gert ráð fyrir sölu á byggingarrétti fyrir 1200 milljónir. Með öðrum orðum, það vantar ennþá um 840 milljónir til þess að A-hlutinn standi undir sér í reynd - þrátt fyrir töluverða hækkun útsvars á síðasta ári og hagræðingarkröfu þvert á svið.
Byggingarréttur er takmörkuð auðlind og því mikilvægt að vinna áfram að því að brúa bilið á milli reglulegra tekna og kostnaðar vegna grunnreksturs. Þetta höfum við í Garðabæjarlistanum ítrekað talað fyrir og gerum aftur nú.
Garðabæjarlistinn hefur lengi talað fyrir bættum samgöngum milli hverfa, bæði fyrir almenningssamgöngum, þá sérstaklega á Álftanesi og í Urriðaholti, og hjólreiðainnviðum. Það er því ánægjulegt að sjá að bættar strætósamgöngur á kvöldin í áætluninni. Einnig höfum við talað fyrir ungmennahúsi um langt skeið og erum því afar ánægð að sjá það mál þokast áfram. Við fögnum einnig aðgerðum til að vinna gegn félagslegri einangrun eldra fólks, eflingu á móttöku fyrir börn af erlendum uppruna, aukna sálfræðiþjónustu í leik- og grunnskólum og áform um virkniúrræði fyrir fatlað fólk. Eins er gott að sjá áframhaldandi fjárfestingu í félagslegu húsnæði, þótt við vildum gjarnan að stærra átak yrði gert í þeim málum. Einnig myndum við vilja sjá hærri stofnframlög til bygginga á leiguíbúðum.
Garðabæjarlistinn vill sjá áframhaldandi aðgerðir sem koma sér vel fyrir tekjulægsta fólkið í bænum og barnafjölskyldur, samhliða því að viðhalda góðri þjónustu. Okkar pólitíska stefna byggir á því að samfélagið taki saman utan um þau sem þess þurfa. Til að mynda viljum við að komið sé til móts við barnafjölskyldur í meira mæli, bæði með gjaldskrám og hækkun hvatapeninga. Atkvæði okkar við afgreiðslu gjaldskráa og breytingartillaga við fjárhagsáætlun endurspegla áherslur okkar í þeim efnum.
Við þökkum fyrir gott samtal og samráð síðustu vikur. Við erum um margt sátt við fjárhagsáætlun meirihluta Sjálfstæðisflokks, en myndum sannarlega forgangsraða á annan hátt hefðum við til þess völdin. Við munum halda áfram þéttu en sanngjörnu aðhaldi við meirihlutann og við munum áfram tala fyrir okkar gildum og stefnu Garðabæjarlistans, sem byggir á félagshyggju, náttúruvernd og frjálslyndi. Við viljum bæ sem er fyrir okkur öll, þar sem við upplifum öll að við tilheyrum og getum blómstrað."

Ingvar Arnarson tók til máls.

Almar Guðmundsson tók til máls að nýju.

Tillaga Garðabæjarlistans borin undir atkvæði og felld með 7 atkvæðum (AG, BJ, SHJ, MB, HBE, GVG, SS) gegn 4 (ÞÞ, IA, BDG, GK).

Tillaga um breytingar á frumvarpi að fjárhagsáætlun er samþykkt með 9 atkvæðum (AG, BJ, SHJ, MB, HBE, GVG, SS, BDG, GK). 2 sátu hjá (ÞÞ, IA).

Bæjarstjórn samþykkir framkvæmdayfirlit fjárhagsáætlunar með framkomnum breytingum með 9 atkvæðum (AG, BJ, SHJ, MB, HBE, GVG, SS, BDG, GK). 2 sátu hjá (ÞÞ, IA).

Bæjarstjórn samþykkir frumvarp að fjárhagsáætlun með framkomnum breytingartillögum sem fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2025-2028 með 9 atkvæðum (AG, BJ, SHJ, MB, HBE, GVG, SS, BDG, GK). 2 sátu hjá (ÞÞ, IA).

