Beint í efni

27. (2128). fundur

16.07.2024
Bæjarráð Garðabæjar

27. (2128). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

16.07.2024

Kl. 08:00 - 8:20

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - varaformaður
  • Margrét Bjarnadóttir - varamaður
  • Gunnar Valur Gíslason - varamaður
  • Þorbjörg Þorvaldsdóttir - varamaður
  • Guðlaugur Kristmundsson - aðalmaður
  • Rakel Norðfjörð Vilhjálmsdóttir - varaáheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Lúðvík Örn Steinarsson - sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
  • Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri velferðarsviðs
  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs

Ritari

  • Lúðvík Örn Steinarsson

Dagskrá

Málsnúmer 2404346

01

Vorbraut 1 - Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Vorbraut 1 ehf., kt. 440823-1300, leyfi fyrir byggingu fjölbýlishúss með sjö íbúðum að Vorbraut 1.

Málsnúmer 2403409

02

Miðhraun 18 - Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Krókhálsi 13 ehf., kt. 510315-0490, leyfi til að breyta útliti og innra skipulagi iðnaðarhúsnæðis að Miðhrauni 18. Breytingar miða að lágmarks tilfærslum á núverandi hönnun. Ytri breytingar snúa aðallega að suð-austur og suð-vestur hlið. Innri breytingar eru flestar í mið og suðurhluta á jarðhæð hússins. Þær felast í að innrétta núverandi húsnæði sem dekkjaverkstæði og dekkjalager með tilheyrandi starfsmannarýmum.

Málsnúmer 2406919

03

Sunnuflöt 33 - Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Ingólfi Erni Guðmundssyni, kt. 310170-4889, leyfi til að byggja 42,2m2 viðbyggingu við bílskúr til norðurs, að Sunnuflöt 33.

Málsnúmer 2406835

04

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um viðbyggingu við húsið Helguvík, Lambhaga 3.

Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar, frá fundi 9. júlí 2024 að vísa umsókn um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við einbýlishúsið Helguvík við Höfðabraut á Álftanesi að austanverðu, til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Ekkert deiliskipulag er í gildi á staðnum. Grenndarkynna skal eigendum aðliggjandi lóða. Þar sem fyrir liggur að þeir sem grenndarkynning nær til gera ekki athugasemd við umsóknina er skipulagsstjóra heimilt að stytta tíma grenndarkynningar.

Málsnúmer 2403504

05

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður sem nær til lóðarinnar Þorraholt 2-4.

Samkvæmt afgreiðslu skipulagsnefndar á fundi nefndarinnar 9. júlí 2024, var umsóknaraðila veittur frestur til að koma á framfæri viðbótargögnum og rökstuðningi vegna tillögunnar. Á grundvelli slíkra gagna er skipulagsstjóra heimilt að samþykkja deiliskipulagsbreytinguna í samræmi við auglýsta tillögu hvað hámarkshæð varðar. Viðbótargögn eru í yfirferð hjá skipulagsstjóra. Afgreiðslu frestað.

Málsnúmer 2402118

06

Afgreiðsla skipulagsnefndar vegna tillögu að breytingu deiliskipulags Breiðumýri vegna lóðarinnar að Lambamýri 3.

Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar, frá fundi 9. júlí 2024 að samþykkja tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Breiðumýrar, í samræmi við 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Tillagan, sem varðar staðsetningu sorpskýlis verslunar og bílastæða meðfram Breiðumýri, var grenndarkynnt. Engar athugasemdir bárust.

Málsnúmer 2407063

07

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts norður vegna lóðanna við Skerpluholt 11 og 13 - dsk br. hækkun hæðarkóta.

Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar, frá fundi 9. júlí 2024 að meta tillöguna sem óverulega deiliskipulagsbreytingu í samræmi við 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísa henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr. sömu laga. Grenndarkynna skal lóðarhöfum að Vorbraut 14 og 16, sem og Skerpluholti 8, 9 og 10.

Tillagan varðar breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts norður sem gerir ráð fyrir því að gólfkóti einbýlishúsanna að Skerpluholti 11 og 13 hækki um 50 cm. Hæð gólfkóta er skilgreind á útgefnum hæðarblöðum.

Málsnúmer 2311540

08

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi notkun íbúðarhússins Þórukots á Álftanesi sem bráðabirgða golfskála.

Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar, frá fundi 9. júlí 2024 að samþykkja að húsið verði nýtt sem golfskáli með veitingaðstöðu til bráðabirgða, eða þangað til golfvöllur hefur hafið starfsemi annarsstaðar á Álftanesi og íbúðarhús verði samþykkt við Þórukot eins og deiliskipulag gerir ráð fyrir.

Notkun hússins sem golfskáli er tímabundin eða þar til golfiðkun á svæðinu leggst af, enda er ekki gert ráð fyrir golfvelli þar í skipulagsáætlunum.

Fjarlægð frá næstu íbúðarhúsum er um 100 metrar og aðkoma að húsinu er beint frá Suðurnesvegi.

Málsnúmer 2407142

09

Minnisblað Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi nýja þjóðhagsspá Hagstofu Íslands, dags. 10. júlí 2024.

Ný þjóðhagsspá Hagstofu Íslands og forsendur, lögð fram.