Helguvík - Lambhagi 3 - Umsókn um byggingarleyfi
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
35. (2136). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Sigurði Magnússyni, kt. 010748-2089, byggingarleyfi skv. þegar samþykktum uppdráttum af vinnustofuviðbyggingu, stækkunar á forstofu og breytingu á svefnherbergisglugga á austurhlið, að Helguvík - Lambhaga 3.
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra
03
10. fundur
Lagðir fram aðaluppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi. Gert er ráð fyrir að ný vinnustofa verði reist við húsið. Gengið er inn í vinnsustofu um nýjan inngang sem gerður er gegnum núverandi bílageymslu. Gert er ráð fyrir að núverandi forstofurými verði stækkað fram undir núverandi þakskyggni.
Þar sem ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu hlýtur umsókn um byggingarleyfi ferli í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagsstjóri vísar umsókninni til grenndarkynningar samkvæmt ofangreindri lagagrein. Grenndarkynna skal eigendum við Vindás og Melshús.
Þar sem að yfirlýsinga þeirra sem grenndarkynning nær til liggur fyrir er tími til að gera athugasemdir við tillöguna hér með styttur og gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við að byggingarleyfi verði veitt sem er í samræmi við grenndarkynnt gögn sbr.3.mgr.sömu greinar.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.
Bæjarráð Garðabæjar
04
27. (2128). fundur
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar, frá fundi 9. júlí 2024 að vísa umsókn um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við einbýlishúsið Helguvík við Höfðabraut á Álftanesi að austanverðu, til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Ekkert deiliskipulag er í gildi á staðnum. Grenndarkynna skal eigendum aðliggjandi lóða. Þar sem fyrir liggur að þeir sem grenndarkynning nær til gera ekki athugasemd við umsóknina er skipulagsstjóra heimilt að stytta tíma grenndarkynningar.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
9. fundur
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við einbýlishúsið Helguvík við Höfðabraut á Álftanesi að austanverðu. Ekkert deiliskipulag er í gildi á staðnum.
Skipulagsnefnd vísar umsókninni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr. skipulagslaga nr.123/2010. Grenndarkynna skal eigendum aðliggjandi lóða.
Þar sem að fyrir liggur að þeir sem grenndarkynning nær til gera ekki athugasemd við umsóknina er skipulagsstjóra heimilt að stytta tíma grenndarkynningar.