Niðurstöður rekstrarreiknings fyrir A og B hluta samkvæmt fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2025- 2028 eru (í þús.kr.):
2025 2026 2027 2028
Tekjur 32.455.092 34.797.991 36.516.381 38.321.025
Gjöld 27.723.233 29.554.950 30.926.468 32.542.381
Rekst.nið. f. afskr. 4.731.859 5.243.041 5.589.912 5.778.644
Afskriftir (1.980.180) (2.019.068) (2.149.950) (2.359.533)
Rekst.nið.án fjárml. 2.751.679 3.223.972 3.394.963 3.419.091
Fjárm. tekjur og (gjöld) (2.039.616) (1.915.884) (1.846.541) (1.874.291)
Rekstrarniðurstaða 712.063 1.308.088 1.548.421 1.544.800
Framkvæmdir 5.161.000 5.072.000 5.173.000 5.622.000

Bæjarstjórn Garðabæjar

23

18. (951). fundur

Lögð fram gjaldskrá fráveitu þar sem fram kemur að fráveitugjald verði 0,078% af álagningarstofni. Gjaldskráin fylgdi fundarboði og er vistuð í fundargátt.

Gjaldskráin samþykkt samhljóða.

Bæjarstjórn Garðabæjar

24

18. (951). fundur

Lögð fram gjaldskrá fyrir frístundarheimili þar sem gert er ráð fyrir 3,9% hækkun. Gjaldskráin fylgdi fundarboði og er vistuð í fundargátt.

Gjaldskráin samþykkt með 9 atkvæðum (AG, BF, SHJ, MB, HME, GVG, SS, BDG, GK) gegn 2 (ÞÞ, IA).

Bæjarstjórn Garðabæjar

25

18. (951). fundur

Lögð fram gjaldskrá um hreinsun taðþróa í hesthúsahverfinu á Kjóavöllum þar sem fram kemur að taðþróargjald verði kr. 219.670 fyrir tímabilið 1. janúar 2025 til 30. júní 2025. Gjaldskráin fylgdi fundarboði og er vistuð í fundargátt.

Gjaldskráin samþykkt samhljóða.

Bæjarstjórn Garðabæjar

26

18. (951). fundur

Lögð fram gjaldskrá Tónistarskóla Garðabæjar, þar sem gert er ráð fyrir 6% hækkun, sem taki gildi í september 2025. Gjaldskráin fylgdi fundarboði og er vistuð í fundargátt.

Gjaldskráin samþykkt með 9 atkvæðum (AG, BF, SHJ, MB, HME, GVG, SS, BDG, GK) gegn 2 (ÞÞ, IA).

Bæjarstjórn Garðabæjar

27

18. (951). fundur

Lögð fram samþykkt um breytingu á gjaldskrá vatnsgjalds þar sem fram kemur að vatnsgjald verði 0,074% af fasteignamati húsa og lóða. Gjaldskráin fylgdi fundarboði og er vistuð í fundargátt.

Samþykkt um breytingu á gjaldskrá vatnsgjalds samþykkt samhljóða.

Bæjarstjórn Garðabæjar

28

18. (951). fundur

Lögð fram gjaldskrá fyrir meðhöndlun úrgangs í Garðabæ. Gjaldskráin fylgdi fundarboði og er vistuð í fundargátt.

Gjaldskráin samþykkt samhljóða.

Bæjarstjórn Garðabæjar

29

18. (951). fundur

Lögð fram gjaldskrá sundlauga Garðabæjar þar sem gert er ráð fyrir 3,9% hækkun. Gjaldskráin fylgdi fundarboði og er vistuð í fundargátt.

Gjaldskráin samþykkt samhljóða.

Bæjarstjórn Garðabæjar

30

18. (951). fundur

Lögð fram gjaldskrá frístundabíls þar sem gert er ráð fyrir 6,0% hækkun. Gjaldskráin fylgdi fundarboði og er vistuð í fundargátt.

Gjaldskráin samþykkt með 9 atkvæðum (AG, BF, SHJ, MB, HME, GVG, SS, BDG, GK) gegn 2 (ÞÞ, IA).

Bæjarstjórn Garðabæjar

31

18. (951). fundur

Lögð fram gjaldskrá leikskóla með gildistíma frá 1. febrúar 2025. Gjaldskráin fylgdi fundarboði og er vistuð í fundargátt.

Gjaldskráin samþykkt með 9 atkvæðum (AG, BF, SHJ, MB, HME, GVG, SS, BDG, GK) gegn 2 (ÞÞ, IA).

