Beint í efni

35. (2136). fundur

24.09.2024
Bæjarráð Garðabæjar

35. (2136). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

24.09.2024

Kl. 08:00 - 08:45

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - formaður
  • Hrannar Bragi Eyjólfsson - aðalmaður
  • Gunnar Valur Gíslason - varamaður
  • Ingvar Arnarson - aðalmaður
  • Rakel Steinberg Sölvadóttir - varamaður
  • Hlynur Elías Bæringsson - varaáheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
  • Lúðvík Örn Steinarsson - sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
  • Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri velferðarsviðs
  • Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
  • Ágúst Þór Guðmundsson - sviðsstjóri þróunar- og þjónustusviðs
  • Ásta Sigrún Magnúsdóttir - samskiptastjóri

Ritari

  • Lúðvík Örn Steinarsson

Dagskrá

Málsnúmer 2406835

01

Helguvík - Lambhagi 3 - Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Sigurði Magnússyni, kt. 010748-2089, byggingarleyfi skv. þegar samþykktum uppdráttum af vinnustofuviðbyggingu, stækkunar á forstofu og breytingu á svefnherbergisglugga á austurhlið, að Helguvík - Lambhaga 3.

Málsnúmer 2407203

02

Mosprýði 1 - Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Guðbjörgu Kristjánsdóttur, kt. 220154-4679, leyfi fyrir milli lofti yfir hluta bílgeymslu, baðherbergis og þvottahúss, að Mosprýði 1.

Málsnúmer 2406431

03

Stekkholt 51 - Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Aviad ehf., kt. 640419-0320, leyfi til að byggja parhús að Stekkholti 51.

Málsnúmer 2406430

04

Stekkholt 53 - Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Aviad ehf., kt. 640419-0320, leyfi til að byggja parhús að Stekkholti 53.

Málsnúmer 2407252

05

Þorraholt 19 - Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita ÞG Hnoðraholti ehf., kt. 660124-0470, leyfi fyrir byggingu fjölbýlishúss með 23 íbúðum að Þorraholti 19.

Málsnúmer 2404120

06

Ungmennahús - Áfangaskýrsla

Áfangaskýrsla íþrótta- og tómstundaráðs og ungmennaráðs Garðabæjar um hugmyndavinnu og þarfagreiningu varðandi aðstöðu fyrir félags- og tómstundastarf ungs fólks í bænum, lögð fram.

Bæjarráð tekur undir þau sjónarmið sem fram koma í skýrslunni að stofnun ungmennahúss sé liður í að styrkja og efla forvarnir í bænum með fjölbreyttri og heilbrigðri félagslegri starfsemi fyrir ungmenni bæjarins. Fræðslu- og menningarsvið skal vinna að nánari útfærslu tillögunnar í samráði við forsvarsmenn félagsmiðstöðva í Garðabæ.

Bæjarráð vísar málinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2025.

Málsnúmer 2409356

07

Bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi starfs- og fjárhagsáætlun svæðisskipulagsnefndar 2025, dags. 18. september 2024.

Lagt fram bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi starfs- og fjárhagsáætlun svæðisskipulagsnefndar ásamt fylgigögnum þar sem fram kemur að hlutdeild Garðabæjar árið 2025 er áætluð kr. 2.972.960.

Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2025.

Málsnúmer 2409389

08

Tilkynning Sambands íslenskra sveitarfélaga um skráningu á fjármálaráðstefnu sveitarfélaga.

Tilkynning frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga vegna fjármálaráðstefnu sveitarfélaga 2024, sem fer fram 10.-11. október nk.

Málsnúmer 2409392

09

Tilkynning innviðaráðuneytisins um ársfund Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga. dags. 6. september 2024.

Tilkynning innviðaráðuneytisins um ársfund Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga sem fer fram 9. október nk.

Málsnúmer 2407142

10

Minnisblað Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi forsendur fjárhagsáætlana sveitarfélaga 2025 og 2026-2028, dags. 18. september 2024.

Lagt fram minnisblað Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi forsendur fjárhagsáætlana sveitarfélaga fyrir árin 2025-2028.