Bæjarstjórn Garðabæjar

32

18. (951). fundur

Lögð fram gjaldskrá bókasafns Garðabæjar þar sem gert er ráð fyrir 3,9% hækkun. Gjaldskráin fylgdi fundarboði og er vistuð í fundargátt.

Gjaldskráin samþykkt samhljóða.

Bæjarráð Garðabæjar

33

45. (2146). fundur

Farið yfir tillögur um álagningu fasteignaskatts og þjónustugjalda ásamt tillögum um breytingar við frumvarp að fjárhagsáætlun sem verða til afgreiðslu við síðari umræðu um fjárhagsáætlun á fundi bæjarstjórnar 5. desember nk.

Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri sat fund bæjarráðs undir þessum dagskrárlið.

Bæjarráð Garðabæjar

34

44. (2145). fundur

Sviðsstjóri umhverfissviðs gerði grein fyrir tillögu að gjaldskrá sorpgjalds sem byggir á því að íbúar greiði samkvæmt gjaldskrá raunkostnað fyrir þjónustu við losun heimilisúrgangs, sbr. lög 103/2021 um breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, lögum um meðhöndlun úrgangs og lögum um úrvinnslugjald.

Bæjarstjóri gerði grein fyrir helstu breytingum á gjaldskrám.

Bæjarstjóri gerði grein fyrri helstu breytingum sem orðið hafa á fjárhagsáætlun frá fyrri umræðu um fjárhagsáætlunina sem fram fór í bæjarstjórn þann 7. nóvember 2024.

Bæjarstjóri gerði grein fyrir drögum að framkvæmdaáætlun fyrir árin 2025-2028.

Gert er ráð fyrir að á fundi bæjarráðs 3. desember nk. verði lagðar fram tillögur að breytingum ásamt frumvarpi að fjárhagsáætlun með breytingum. Síðari umræða um fjárhagsáætlun er fyrirhuguð á fundi bæjarstjórnar 5. desember nk.

Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri sat fund bæjarráðs undir þessum lið.

Bæjarstjórn Garðabæjar

35

17. (950). fundur

Almar Guðmundsson, bæjarstjóri gerði grein fyrir eftirfarandi tillögu um álagningu útsvars á árinu 2025.

"Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að álagningarhlutfall útsvars verði 14,71% á tekjur manna á árinu 2025 samkvæmt heimild í 23. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995, sbr. 24.gr. laganna.
Samþykkt bæjarstjórnar skal tilkynnt fjármála- og efnahagsráðuneytinu fyrir 15. desember 2024, samkvæmt 2.mgr. 24.gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995."

Tillagan samþykkt samhljóða.

Bæjarráð Garðabæjar

36

43. (2144). fundur

Lögð fram eftirfarandi tillaga um álagningu útsvars:

"Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að álagningarhlutfall útsvars verði 14,71% á tekjur manna á árinu 2025 samkvæmt heimild í 23. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995, sbr. 24.gr. laganna.
Samþykkt bæjarstjórnar skal tilkynnt fjármála- og efnahagsráðuneytinu fyrir 15. desember 2024, samkvæmt 2.mgr. 24.gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995."

Bæjarráð vísar tillögunni til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Lagt fram yfirlit yfir ábendingar sem borist hafa frá íbúum varðandi fjárhagsáætlun fyrir árið 2025.

Farið var yfir yfirlit yfir breytingar á gjaldskrám og lagt fram yfirlit yfir mál sem hefur verið vísað til skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar.

Bæjarstjóri fór yfir helstu atriði og dagsetningar varðandi vinnu við fjárhagsáætlun fram að seinni umræðu í bæjarstjórn, sem fyrirhuguð er 5. desember nk.

Bæjarstjórn Garðabæjar

37

16. (949). fundur

Almar Guðmundsson, bæjarstjóri, fylgdi úr hlaði frumvarpi að fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árin 2025-2028. Bæjarstjóri lagði fram drög að greinargerð þar sem helstu markmið og niðurstöður eru raktar nánar.

Bæjarstjóri lagði til að frumvarpinu verði vísað til síðari umræðu í bæjarstjórn.

Björg Fenger tók til máls.

Hrannar Bragi Eyjólfsson tók til máls.

Samkvæmt frumvarpinu eru niðurstöður A og B hluta þessar (í þúsundum króna):

2025 2026 2027 2028
Tekjur: 31.901.858 34.229.083 35.933.108 37.723.027
Gjöld: 27.616.753 29.442.112 30.807.486 32.416.946
Rekstrarniðurstaða fyrir afskriftir: 4.285.105 4.786.972 5.125.662 5.306.082

Afskriftir: 1.976.925 2.013.824 2.195.156 2.356.629

Rekstrarniðurst. án fjám.tekna/gjalda: 2.308.180 2.773.148 2.930.466 2.949.452

Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld) 1.839.633 1.715.975 1.654.891 1.685.896

Rekstrarniðurstaða: 468.546 1.057.173 1.275.575 1.263.557

Framkvæmdir: 4.800.000

Bæjarstjórn samþykkir að vísa frumvarpi að fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árin 2025-2028 til síðari umræðu í bæjarstjórn og frekari vinnslu í bæjarráði.

Bæjarráð Garðabæjar

38

41. (2142). fundur

Bæjarstjóri fór almennt yfir meginatriði varðandi vinnu við gerð frumvarps að fjárhagsáætlun 2025 og fór yfir forsendur, framkvæmdayfirlit og gjaldskrár.

Bæjarráð samþykkir að vísa tillögu að frumvarpi að fjárhagsáætlun Garðabæjar 2025 (2026-2028) til fyrri umræðu í bæjarstjórn samkvæmt 3.mgr. 62.gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, sbr. einnig 2.mgr. 40.gr. Samþykkta um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022. Fyrri umræða fer fram í bæjarstjórn fimmtudaginn 7. nóvember 2024.

Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri, sat fundinn undir þessum lið.

Bæjarráð Garðabæjar

39

40. (2141). fundur

Bæjarstjóri fór almennt yfir meginatriði varðandi vinnu við gerð frumvarps að fjárhagsáætlun 2025.

Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri kom á fund bæjarráðs og gerði grein fyrir tillögu að frumvarpi að fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2025 og árin 2026-2028, ásamt forsendum og framkvæmdayfirliti.

Bæjarráð samþykkir að vísa tillögu að frumvarpi að fjárhagsáætlun Garðabæjar 2025 (2026-2028) til fyrri umræðu í bæjarstjórn samkvæmt 3.mgr. 62.gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, sbr. einnig 2.mgr. 40.gr. Samþykkta um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022. Fyrri umræða í bæjarstjórn er fyrirhuguð fimmtudaginn 7. nóvember 2024.

Bæjarráð Garðabæjar

40

39. (2140). fundur

Á fund bæjarráðs kom Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og gerði grein fyrir drögum að áætlunum málasviða vegna vinnslu að frumvarpi að fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2025. Umræðu um fjárhagsáætlun verður fram haldið á fundi bæjarráðs 29. október 2024. Fyrri umræða fjárhagsáætlunar verður á fundi bæjarstjórnar 7. nóvember 2024.

Bæjarráð Garðabæjar

41

35. (2136). fundur

Lagt fram minnisblað Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi forsendur fjárhagsáætlana sveitarfélaga fyrir árin 2025-2028.

Bæjarráð Garðabæjar

42

33. (2134). fundur

Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri gerði grein fyrir forsendum og vinnuferlum vegna vinnu við gerð fjárhagsáætlunar 2025 (2025-2028). Fjárhagsáætlun verður lögð fram í bæjarráði fyrir lok október 2024 og tekin til fyrri umræðu í bæjarstjórn 7. nóvember 2024. Síðari umræða í bæjarstjórn er fyrirhuguð 5. desember 2024.

Bæjarráð samþykkir forsendur og vinnuferla fjárhagsáætlunar 2025.

Bæjarstjórn Garðabæjar

43

12. (945). fundur

Þorbjörg Þorvaldsdóttir tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun:
"Garðabæjarlistinn lýsir yfir mikilli ánægju með gjaldfrjálsar skólamáltíðir í grunnskólum Garðabæjar. Þessi aðgerð stjórnvalda stuðlar að jöfnuði og vinnur gegn áhrifum fátæktar á börn um allt land, auk þess að vera kjarabót fyrir foreldra grunnskólabarna."

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu að breytingu á gjaldskrá skólamálsverða.

Bæjarráð Garðabæjar

44

27. (2128). fundur

Ný þjóðhagsspá Hagstofu Íslands og forsendur, lögð fram.